Félagsskapur þeirra sem segja sögur af sorginni, sársaukafullar sögur sveipaðar harmi en líka grátbroslegar sögur sem láta þig hlæja þegar þú átt síst von á því. Gunnar Smári Jóhannesson er þáttastjóri og fer hann ítarlega í saumana á sinni sorg ásamt því að fá til sín nýjan gest í hverjum þætti sem deilir sínum reynslusögum. Við bendum á að hópurinn sem kemur að gerð þessara þátta er einnig með leiksýningu í Tjarnarbíói. Ef þér líkar við þáttinn hvetjum við þig til að kaupa miða! Ljúfsár og sprenghlægileg sýning um húmorinn í harminum. LEIKSÝNING:
Recent Episodes
Gesturinn að þessu sinni er bæjarfulltrúinn og stjórnmálakonan Brynja Dan Gunnarsdóttir sem deilir með okkur sögu sinni, en áður en við heyrum í henni förum við vestur til Tálknafjarðar á æskuslóðir Gunnars. Við höldum áfram þar sem frá var horfið um fjölskylduna í græna húsinu og heyrum viðtal...
Published 03/25/24
Laugardagurinn 23. janúar 1999 og þorrablótsgestir hlæja, drekka og skemmta sér óviðbúnir þeim skelfilegu tíðindum sem senn munu berast… Við förum aftur í tímann með Gunnari og Aroni Mola er þeir fara yfir þau áföll sem mótuðu þá.
Published 03/03/24