Episodes
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur „Hann hafði oft verið óviðeigandi og maður var búin að heyra sögur þannig maður passaði sig alveg á honum” Segir Katrín Lóa sem tilkynnti kyferðislega áreitni til lögreglu árið 2019. Áreitið átti sér stað á vinnustað af eiganda fyrirtækissins og gekk yfir í eitt og hálft ár. Katrín segir áreitið hafa byrjað eftir að maðurinn hafi lánað henni fimm milljónir sem hún notaði til þess að kaupa sér íbúð.
Published 12/15/22
Published 12/15/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur  Ingibjörg Sædís ólst upp við mikla fátækt þegar hún var yngri. Hún bjó hjá foreldri sem gat ekki unnið vegna andlegrar og líkamlegrar veikinda og var á sama tíma mótfallin því að biðja um aðstoð. Hún segir horfa aðdáunaraugum á fólk sem biður um aðstoð á internetinu fyrir börnin sín og vildi óska að faðir hennar hefði gert það sama.
Published 12/01/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Kefsan kærði Hlal, eiganda Mandi árið 2020 fyrir alvarlega líkamsárás fyrir utan veitingastaðinn Mandi. Í skýrslutökum lýsir hún því hvernig hann hafi kýlt hana í höfuðið, ýtti henni niður stiga og sparkað í hana af miklu afli, þar sem hún lá á gólfinu. Þá ber hún að Hlal hafi í þrjá mánuði áreitt sig og hótað sér á meðan hún leigði herbergi, sem var í eigu hans.
Published 11/25/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur     Soffía Karen var átján ára þegar hún fór heim með strák, sem hélt henni hjá sér í fjóra tíma á meðan hann braut á henni kynferðislega. Hún leitaði strax á bráðarmóttöku og lagði fram kæru stuttu eftir brotið. Gerandinn bað Soffíu afsökunar á því að hafa verið “ógeðslegur” við hana, en þrátt fyrir áverka var málið fellt niður tveimur árum síðar.
Published 11/17/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur   Rakel Hlynsdóttir greindist með geðhvarfasýki 2 eftir að hafa lifað í mörg ár með ómeðhöndlaða geðhvarfasýki. Þegar hún fékk greininguna segir hún það hafa skýrt margt fyrir sér en var sett á röng lyf. Rakel var sett á tvöfaldan hámarksskammt af ADHD lyfjum ásamt lyfjum fyrir geðhvarfasýki, sem endaði með því að hún lagðist inn á bráðamóttöku geðdeildar.
Published 11/10/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Ung kona sem er nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð segir baráttuna og mótmælin í MH hafa hjálpað sér í gegnum kynferðisbrot sem hún varð fyrir árið 2021. Hún segir nafn geranda síns hafa verið skrifað á vegg skólans og í kjölfarið fór hún að fá hótanir frá vinum hans og fjölskyldu.
Published 11/02/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur    Ólafía Gerður bjó með ofbeldisfullum barnsföður sínum í tæp fjögur ár, frá því hún var 16 ára. Barnsfaðir hennar steig nýlega fram í viðtali þar sem hann lýsti sambandinu þeirra sem “stormasömu”. Ólafía segir frá líkamlegu, andlegu, kynferðislegu og stafrænu kynferðisofbeldi sem hún mátti þola á heimilinu. “Hann reyndi að kirkja mig og endar á því að nauðga mér. Þetta er eitt af mínum stærstu minningum sem ennþá daginn í dag, tæpum sex...
Published 10/26/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Magdalena Valdemarsdóttir var föst í ofbeldissambandi í 10 mánuði og segir ofbeldið hafi haldið áfram þrátt fyrir sambandsslit. Alvarlegt ofbeldi á sér stundum stað eftir sambandsslit og það er ekkert sem segir að þegar ofbeldissambandi sé slitið þá sé ofbeldið búið.  TW: Árið 2017 kærði Magdalena barnsföður sinn fyrir tilraun til manndráps. Barnsfaðir hennar fékk 18 mánað fangelsi fyrir húsbrot, eignaspjöll og líkamsárás með því að hafa...
Published 10/21/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur   Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson sem kallar sig Auður, hefur viðurkennt að hafa farið “yfir mörk” í samskiptum við konur. Í Apríl birtist Ísland í dag viðtal við Auðunn þar sem hann sagðist axla ábyrgð á hegðun sem hann taldi særandi og óþægileg. Katla Ómarsdóttir, Ýr Gudjohnsen og Thelma Tryggvadóttir stíga fram og segja Auðunn nota orð sem smætta það ofbeldi sem þær upplifðu.
