Episodes
Published 04/11/24
Ljósmyndasýningin Augnablik árið 1985, var líkt og heróp til íslenskra kvenna um að þora að stökkva fram í sviðsljósið og sýna að þær væru jafn góðir ljósmyndarar og karlmenn. Meira en 20 konur sýndu ljósmyndir í Nýlistasafninu og þarna ægði saman verkum mjög ólíkra ljósmyndar.  Jóhanna Ólafsdóttir, Svala Sigurleifsdóttir og Valdís Óskarsdóttir voru í fararbroddi en þarna sýndu líka fullt  af ljósmyndurum sem áttu langan ferl eða sumar sem hurfu alveg af radarnum. Besta bransasaga ársins...
Published 04/11/24
Janis Joplin gaf ekki út nema 4 plötur á sínum stutta ferli og þar af tvær sem bara söngkonan í hljómsveitinni Big Brother and the Holding Company. Við erum enn að hlusta á þessar plötur, 53 árum eftir andlát hennar, jafn heilluð af þessari mögnuðu, tilfinningaþrungnu rödd. En fyrir innan harða skelina var viðkvæm manneskja sem þráði ást og viðurkenningu og að gera foreldra sína stolta en því miður þá gekk það ekki alltaf upp hjá henni.
Published 04/03/24
Edith Tudor-Hart var ljósmyndari sem barðist fyrir félagslegu réttlæti og jöfnuði. Hún flúði frá heimalandi sínu, Austurríki þegar nasistar komust til valda og átti framtíðina fyrir sér sem ljósmyndari í Bretlandi.  En líf þessarar konu var vægast sagt óvenjulegt og ljósmyndaferilinn fór hálfvegis í vaskinn því Edith lifði tvöföldu lífi og var um tíma elt á röndum af Bresku leyniþjónustunni.  Í dag eru margir ákafir í að vita meira um æfi þessarar hugsjónakonu og verk hennar á sviði...
Published 03/28/24
Í 40 ár hefur Madonna setið í sínu hásæti sem drottning popptónlistarinnar. Madonna er alls staðar; í sjónvarpi, í útvarpi, á forsíðum tímarita og jafnvel í bókabúðum. Hún er sérfræðingur í að halda sjálfri sér í umræðunni. Æðið í kring um Madonnu var eitthvað sem hafði ekki sést síðan á tímum Bítlanna og allan þennan tíma hefur hún náð að feta þessa mjóu línu á milli þess að vera trendy og commercial.
Published 03/20/24
Myndir þú fara inni í búr og girðingar með dýrunum í dýragarði til að ná góðum ljósmyndum? Líklegast ekki.  En þetta og meira til gerði hin ungverska  Ylla (Camilla Koffler) sem sérhæfði sig í ljósmyndun dýra og hlaut verulega frægð sem slíkur  ljósmyndari snemma á 20. öld.  Meðan aðrir í faginu notuðu myndavélina til að berjast gegn ranglæti og kúgun fasista eða gerðust súríalistar þá notaði Ylla myndavélina til að færa sig eins langt inn í heim dýra og hún komst. Myndir hennar voru gæddar...
Published 03/13/24
Enginn í sögu skemmtanabransans hefur átt viðlíka feril og Cher.  Hún var unglingapoppstjarna, sjónvarpsþáttastjórnandi, tískuicon, rokkstjarna, poppsöngkona, discodíva og vinsælt umfjöllunarefni fjölmiðla í áratugi. Hún hefur selt yfir 100 milljón eintök af plötum á heimsvísu og er ein af þeim fáu sem hefur unnið Emmy, Grammy og Óskarsverðlaun.
Published 03/06/24
Síðhærð frumbyggjakona af Seri ætt  gengur í eyðilegu landslagi með kassettutæki í hendi og á öðrum stað löngu seinna fer Zapotec kona á markað bæjarins með  fjölmargar eðlur á höfðinu.  Þetta eru tvær frægar ljósmyndir sem Graciela Iturbide færði okkur frá heimalandi sínu Mexíkó.  Graciela lagði sig fram um að mynda samfélög frumbyggja í Mexíkó og oftar en ekki var það veröld kvenna sem heillaði hana. Sú stóra sorg í lífi hennar þegar dóttir hennar deyr aðeins 6 ára gömul, var hvati fyrir...
Published 02/28/24
Hún hafði verið fyrirsæta fyrir Chanel, Elle og Vogue , leikið fyrir Fellini og Andy Warhol, sungið með The Velvet Underground og gert sólóplötur sem taldar eru fyrirmynd goth hljómsveita 9. áratugarins. Hún hitti alla og þekkti alla en glataði öllu og dó ein á sjúkrahúsi á Ibiza þar sem starfsfólkið sá hana bara sem enn einn dópistann að enda sitt ömurlega líf.   Dramatískari getur æfi einnar manneskju varla verið en æfi Nico var.
