Episodes
Published 04/26/21
Sóley Rún kemur og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu.  Hún á 8 mánaða son hann Lúkas sem fæddist í Danmörku.  Sóley og maki hennar voru búin að fara í tæknifrjógvun sem heppnaðist ekki en svo verður Sóley loksins ólétt eftir að vera búin að reyna lengi. Meðgangan gekk vel fyrir sig en Covid setti sitt strik á meðgönguna og fæðinguna en Sóley missti skyndilega vatnið og fór af stað í virka fæðingu í Danmörku og mamma hennar sem ætlaði að vera viðstödd fæðinguna ennþá á Íslandi.  Við tölum...
Published 04/26/21
Tanja Sól var að eignast annað barnið sitt hana 3 mánaða Ernu Rún. Hlustendur kannast kannski við hana en hún kom til okkar 2019 þegar hún eignaðist son sinn hann Emil á 30 viku.  Þessi meðganga gekk ekki áfallalaust heldur en í 20 vikna skoðun kom í ljós að leghálsinn væri nánast fullstyttur og mjúkur og þurfti hún að láta sauma fyrir leghálsinn til að halda gullinu sínu inni.
Published 04/01/21
Þórunn kemur til okkar og segir frá sinni fæðingarreynslu. Við tölum um erfiðleikana sem fylgja getnaði en Þórunn og unnusti hennar voru búin að vera lengi að reyna og kom svo í ljós að eftir mörg ár á pillunni að hún fékk ekki lengur sinn mánaðarlega tíðahring. Við ræðum um það hvernig það er að vera ólétt á Covid tímum og svo förum við yfir fæðinguna en Þórunn átti algjöra drauma heimafæðingu. Einlæg og falleg frásögn frá yndislegri stelpu. 
Published 03/04/21
Yrja er 3 barna móðir, markþjálfi, uppeldisfræðingur, með diplómu í jákvæðri sálfræði og djákni. Við ræðum allt milli himins og jarðar ásamt því að fara yfir allar 3 meðgöngurnar og fæðingarnar. Fæðingarnar voru misjafnar en á fyrstu meðgöngunni var Yrja búsett í Danmörku og átti þar og í seinni 2 meðgöngunum var hún heppin að ná á spítalann. Æðislegt spjall við frábæra móður. Þessi þáttur er í samstarfi með Alvogen Ísland og HIPP.
Published 02/18/21
Harpa kemur til okkar og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu.  Hún á hálfs árs gamla tvíbura  sem hún átti í Þýskalandi þar sem þau eru búsett. Við ræðum um meðgönguna en hún var á Íslandi, Danmörku og Þýskalandi í mæðraverndinni og ræðum við um hvernig það er að fæða annar staðar í heiminum og tungumálaerfiðleikana sem því fylgja. Falleg og einlæg frásögn frá yndislegri móðir.
Published 02/04/21
Halldóra Fanney kemur til okkar og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu.  Hún á einn strák hann tveggja ára Tryggva Stein. Þau hjónin fóru í glasafrjógvun og ræðum við um það ferli, meðgönguna og fæðinguna en gekk eins og draumur þangað til að það kom að því að fæða  fylgjuna en því fylgdi erfiðleikar.  Svo ræðum við  um fyrstu vikurnar eftir fæðinguna en Tryggvi Steinn greinist með CAH þegar hann var nokkura vikna og tölum við um sjúkdóminn líka. Falleg og einlæg frásögn frá yndislegri móður.
Published 01/25/21
Hilda kemur til okkar og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu en hún á 2 að baki. Hún átti í fyrra skiptið á Landspítalanum þar sem hún þurfti sýklalyf í æð í fæðingunni og ákvað svo að eiga heima í seinna skiptið. Í báðum fæðingunum notaði hún haföndun til að koma sér í gegnum verkina. Skemmtileg frásögn frá magnaðri móður.
