Fósturbarnið og kynfjölskyldan
Listen now
Description
Í þessum fimmta þætti hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur, Maja og Hildur um fósturbarnið og kynfjölskylduna. Þau ræða fyrstu kynni við fósturbarnið og það hvenær barnið flytur svo inn. Einnig velta þau fyrir sér hvenær og hvernig má tilkynna að nýtt barn sé komið inn á heimilið. Þá velta þau upp spurningunni hvort allir fósturforeldrar passi við öll fósturbörn?  Félagsráðgjafar spila stórt hlutverk í lífi fósturbarna og oft í lífi fósturfjölskyldunnar. Félagsráðgjafinn er oft mikilvægasti hlekkurinn til að deila sögu barnsins og að veita nýrri fjölskyldu skilning og stuðning sem barnið þarf. Hvernig verður sambandið við þetta fólk og hvernig tengja börnin þau við sitt líf?  Þau Gulli, Hildur og Maja ræða einnig umgengni við kynforeldra fósturbarna og fara yfir áhrifin sem það getur haft, bæði á barnið og þau sjálf sem aðal umönnunaraðila og sérfræðinga í lífi barnsins. Hvernig líður barninu og hvaða áhrif hefur það á fjölskyldulífið?  Hvað gerist svo þegar barnið verður 18 ára? Hér getur þú fylgst með starfi Félags fósturforeldra og sent inn spurningar: https://www.facebook.com/fosturforeldrar https://www.fostur.is/ [email protected] Hlaðvarpið er tekið upp og hljóðblandað í stúdíó @Lubbi Peace Keflavík. Ingi Þór Ingibergsson samdi stef hlaðvarpsins. 
More Episodes
Published 03/31/22
Í sjötta og síðasta þætti fyrstu seríu hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur og Anna Steinunn um Félag fósturforeldra. Þau sitja bæði í stjórn félagsins og þekkja félagið orðið vel. Nýverið fór félagið í stefnumótunarvinnu í takt við ákall meðlimi félagsins og breyttar aðstæður...
Published 03/31/22
Í þætti dagsins spjalla Maja, Gulli og Hildur um áskoranirnar sem fylgja því að taka barn í fóstur. Áskoranirnar geta verið margar og í þættinum velta þau fyrir sér nokkrum sem eru oft áberandi. Þau ræða m.a. um fordóma sem fósturfjölskyldur og fósturbörn geta orðið fyrir. Fordóma varðandi það...
Published 03/17/22