Published 02/21/24
Kúrekar á ótemjum og draumsýnin um villta vestrið dró yfirstéttarstelpuna Louise L. Serpa út í það að ljósmynda rodeó sýningar. Hún hóf ferilinn seint og lærði aldrei ljósmyndun en náði 48 árum í bransanum og varð eitt þekktasta andlit ródeóljósmyndara Bandaríkjanna.   Hún er ein af þessum konu sem braut múra. Í hennar tilfelli varð hún fyrst kvenna til að fara inn á sjálfan rodeóvöllinn að mynda; þetta var árið 1963. Sama ár trakðaði naut á henni en þessi tveggja barna einstæða móðir lét það...
Published 02/14/24
Polly Jean Harvey er sveitastelpa frá  Dorset á suður-Englandi. Hún fór í listanám en ekki í tónlist heldur í höggmynda- og leirlist. Tónlistin var bara skemmtilegt hobbý til að byrja með. En meira en 30 árum og 10 plötum og ótal öðrum tónlistarverkefnum seinna er PJ Harvey enn að. Markmiðin eru enn jafn háleit og þrjóskan við að endurtaka sig aldrei er enn til staðar. Hún hefði aldrei enst í AC/DC
Published 02/07/24
Smávaxin ung frönsk kona með fléttur í hárinu, glænýja Leicu um hálsinn og 200 dollara í vasanum keypti sér, árið 1966 flug til Víetnam aðra leið til að byrja þar feril sinn sem stríðsfréttaljósmyndari. Flestir héldu að annað hvort gæfist hún upp eða væri dauð áður en árið væri liðið.   Þetta var Catherine Leroy. Stríðið í Víetnam breytti henni fyrir lífstíð og hún átti einstakan og langan feril  sem stríðsfréttaljósmyndari. Catherine var með það á heilanum að verða fyrsta konan til að góma...
Published 01/31/24
Adele skaust upp á stjörnuhimininn aðeins 19 ára gömul meða samnefndri plötu.  Það er eitthvað við lögin hennar sem náði að höfða til milljóna manna út um allan heim og hún hafði söngrödd sem fékk fólk til að fá gæsahúð við að hlusta. Þó að hún sé bara a 35 ára og hafi aðeins gefið út 4 sólóplötur þá er hún með söluhæstu tónlistarmönnum í heimi hafandi selt yfir 120 milljón eintök af þessum 4 plötum sínum á heimsvísu. Eitthvað sem hún hefur örugglega ekki séð fyrir í sínum allra villtustu...
Published 01/24/24
Norsku ljósmyndararnir Marie Høeg og Bolette Berg pökkuðu vandalega niður þeim glerplötum sem sýndu hluta af viðkvæmu einkalífinu og merktu sem „privat“. Þær voru lífsförunautar, ráku saman ljósmyndastofu og útgáfufyrirtæki og börðust fyrir bættum kjörum kvenna um aldamótin 1900. Frægð þeirra sem ljósmyndarar er hins vegar tilkomin vegna þess að litla leyni myndasafnið þeirra fannst óvænt í hlöðunni á sveitasetrinu þeirra löngu eftir þeirra daga. Það sem þótti tabú þá þykir í dag fremur...
Published 01/17/24
Cyndi Lauper varð stórstjarna strax með sinni fyrstu plötu og litagleði og skrautlegt útlit var hennar vörumerki. En svo er eins og hún hverfi af sjónarsviðinu nokkrum árum seinna en við komumst að því að hún hafði alls ekki sest í helgan stein, langt því frá. Hún finnur fjölina sína á Broadway þar sem hún semur tónlistina við söngleikinn Kinky Boots sem rakaði inn verðlaunum og hún fer að gera plötur þar sem tónlistarstefnan var bara það sem hana langaði að gera á hverjum tíma og spreytti...
Published 01/10/24
Spænski ljósmyndarinn Cristina Garcia Rodero tók ekkert mark á því þegar fólk sagði að hún myndi fljótt gefast upp þegar hún lagði af stað um sveitir landsins til að mynda hina undarlegustu trúarsiði og hefðir.  Verkefnið tók hana 15 ára og bókin hennar „Hidden Spain“ sem kom út árið 1989, er enn í dag hennar frægasta verk. Kuflklæddir þorpsbúar, lifandi fólk í líkkistu og dvergar sem taka þátt nautaati eru meðal þess sem hún fangar í mynd.  Og hún er enn að þvælast um heiminn og ljósmynda.
