Handritshöfundar The Simpsons eru með dulda vitneskju um atburði framtíðarinnar, sem þau setja í þættina sína
Listen now
Description
Sjónvarpsþættirnir um Simpsons fjölskylduna eru einhverjir farsælustu þættir allra tíma og lang langlífustu þættir sem sýndir eru í dag. Í rúm 30 ár hefur þessi gula og skondna vísitölufjölskylda og aðrir bæjarbúar Springfield skemmt áhorfendum með alls vitleysu og uppátækjum og mótað skopskyn fleiri kynslóða.   Út um allt á internetinu má finna greinar og myndbönd um allskonar atburði sem höfundar Simpsons fjölskyldunnar eiga að hafa spáð fyrir um. Málsmetandi aðili þáttarins er Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur, fyrrverandi forseti borgarstjórnar og einn fremsti Simpsons sérfræðingur landsins. Spádómar ræddir í hlaðvarpinu Apple Watch og skjásímarHestakjöti blandað í máltíðirSnjallsímar og auto-correctFIFA spillingGrikkland er til sölu á ebayDisney kaupir 20 Century FoxLady Gaga á Super BowSigfried og Roy tígrisdýra árásTop 4 spádómar Donald Trump er forseti USABoson guðeindin og formúlanThe Simpsons sýna hringborð ræða plott um að sleppa Zika Virus á almenningSpádómur um 11 september 2001Hlekkir á annað ítarefni sem er nefnt í þættinum: Listi yfir allar spár í Simpsons25 atriði sem Simpsons hafa spáðSjónarhorn Sviss (hlutlausa fólksins)Hvernig fókus þáttana færist frá prakkaranum Bart yfir til “vitleysingsins” Hómer Góð yfirferð þar sem spádómarnir eru útskýrðir frá sjónarhorni efahyggjufólksKenningin rifin í sig af efasemdarfólkinu á snopes.comReuters með áreiðanleika athugun á fullyrðingunni og spádómunumHvað er forvirk samfélagsforritun og hvernig virkar hún?Matt groening ferðast með lolita express UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.
More Episodes
Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og þetta er allt saman eitt stórt sjónarspil og svikamylla fégráðugra einstaklinga?Ef...
Published 05/31/24
Published 05/31/24
Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta...
Published 05/17/24