Episodes
Eva Dögg kemur og segir okkur frá sinni fæðingareynslu. Hún á eina dóttir fædda árið 2018 , Hún var í áhættumeðgöngu eftir að hafa fengið blóðtappa í höfuðið 16.ára gömul og segir hún okkur frá meðgöngunni og fæðingunni sem gekk eins og í sögu.
Published 04/16/20
Linda Sjöfn  kemur og segir okkur frá sinni fæðingareynslu.  Hún á eitt barn og hefur gengið í gegnum missi líka þar sem hún endaði í 2 aðgerðum.  Við tölum líka um tengingu föður og barns á meðgöngu og hvernig það er fyrir feðurna að meðtaka það að nýtt líf sé að myndast. Falleg frásögn frá yndislegri stelpu.
Published 04/10/20
Mikil eftirspurn hefur verið eftir því að fá hana Eyrúnu til okkar.  Hún Eyrún Telma kemur og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu.  Þau hjónin voru lengi að reyna en eignuðust svo eineggja tvíbura eftir að hafa farið í tæknifrjógvun hjá Livio.  Við tölum um endrómetríósu, allt Livio ferlið, meðgönguna og fæðinguna. Æðisleg frásögn frá yndislegri móður
Published 03/16/20
Gréta og Ísak koma til okkar í spjall og segja okkur meira frá verkefninu Fæðingarsögur feðra. Við fáum líka að heyra fæðingarsögu frá hlið makans sem var einstaklega skemmtilegt.  Við viljum líka hvetja alla karlmenn að kynna sér þetta og senda sína sögu því þær eru alveg jafn magnaðar
Published 03/09/20
Sexy time! Hún Indíana okkar kemur aftur og í þetta sinn ekki með fæðingarreynslu heldur fræðslu og spjall um allt sem tengist getnaði, kynlífi á meðgöngu og kynlífi eftir fæðingu.  Æðislegt að fá hana aftur til okkar og nú er það bara að finna ástæðu til að lokka hana en aftur
Published 03/02/20
Eydís kemur og segir okkur frá sinni átakanlegri fæðingarreynslu❤ Hún greinist með krabbamein á miðri meðgöngu og segir okkur frá öllu ferlinu og fæðingunni.  Algjör hetja sem lætur ekkert stoppa sig
Published 02/24/20
Anna Eðvaldsdóttir betur þekkt sem Anna ljósa kemur til okkar og  deilir með okkur allskonar fróðleik og svarar spurningum bæði frá okkur og hlustendum. Anna býr yfir margra ára reynslu og þekkingu, hún einnig skrifaði bókina Fyrstu mánuðirnir - Ráðin hennar Önnu ljósu. Hún er alveg hreint yndisleg kona.
Published 02/17/20
Hún Andrea Eyland ofurkona með meiru kemur og segir okkur frá sínum fæðingarreynslum. Hún er 8 barna móðir en sjálf hefur hún gengið með 5 börn og fékk svo 3 bónus börn. Við tókum líka spjall um #raunin, kviknar og líf kviknar en hún er konan bakvið það og við hvetjum allar mæður að kíkja á það!
Published 02/03/20
Kynfræðingurinn Sigga Dögg kemur og segir okkur frá sínum fæðingarreynslum.  Hún er 3 barna móðir og á meðal annars hádramatískan keisara þar sem hún fékk innvortis blæðingu og ekki allt eins og það á að vera að baki. Gjörsamlega magnaðar frásagnir og ennþá magnaðari kona.
Published 01/27/20
Þá er komið að síðasta þættinum okkar í seríu 1.  Þórunn kemur og segir okkur frá sinni fæðingareynslu.  Hún á eina 6 mánaða dóttir sem heitir Urður og gekk allt eins og í sögu, bæði meðganga og fæðing. Hún Þórunn lýsir hríðum  einsog slæmum túrverkjum sannkallað hörkutól. Alltaf gaman að fá að heyra líka jákvæðu og góðu reynslurnar. 
Published 01/13/20
Gleðilegt nýtt ár Dúndur þáttur á nýju ári ! Tinna Freysdóttir á 3 börn með stuttu millibili.  Börnin komu undir fyrstu tilraun á blómadegji, fyrsta barn Tinnu kom með bráðakeisara eftir erfiða fæðingu og  fór hún svo í valkvæðankeisara með seinni tvö. Þriðja barn Tinnu kom óvænt eftir erfiðan missir. Tinna er svo sannarlega gerð til að eignast börn. Svo er hún ótrúlega skemmtileg, fyrirmynd & flott móðir.
