Félag fósturforeldra
Listen now
Description
Í sjötta og síðasta þætti fyrstu seríu hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur og Anna Steinunn um Félag fósturforeldra. Þau sitja bæði í stjórn félagsins og þekkja félagið orðið vel. Nýverið fór félagið í stefnumótunarvinnu í takt við ákall meðlimi félagsins og breyttar aðstæður fósturbarna. Þar er framtíðarsýn félagsmanna björt og margt sem vilji er til að breyta og bæta sem styður enn betur við fósturfjölskyldur. Jafningjafræðsla og kaffihúsahittingar eru mikilvægir liðir í fræðslu félagsmanna. Árlegur fræðslufundur félagsins hefur verið mjög mikilvægur og er hann yfirleitt að hausti og vel sóttur.  Gulli og Anna Steinunn hvetja öll sem eru áhugasöm um að taka börn í fóstur að skrá sig í félagið áður en barn er komið inn á heimilið.  Áhugasöm eru hvött til að kynna sér starf félagsins og senda inn spurningar ef eitthvað er óljóst.  Hér getur þú fylgst með starfi Félags fósturforeldra og sent inn spurningar: https://www.facebook.com/fosturforeldrar https://www.fostur.is/ [email protected] Hlaðvarpið er tekið upp og hljóðblandað í stúdíó @Lubbi Peace Keflavík. Ingi Þór Ingibergsson samdi stef hlaðvarpsins. 
More Episodes
Published 03/31/22
Í þessum fimmta þætti hlaðvarpsins Fósturfjölskyldur ræða þau Guðlaugur, Maja og Hildur um fósturbarnið og kynfjölskylduna. Þau ræða fyrstu kynni við fósturbarnið og það hvenær barnið flytur svo inn. Einnig velta þau fyrir sér hvenær og hvernig má tilkynna að nýtt barn sé komið inn á heimilið. Þá...
Published 03/24/22
Í þætti dagsins spjalla Maja, Gulli og Hildur um áskoranirnar sem fylgja því að taka barn í fóstur. Áskoranirnar geta verið margar og í þættinum velta þau fyrir sér nokkrum sem eru oft áberandi. Þau ræða m.a. um fordóma sem fósturfjölskyldur og fósturbörn geta orðið fyrir. Fordóma varðandi það...
Published 03/17/22