Published 01/05/21
Fanney kemur og segir okkur sína fæðingareynslu. Hún á 8 vikna son hann Matthías Hauk sem kom öllum heldur betur á óvart en alla meðgönguna var Fanney sagt að hún gengi með stelpu. En það var ekki það eina sem kom á óvart, falleg frásögn frá yndislegri einstæðri móður. þessi þáttur er í samstarfi með Alvogen, Blush og HIPP
Published 12/16/20
NÝR ÞÁTTUR
Published 11/28/20
Gréta kemur til okkar og segir okkur frá sinni fæðingareynslu.  Hún er komin 35 vikur á fimmtu meðgöngu sinni en hún hefur upplifað missi þrisvar á mismunandi tímum og á eina stelpu hana Veru.  Við ræðum um missana og hvernig fæðingin hennar með Veru gekk. Einlæg og falleg frásögn frá yndislegri móður.
Published 11/16/20
Sunneva Sól kemur og segir okkur frá sinni fæðingareynslu. Hún á 2 mánaða son hann Anton Elí. Barneignarferlið hefur ekki verið dans á rósum hjá Sunnevu þrátt fyrir ungan aldur en hún hefur gengið í gegnum missi 2 og greinist svo með Covid á miðri meðgöngu. Við ræðum þetta allt saman og fæðinguna í þættinum, falleg og einlæg frásögn frá yndislegri stelpu.
Published 11/09/20
Gerður kemur til okkar í þessum extra langa þætti og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu. Hún á einn son hann Hektor sem er orðin 11.ára gamall  og átti hún hann á Akranesi. Við ræðum um meðgönguna, fæðinguna og sængurleguna. Svo förum við alveg út fyrir topic og ræðum um fullt af skemmtilegum og fræðandi aukahlutum! Við skemmtum okkur konunglega í tökum og er Gerður klárlega móðir sem margir mættu taka sér til fyrirmyndar - - Þessi þáttur er i samstarfi með Alvogen, Blush.is og Hipp
Published 10/26/20
Elín Rut kemur og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu. Hún á 2 börn sem hún átti bæði heima hjá sér. Við tölum um báðar meðgöngunar en þær voru mjög misjafnar, báðar fæðingarnar, en þar sem hún var heima að fæða bara með ljósmæður hjá sér er engin deyfing í boði og gengu fæðingarnar ekki áfallalaust fyrir sig og er magnað að heyra þessar frásagnir. Svo ræðum við um fyrstu dagana og hvernig það er að vera bara heima allan tímann. Ótrúlega falleg og skemmtileg frásögn frá magnaðri...
Published 10/19/20
Íris kemur og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu. Hún á eina dóttir hana Eriku Sól. Við ræðum um meðgönguna sem gekk ágætlega þrátt fyrir Covid bylgju, fæðinguna en þau ákváðu að eiga Eriku á Akranesi. Við ræðum líka um fyrstu vikurnar en Íris ákvað að hætta með Eriku á brjósti og ræðir það og léttirinn sem því fylgdi. Þátturinn er í boði Hulan.is , Blush & Alvogen.
Published 10/12/20
Margrét Kemur og segir okkur frá sinni fæðingareynslu en hún á einn 8 mánaða son hann Elías Dag.  Eftir að hafa haldið að hún gæti ekki eignast börn kom það henni heldur betur á óvart þegar hún fattaði að hún væri ólétt, við ræðum um meðgönguna og hvernig það er að upplifa meðgöngu eftir að hafa barist við lystarstol, fæðinguna og fyrstu vikurnar eftir að hún átti, Falleg, einlæg og hreinskilin frásögn frá yndislegri stelpu með höfuðið á réttum stað. Þessi þáttur er í samstarfi með Alvogen...
Published 09/30/20
Hildur kemur og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu. Hún á eina 5 og hálfs árs gamla stelpu sem fæddist 8 vikum fyrir tíman. Hildur er með blóðsjúkdóm sem veldur því að blóðið hennar storknar ekki nógu hratt og förum við yfir hvernig það hafði áhrif á meðgönguna og svo fæðinguna, en hún endaði í bráðakeisara á 32 viku. Falleg frásögn frá yndislegri stelpu sem leyfir engu að stela gleðinni frá sér. Þátturinn er í boði Alvogen . 