Published 01/06/20
Hún Tanja Sól kemur og segir okkur frá sinni reynslu en hún átti yndislega meðgöngu þar til hún fer óvænt af stað komin aðeins 29+5 vikur á leið. Hún fæðir svo drenginn sinn akkúrat á 30. viku. Hún segir okkur frá öllu ferlinu og fyrstu vikunum á Vöku. Mögnuð frásögn mæli með að hlusta. Þvílík hetjumæðgin.
Published 12/16/19
Systurnar Tinna Rún og Kolfinna komu til okkar í spjall og sögðu okkur frá sínum reynslum. Magnað hvað þetta er mismunandi hjá öllum! meirað segja systrum en Tinna Rún fór sjálf af stað komin um 39 vikur en Kolfinna fór í gangsetningu og átti heilum 15 dögum eftir settan dag. Yndislegar systur og við mælum með að hlusta! þið gætuð jafnvel heyrt í leynigesti.
Published 12/09/19
Þá er komið að tíunda þættinum okkar! Irpa Fönn kemur og segir okkur frá sinni reynslu. Hún á tvö börn og upplifði hún meðgöngu og fæðingarþunglyndi á fyrri meðgöngu en þá endaði hún í bráðakeisara eftir að það kom í ljós í miðri fæðingu að strákurinn hennar var að koma skakkur niður. Í seinni meðgöngu fór hún svo í valkvæðan keisara.
Published 12/03/19
Aníta Rún kemur og segir okkur frá sínum fæðingarreynslum. Hún eignaðist 3 börn á 3 árum og mætti segja að líkaminn hennar  væri gerður í það að eignast börn.  Gangsetning, meðgönguþunglyndi og axlarklemma eru aðeins nokkur dæmi sem hún þurfti að glíma við. Magnaðar frásagnir og allt er  gott sem endar vel.
Published 11/19/19
Indíana Rós kemur og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu. Hún er með PCOS og glímir ásamt manninum sínum við ófrjósemi og gengu þau í gegnum missi tvisvar. Þá ákváðu þau að fara til Livio og í glasafrjógvun. Hún útskýrir fyrir okkur hvernig það ferli fer allt fram frá "getnaði" til fæðingar. Ótrúleg og svo falleg frásögn! 
Published 11/12/19
Vera Rut kemur og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu. Hún var með mikinn fæðingarkvíða og segir okkur frá því hvernig hún reyndi að komast í gegnum meðgönguna og að hún hafi reynt ALLT til að koma sér af stað og grátbað einnig um keisara eða gangsetningu en fékk það ekki í gegn. Eftir kaldar móttökur á landsspítalanum ákvað hún að fara á Akranes og fékk þessa yndislegu og hlýju móttöku og fer sjálf af stað og átti drauma fæðingu eftir erfiða meðgöngu.
Published 11/06/19
Arna Ýr kemur og segir okkur frá sinni reynslu, Hún er í doulu námi og dreymir um að vera ljósmóðir þannig hún ákvað að gera þetta alveg sjálf og fá að upplifa allt ferlið deyfingarlaust. Hún var vel undirbúin og tók hverjum verk fagnandi. Mögnuð frásögn!  Jákvæðnin og viljastyrkurinn í þessari mögnuðu stelpu er ótrúlegur!
Published 10/29/19
Guðrún Ósk kemur og segir okkur frá sinni reynslu, hádramatísk reynsla með mikið af inngripum. Vafinn naflastrengur og sjúkrabíll til Reykjavíkur en allt er gott sem endar vel.
Published 10/21/19
Telma Rut er 26 ára 3 barna móðir og kemur og segir okkur frá sínum reynslum. 3 fæðingar og allar mismunandi, ein gangsetning, ein mjög hröð og svo ein í baði þar sem dóttir hennar fæddist í sigurkufli
Published 10/14/19
Nú er komið að hinum þáttarstjórnanda okkar henni Söru Björk að segja frá sínum fæðingarreynslum.  Langdregin gangsetning komin 15 daga frameftir og svo hröð draumafæðing. Ps. við afsökum orðbragðið í þessum þætti við gleymdum okkur aðeins í innlifuninni. 
Published 10/08/19
Annar þáttarstjórnandinn okkar hún Viktoría Ósk segir okkur frá sinni fæðingarreynslu.  2 mismunandi fæðingar, ein tangarfæðing og svo draumafæðing eftir erfiða reynslu.
Published 10/01/19
Anna Dögg kemur í fyrsta þátt og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu.  Hún á tvö börn og  átti í bæði skiptin á Landspítalanum deyfingarlaus, í fyrra skiptið vissu þau ekki kynið en svo gafst hún upp á óvissunni í seinna skiptið.
Published 09/27/19