Eigendur Manchester City hafa óeðlileg áhrif á dómgæslu ensku úrvalsdeildarinnar í krafti auðæfa sinna
Listen now
Description
Hvort sem fólk hefur áhuga á knattspyrnu eður ei, þá höfum við líklega flest heyrt um spillinguna og það bilaðslega magn peninga sem flæðir innan knattspyrnu hreyfingarinnar. Löngum hefur verið rætt um að peningar séu að eyðileggja íþróttina og að leikmenn séu á allt of háum launum sem séu úr takt við allan raunveruleika. En þó líklega aldrei eins mikið og eftir að olíufurstar og fjárfestingarsjóðir heilu þjóðríkjanna fóru að eignast knattspyrnufélög.  Áður höfðu kaup Roman Abramovich á Chelsea vissulega vakið efasemdir einhverra stuðningsmanna annara liða og einhverjir kváðu oft við þegar Real Madrid og Barcelona kepptust við að slá metin yfir dýrustu leikmenn sögunnar á sínumtíma. En sú gagnrýni var ekkert í líkingu við þá gagnrýni sem komið hefur fram eftir kaup olíusjóðs sameinuðu arabísku furstadæmanna á Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. En hvað hefur þetta eiginlega að gera með Álhatta og samsæri kann einhver að spyrja?  Er möguleiki á að eigendur Manchester City séu það auðugir og valdamiklir í krafti auðjöfra sinna að það sé farið að hafa áhrif á dómara og dómgæslu í úrvalsdeildinni almennt? Í nýjasta þættinum af Álhattinum ræða þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór þá skemmtilegu samsæriskenningu að Manchester City séu ekki bara skekkja leikinn og kaupa titla með kaupum á öllum dýrustu og bestu leikmönnum á markaðnum heldur séu þeir einnig að hafa óeðlileg áhrif á dómara í ensku úrvalsdeildinni.   Hlekkir á efni rætt í þættinum: Man City boosted its finances through creative plays, documents showWhy Haven't Man City Been Punished Yet?Heimildarmynd um spillingu CityVörn City stuðningsmannaGAGNRÝNIR ÞAÐ AÐ DÓMARI FRÁ MANCHESTER DÆMI MAN CITY - LIVERPOOLThe issues with multi-club ownershipCity Football Group. A Brand Of Its OwnHvaða úrvalsdeildarlið græða mest á VAR? 2019-202020-212021-222022-232023-24UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
More Episodes
Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og þetta er allt saman eitt stórt sjónarspil og svikamylla fégráðugra einstaklinga?Ef...
Published 05/31/24
Published 05/31/24
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta...
Published 05/17/24