Published 10/14/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Lovísa Ösp var í sambandi með manni sem beitti hana andlegu, líkamlegu og fjárhagslegu ofbeldi. Hún lýsir því hvernig sjálfsmorðshótanirnar voru hans leið til að koma í veg fyrir að hún færi frá honum. Hann lét hana vita að hann væri vís til þess að myrða hana og hótaði einnig að drepa hana. “Mér fannst ég bara ekki geta lifað án hans og ég hélt að þetta væri eðlilegt”. Lovísa segir manninn hafa passað sig að áverkar hennar væru einungis...
Published 10/11/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Lísbet varð ólétt 19 ára og eignaðist barnið fjórum dögum fyrir útskrift en hún útskrifaðist úr FSu. Hún varð fyrir kynferðisofbeldi sumarið fyrir framahaldsskóla og var með gerandanum í skóla hálfa skólagönguna “Ég þurfti að setja félagslífið mitt á pásu af því að hann var þarna” segir Lísbet í þættinum og segir FSu ekki hafa tekið á málinu og hún hafi þurft að mæta geranda sínum á göngunum. Lísbet var greind með þunglyndi, kvíða og...
Published 09/23/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Martyna Ylfa er frá Póllandi en hefur búið á Íslandi í tíu ár. Martyna var sambandi með íslenskum manni sem beitti hana ofbeldi í langan tíma. Ein þekktasta aðferðin til að ná stjórn í ofbeldissambandi er að brjóta niður makann, þannig að hann treystir ekki sjálfum sér lengur og telji sig ekki verðugan hamingju og heilbrigðari framkomi.  “Mér leið eins og ég hafi hitt sálufélagann minn. Þetta byrjaði mjög hratt og honum fannst allt sem ég...
Published 09/20/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Freyja var 15 ára þegar eldri strákur seldi nektarmyndir af henni sem fóru í dreifingu á svokalla chan-síðu, sem er vettvangur þeirra sem beita stafrænu kynferðisofbeldi á Íslandi.   “Á einhver myndir af Freyju?” Spyr stofnandi þráðsins á síðunni þar sem nektarmyndum af stúlkum allt niður í fermingaraldur er deilt. Í þættinum lýsir Freyja varnarleysinu sem fylgdi því að uppgötva að nektarmyndir af sér væru komnar í dreifingu á netinu án...
Published 09/13/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur “Afhverju fara þær ekki bara?” Það er þessi rómantíska hugmyndin um að konur eigi að elska fram í rauðan dauðann og geti ekki lifað án einhvers. Margar konur koma úr ofbeldissamböndum með skömm yfir því að þetta sé þeim að kenna af því að ofbeldismaðurinn tekur að sér skilgreiningarvaldið segir Sigþrúður Guðmundsdóttir sem var framkvæmdarstýra kvennaathvarfsins í 16 ár. Í þættinum fer Sigþrúður yfir afleiðingar heimilsofbeldis, afhverju...
Published 09/07/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Kristján Ernir Hölluson segir að ofbeldismenning fái að grassera innan stjórnar SÁÁ, en fjöldi manna sem hafa verið ásakaðir um ofbeldi gegn konum voru kosnir í stjórn samtakanna á aðalfundi þann 13. júní.  Kristján Ernir segir að það varpi stórum skugga á stjórnina að þarna séu nokkrir menn sem sitja ennþá eftir í stjórn sem hafa verið sakaðir um ofbeldi gagnvart konum og játað að hafa beitt ofbeldi.  “Málið er að þetta eru samtök sem...
Published 09/02/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur    Gunnar Hersveinn lauk prófi í heimspeki og sálfræði, blaðamennskunámi og hefur stundað meistaranám í kynjafræði. Gunnar er rithöfundur og hefur mikinn áhuga á friðarmenningu, átakamenningu og viðhorfum gagnvart manneskjunni.   Í þættinum ræðum við meðal annars um skala illskunar “Ég er sannfærður um að þetta tengist einhverju valdakerfi. Það er best fyrir valdhafann að flestir hegði sér svipað, það er auðveldara að stjórna þeim og þá...