Published 01/03/24
Það eru skiptar skoðanir um það hvenær sé ásættanlegt að byrja að spila jólalög en það ætti að vera óhætt núna þegar komið er fram í aðventu. Við spilum nokkur vel valin jólalög, öll sungin af konum auðvitað, segjum aðeins frá þeim og nokkrar góðar sögur fá að fylgja með. Og að sjálfsögðu kemur litla Ísland líka við sögu í þættinum að mis góðu tilefni þó.
Published 12/13/23
Í þætti vikunnar fer Linda all hressilega út af sporinu í efnisvalinu.Hér eru engar ljósmyndakonur en nokkur vel valin lög (að henni fannst) fá að fljóta með. Lolla vissi ekkert um hvað þátturinn fjallaði fyrr en hún ýtti á Rec og Linda byrjaði að lesa. Það má deila um það hversu hrifin hún var þegar sannleikurinn kom í ljós.
Published 12/06/23
Lady Gaga hefur átt alveg magnaðan feril, ekki bara sem tónlistarkona og trendsetter heldur líka sem leikkona. Hún fór frá því að vinna sem gogo dansari á sveittum rokk klúbbum í New York yfir í að verða ein áhrifamesta tónlistarkona seinustu 15 ára og syngja bæði danstónlist, ofurballöður og jazz og gera það allt frábærlega vel.
Published 11/29/23
Glaðværð og litadýrð einkenndi auglýsingamyndir hinnar finnsku Claire Aho sem myndaði Marimekko fatnað við fæðingu þess fræga vörumerkis.  Claire fæddist inn í bransann og var ekki há í loftinu þegar hún fékk að fara með pabba sínum og frænda í kvikmyndaleiðangra til Lapplands. Seinna varð hún hluti af hinu þekkta kvikmyndafyrirtæki fjölskyldunnar, Aho&Soldan og varð svo fræg fyrir að vera  eina konan sem kvikmyndaði Ólympíuleikana í Finnlandi árið 1952.  Hún var þrælsnjöll kona með...
Published 11/22/23
Katy Perry átti frekar óhefðbundið uppeldi þar sem báðir foreldrar hennar voru ofsatrúaðir predikarar. Hún feta þó ekki í fótspor þeirra heldur eltir tónlistardraumana þó það gangi mjög brösuglega til að byrja með og hefðu einhverjir örugglega bara gefist upp og farið heim. Og þolinmæðin borgaði sig því á endanum fær hún bæði konungsríkið og prinsinn sjálfan
Published 11/15/23
Sem barn lærði hún að nöfnin á öllum stjörnunum og átti froska og slöngur sem gæludýr. Þegar hún fullorðnast sást hún gjarnan utan á háhýsum stórborga með myndavélina með sér.   Þetta var hin bandaríska Margaret Bourke-White sem varð stríðsfréttaljósmyndari í seinni heimstyrjöldinni og vann fyrir tímaritin „Fortune“  og „Life“. Hún varð heimsfræg fyrir bæði frábærar myndir og einstakt hugrekki og heppni.
Published 11/08/23
Dolly Parton er goðsögn í lifanda lífi.  Hún braust ung úr sárri fátækt í Tennessee og varð ekki bara ein af ríkustu konum Hollywood á tímabili heldur stórstjarna í heimi tónlistar og gríðarlega afkastamikill lagahöfundur. Og þrátt fyrir að vera orðin rúmlega sjötug þá lætur hún engan bilbug á sér finna og hennar 49. sólóplata er væntanleg næuna í þessum mánuði þar sem fjöldinn allur af heimsþekktum tónlistarmönnum er þess heiðurs aðnjótandi að fá að syngja eða spila með henni.
Published 11/01/23
Karimeh Abbud fangaði í ljósmyndum sínum Palestínu fyrir seinni heimstyrjöld og samfélagið sem leystist upp í kjölfar Nakba - hörmunganna miklu.  Hún var fyrsti kvenkyns ljósmyndari Palestínu og mögulega fyrsta palestínska konan til að keyra sinn eigin bíl. Í dag eru myndir hennar mikilvæg söguleg heimild um horfinn tíma.
Published 10/25/23
Kim Gordon ætlaði sér aldrei að verða tónlistarkona.  Hún fór í listaháskóla og stefndi á feril í myndlist eða sviðslistum en örlögin höguðu því þannig að fólk sem hún hittir á námsárunum og stuttu eftir það var margt í einhverju tónlistar- og hljómsveitastússi og áður en hún veit af er hún bæði farin að syngja og spila á bassa í mjög framúrstefnulegu rokkbandi.
Published 10/18/23