Episodes
Published 01/04/24
Published 11/14/23
Published 10/20/23
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Orri er kominn í tvöfalt barneignarleyfi og Joe er að flytja til Kaliforníu svo til að kveðju með einhverju var ákveðið að hlaða í uppgjör á síðustu 10 þáttum þar sem áherslan var á því sem gerðist after dark í miðbæ Reykjavíkur eða heimapartýjum í Hafnafirði og góðir gestir voru fengnir til að kryfja gullaldarárin. Svona var sumarið verður ekki lengra að sinni, við þökkum fyrir hlustunina og sjáusmt vonandi eftir ca ár. Til allra sem...
Published 07/26/22
Published 07/26/22
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS Lárus Orri spilaði í 10 ár í Championship, League 1 og Premir League með Stoke og WBA. Þess utan er hann harðasti Þorpari landsins og fór upp í gegnum yngri flokkanna í sennilega hæfileikaríkasta hópi leikmanna sem þjóðin hefur séð, spilaði 42 A-landsleiki og var næstum því keyptur af Newcastle.
Published 07/10/22
Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Viðar Örn Kjartansson fóru yfir stormasöm ár í neðri hluta Pepsi deildarinnar 2013 hjá Víkingi Ólafsvík og Selfossi.
Published 07/07/22
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Hannes Halldórsson fór á toppinn sem besti markmaður Shellmótsins 94, á botninn þegar hann eyðilagði á sér öxlina 99, aftur á toppinn þegar hann vann MORFÍS þökk sé Dóra DNA sem talaði of lengi og svo aftur á botninn þegar hann kostaði Leiknisljónin hverfishátíð og skrúðgöngu árið 2004. Frá botninum spyrnti hann sér og stoppaði ekki uppflotinu fyrr en ca 16. júní 2018 eins og allir vita. Hannes valdi Draumaliðið sitt eingöngu skipað...
Published 06/30/22
LENGJAN - SJÓVÁ - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Eftir að hafa íhugað það í tvö ár ákváðum við að hleypa lofti út um lúgur(NB - á kolsvörtum rúðum) og gefa South Centralesque rappara sénsinn á að veita okkur fullnægingu í eyrun. Nýtt 5 ára plan er í smíðum á Hlíðarenda og það er lúður klár fyrir þá sem láta röng orð af sinni tungu. Orri fór yfir það þegar hann hægði sér í hnéháa hvönn og upp í Árbæ æfði ungur Selfyssingur tvisvar á dag til að uppfylla drauma sína sem áttu að rætast á...
Published 06/23/22
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINOS Hannes Sig á einhvern ótrúlegasta atvinnumannaferil nokkurs Íslendings sem spannar níu lönd, þám Rússland (að sjálfsögðu sá hluti sem liggur að Tsjetsjeníu) og Kazakhstan þar sem haugur af þekktum leikmönnum, þjálfurum og stjórnarmönnum spila rullu. Í dag er hann svo gerandi magnaða hluti í þýska boltanum sem þjálfari og dósent í knattspyrnufræðum. Gárungarnir jafnvel farnir að tala um hann sem Nýi Prófessorinn en fyrst og fremst er hann...
Published 06/04/22
Baldur Sig gaf in depth skýringar á innkomu Gary Martin í KR, hruni liðsins eftir Verslunarmannahelgina og gæðin í Birni Jónssyni. Alexander Scholz fór yfir tíma sinn á Íslandi eins og þegar amma hans hræddi líftóruna úr Kennie Chopart. Jón Daði rifjaði upp erfitt ár á Selfossi sem þó var gott persónulega og hvernig Hannes Halldórs hefur ekki enn jafnað sig á screamernum sem hann setti í grillið á honum.
Published 05/24/22
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S- SESSION CRAFT BAR Karíókímenningu Íslendinga voru gerð góð skil og enn og aftur gefur Kristmundur Axel út an absolute banger. KRingar fóru í rebrand og 5 ára plan Valsara virtist komið aftur á byrjunarreit. Deildin fékk nýjan villain og það er spurning hvor hendur hefðu ekki átt að koma í handa stað varðandi landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í fótbolta? Breskt raunveruleikasjónvarp átti sér stað á Akranesi, Stjarnan sóttu danskan dreng í Himalaya...
Published 05/23/22
Viðtöl í fullri lengd vegna sumarsins 2011 Pétur Georg Markan fór yfir ástandið í Víkinni ásamt því að svara spurningum um Power of Love og þrennuna í Efra-Breiðholtinu. Atli Sigurjónsson ræddi við okkur um gullkynslóð Þórsara, byr undir báða vængi og bakpokaferðalag sitt með Pall Gísla til Hollands á miðju tímabili. Kjartan Henry fór yfir hina ýmsu hluti á mögnuðu sumri KRinga, ruglaðist reyndar á Gary Martin og Gauja Baldvins en það kemur fyrir á bestu bæjum.
Published 05/02/22
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINOS - SESSION CRAFT BAR Það birtir alltaf til. Við erum að vinna okkur upp úr öskufallinu og hruninu og upprisan hefst með nýjum morgunþætti FM957. Valsmenn henda 5 ára planinu í ruslið eins og hverri annarri kúkableyju og við fáum eina af okkar fyrstu þjáfaratvennum í íslenska boltann. Óskar Hrafn mætti aftur og hlutir gengu nærri honum en hver verður efnilegasti leikmaður mótsins? Ætli það verði ekki einhver KRingurinn? Er þetta eitthvað sem er hægt að halda...
Published 04/28/22
Full length viðtölin við prófessor Ólaf Helga Kristjánsson, Viðar Örn Kjartansson og Arnar Svein Geirsson. Prófessorinn fór yfir allt milli himins og jarðar sem náði ekki að troða öllu í endanlega útgáfu þáttarins Svona var sumarið 2010 en einfaldlega verður að fara í loftið, eins og til að mynda aðdraganda og örlög fjólubláu peysunnar. Of gott material til að henda því í recycle bin og sömuleiðis allt frá Arnari Sveini og VÖK.
Published 04/10/22
LENGJAN - THULE - DOMINOS - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR Við erum enn að jafna okkur á því að hér varð hrun en í staðinn poppar upp a little fella called Eyjafjallajökul sem skilur Hásteinsvöll eftir í 2000cm öskufalli en Eyjamenn hugsa sér gott til glóðarinnar. Það var rifist alltof lengi um hvort hefði verið skemmtilegra á Karamba eða Oliver og við sviptum hulunni af því að hinn íslenski David Beckham er í raun og veru hinn íslenski Rory Delap. Fórum yfir hnefasamlokuna sem var matreidd fyrir...
Published 04/08/22
Hér varð hrun! Myntkörfulán. Icesave. Guð blessi Ísland. Lehman brothers, Hvanndals brothers og Tillen brothers áttu misjöfnu gengi að fagna en hverjir stóðu uppi sem sigurvegarar? Allir og ömmur þeirra voru sendir heim, samningum var rift en í gömlum kústaskáp fannst rykfallna bókin YOUTH by Kaggi Más sem prófessorinn reif blaðsíðu úr. Yohanna kom sá og sigraði enn eitt silfrið í sögu þjóðar og Valsmenn voru staðráðnir í að láta efnahagsástand ekki hafa áhrif á leikmannahópinn sinn. Risinn...
Published 03/17/22