Published 09/24/20
Alma Glóð er einstök 24 ára móðir sem eignaðst son sinn fyrr á þessu ári með gjafasæði. Hún segir okkur frá öllu ferlinu, hvernig hún valdi sæði  og  frá uppsetningunni en hún fór fram í Kenya eftir að Alma hafi verið með hálfan fótinn þar síðustu ár.  Svo förum við yfir meðgönguna og fæðinguna en það gekk bæði eins og í sögu. Yndisleg og einlæg frásögn frá magnaðri konu sem lætur ekkert stoppa sig.
Published 09/17/20
Elísabet kemur og segir okkur frá sinni fæðingareynslu. Hún eignaðist son sinn í fyrstu Covid bylgjunni og segir okkur frá því hvernig var að ganga með og fæða barn á óvissutímum í heiminum. Meðgangan gekk vel fyrir sig og fæðingin líka þangað til það kom að rembingnum og endaði hún á að þurfa vera klippt. Einlæg og falleg frásögn frá yndislegri stelpu Þessi þáttur er í samstarfi með Alvogen 
Published 09/03/20
Sara Linneth kemur til okkar og segir okkur frá sinni fæðingareynslu.  Hún á einn strák hann Björgin Úlf sem er 6.mánaða.  Sara var gangsett vegna gallstasa og segir okkur frá meðgöngunni, greiningarferlinu og svo gangsetningunni sem gekk ekki áreynslulaust. Falleg frásögn frá yndislegri móður . Þessi þáttur er í samstarfi með Alvogen
Published 08/26/20
Aníta ofurkona kemur og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu & fyrsta ári hetjunnar sinnar henni Aldísi Emblu, þær mæðgur eru svo sannarlega búnar að upplifa margt saman og eiga svo fallegt samband. Aldís Embla er í hópnum Einstök börn. Við spjöllum um mikilvægi starf hópsins fyrir foreldra og börn. Við hvetjum hlustendur að styrkja gott...
Published 07/23/20
Bóel kemur og segir okkur frá sinni fæðingareynslu. Hún á 2 börn þegar þetta er skrifað en hún eignaðist sitt annað barn stuttu eftir að við tókum upp þáttinn. Fæðingasagan sem hún segir okkur frá er af dóttir hennar sem fæddist 2017 en í 20 vikna sónar kom í ljós að hún væri með skarð í vör. Við tölum um fæðinguna og hvað tekur við eftir fæðingu. Við óskum henni innilega til hamingju með viðbótina í fjölskylduna
Published 06/25/20
Steinunn Ósk kemur og segir okkur frá sinni fæðingareynslu. Hún á 8 ára tvíbura stráka og er ólétt af sínu 3 barni. Við tölum um fæðinguna hjá tvíburunum en hún átti þá í gegnum fæðingarveg og spjöllum um framhaldið á meðgöngunni núna og hvað margt hefur breyst síðan hún var ólétt fyrir um 9 árum. Yndisleg stelpa og skemmtileg frásögn. 
Published 06/10/20
Svava Björk kemur og segir okkur frá sinni fæðingarreynslu.  Hún á eina dóttir og átti hún frábæra meðgöngu og fæðingu en hún notaði jóga og haföndun sem hún lærði hjá Auði í jógasetrinu á meðgöngunni og segir okkur frá því hversu vel það nýttist henni í fæðingunni sjálfri, mögnuð frásögn.
Published 05/12/20
Gestný Rós kemur og segir okkur frá sínum fæðingarsögum.  Hún á sjálf 4 börn og segir okkur frá yndislega sambandi sínu með elstu dóttir sinni sem systir hennar gekk með, átakanlegri reynslu sinni að fæða andvana engilinn sinn og fæðingum báða drengjanna sinna. Við viljum sérstaklega þakka henni Gestný fyrir að koma og deila sinni reynslu með okkur, en það þurfti mikinn kjark og er hún algjör hetja
Published 04/21/20