Published 08/31/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur   “Maður horfir stundum tilbaka og hugsar: hvað er maður með í höndnum eftir 13 ár í atvinnumennsku? fjárhagslega er það ekki neitt en það sem þetta hefur gefið mér fyrir lífið er bara stórkostlegt og ég myndi ekki skipta ferlinum mínum út fyrir neitt.” Segir Sif Atladóttir, sem er 36 ára atvinnukona í knattspyrnu.   Í þættinum talar Sif um andlega partinn af fótboltanum og mikilvægi þess að leikmenn hafi greiðan aðgang að...
Published 08/26/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur   Anna stígur fram og lýsir reynslu sinni af því ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu barnsföður hennar. Anna er frá Úkraínu og segist vilja vekja athygli á því kerfislæga ofbeldi, sem erlendar konur verða fyrir. Takmörkun á aðgengi að nauðsynlegum upplýsingum og vernd gegn ofbeldinu, þegar brotið er á þeim, getur haft alvarlegar og langvarandi áhrif. “Hver átti að vernda mig?” Segir Anna í þættinum og gagnrýnir það að þrátt fyrir...
Published 08/23/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Vorið 2016 óskaði barnaverndarnefnd að lögreglan tæki til rannsóknar langvarandi ætluð kynferðisbrot drengs sem hafði greint sálfræðingi frá kynferðislegum athöfnum með yngri bróðir sínum, við köllum hann Pétur. “þetta var eins og að taka jörðina af bakinu á mér” segir Pétur og bætir við að það hafi verið mikill léttir þegar bróðir hans hafi ákveðið að segja frá kynferðisofbeldinu. Pétur segir frá því að hann hafi verið lagður í mikið...
Published 08/16/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Barnsfaðir Freyju hlaut tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi  í Maí 2020, fyrir tilraun til kynferðislegrar áreitni gegn barni í rituðum samskiptum á Skype. Í Desember 2021 var hann síðan sakaður um að hafa átt samskipti við 14 ára stúlku í gegnum samfélagsmiðla. Hann hafi sótt hana í heimhúsi og frelsisvipt stúlkuna í þrjá klukkutstundir þar sem hann meðal annars nauðgaði henni. Freyja var sjálf þolandi sem barn og segir mál barnsföður...
Published 08/10/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur  Valgerður Kehinde og Jóhanna halda uppi hlaðvarpinu Antirasistarnir ásamt Instagram síðunni. Rasismi er oft hulinn fólki sem finnur ekki fyrir honum á eigin skinni og hvít forréttindi er að mestu leyti ósýnilegt þeim sem hafa það.  “Ég skil ekki þessa menningu á íslandi að fólk megi bara segja og gera hvað sem er og það hefur engar afleiðingar fyrir neitt” Segir Jóhanna um ummæli Sigurðs Inga og bætir við að það sé með ólíkindum að...
Published 08/06/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Hinn 19 ára Gunnar Ingi Ingvarsson, fyrrum nemandi í Víðistaðaskóla opnaði sig um einelti sem hann varð fyrir í grunnskóla. Gunnar segir frá því þegar hann var niðurlægður af stærðfræðikennara í unglingadeild sem gerði grín að þyngd hans fyrir framan aðra nemendur. “Hann skrifar Gunnar 85kg á töfluna og skrifar síðan “fat boy” undir nafnið mitt” segir Gunnar.   “Mér leið eins og ég væri einn í heiminum og ég pældi oft í því að taka bara...
Published 07/28/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Hugfangin af Íslandi eftir 11 ár í Bandaríkjunum: Klara Elíasdóttir tónlistarkona varð ástfangin af Íslandi þegar hún kom heim frá Los Angeles fyrir tæpum tveimur árum eftir að hafa búið ytra í ellefu ár. ,,Mér leið allt í einu eins og ég væri að draga djúpt andann í fyrsta skipti í mörg, mörg ár." Hún segir að Trump hafi breytt Bandaríkjunum til hins verra. Klara talar í þættinum um frægðina, útlitskröfur sem gerðar voru til hennar og...
Published 07/07/22
Patreon hlekkur:  https://www.patreon.com/eiginkonur Lilja Gísladóttir er virk á Instagram og deilir þar mikið af efni tengt sjálfsást og jákvæðri líkamsímynd. “Það kemur alltaf einhver einkaþjálfari eða opinber persóna og hendir því fram að það sé óhollt að vera feitur” segir Lilja í þættinum og bætir við að það sé mikilvægt að minna fólk á að allir feitir eru ekki óheilbrigðir. Í þættinum ræðum við um fitufordóma og hvernig þeir birtast í samfélaginu.
Published 06/28/22