Episodes
Jahá, það eru aldeilis fréttir úr hlaðvarpsgerðarturninum. Þær stöllur, Lóa og Móa opna dyr inn í framtíðina en skilja eftir rifu inn í fortíðina. Völva frú Barnabys spáir fyrir þeim í tarot sem og framtíð allra hlustenda: Keisarinn, sól, tungl og dularfullar dökkhærðar konur koma við sögu. Upptökustjórinn mundar svipuna og setur sterkan svip á þennan þátt sem er sá síðasti í bili.
Published 01/06/23
Besta Jólahlaðvarp allra tíma! hlustið og verið glöð!
Published 12/14/22
Já, þið heyrðuð rétt, þær eru komnar aftur: Drottningar hlaðvarpsgerðar á Íslandi. Eftir margra mánaða langa þögn koma þær Lóa og Móa með nýja seríu. Og af nógu er að taka, jarðarför aldarinnar, krúnan, samsæriskenningar aðdáenda Frú Barnaby eru meðal umræðuefna. Við þökkum jafnframt áhugasömum aðdáendum fyrir orðsendingar, hvísl og hnipp. Örvæntið eigi, við erum komnar úr fríinu!
Published 11/14/22
Lóa og Móa eru mættar í Kanínuholuna til að taka upp síðasta þátt seríunnar. Þær eru í sumarskapi með sumarmjöð í glasi og ræða það sem er efst á baugi þessa daganna svo sem félagskap sinn í aðdáendahópi Barnaby, sveppir, mýs og morgunfrúr. Leynigestur laumast inn með rúv-passa um hálsinn og leggur orð í bauk. Þetta hefur verið lærdómsrík sería og þær stöllur eru spenntar að halda inn í sumarið með gott veganesti frá garðgúrúinum Monty Don. Gleðilegt sumar og heyrumst síðar. Móa og Lóa
Published 06/10/22
Frú Barnaby fékk til sín góðan gest frá fyrirheitna landinu, en það er hann Aron Már Ingham Grímsson. Aron leiðir okkur í sannleika um menningarheim Midsomer, en við spjöllum saman um blásíldina og gamla breta. Nú Aron segir okkur einnig frá lystisemdum breskrar matargerðar sem hefur oft á tíðum verið vanmetin í gegnum tíðina. Lóa og Móa hlusta á átekta og bíða spenntar eftir heimsfrægðinni sem mun fylgja því að frúin gerist alþjóðleg, en þátturinn er á ensku að þessu sinni!
Published 04/12/22
Þá er komið að því! Stöllurnar sívinsælu láta loks í sér heyra eftir annasamar vikur. Afmælishátíðarhöld, vídeókvöld og hámhorf hafa verið í forgangi. En nú er danskortið autt og þær Móa og Lóa gefa sér tíma til að skeggræða þetta alltsaman fyrir ykkur til að njóta. Díönuhornið er í forgrunni í þessum þætti en einnig taka þær fyrir Borgartúnsþættina geysivinsælu og svo fá garðyrkjugullfræin og galdrabaunirnar að fljúga inn á milli. 
Published 04/06/22
Marglyttan og ansjósan brjótast út úr heilaþokunni hressari enn nokkru sinni fyrr, enda er afmælismánuður Frú Barnaby genginn í garð. Hátíðarhöld eru margvísleg, en þau hefjast á einkaþotuflugi. Fyrsti áfangastaður er húðflúrstofa, annar er heimili Kardashian fjölskyldunnar en ferðinni lýkur með lúxuslúr meðan vinir og vandamenn reiða fram veitingar.
Published 03/16/22
Fimmtugasti og fyrsti þátturinn af þessu bulli - gjörið svo vel!
Published 02/24/22
Móa og Lóa eru mættar í júbíleum hátíðarhöld drottningarinnar Jónu - sem slær upp konunglegri veislu. Veitingarnar eru ekki af verri endanum en við nýtum tækifærið til þess að smakka nýja Royal búðinginn og kveða upp dóm. Margt ber á góma, bókaútgáfa, söfnunarárátta, starfsumhverfi myndlistarmanna - og engar áhyggjur, það er slúðrað! Nú Jóna hvetur hlustendur til vera þau sjálf, gera það sem þau vilja, gefa út bók, tala íslensku og heilsast með sleik.
Published 02/08/22
Upp komst um hlaðvarpsnjósnir handritshöfunda Midsomer þáttanna þegar tvær miðaldra áhugakonur um galdra og hlaðvarpsþáttagerð skutu upp kollinum í nýjasta þætti Herra Barnaby. Nú við Lóa og Móa látum þetta ekki á okkur fá né hinar ýmsu veirur sem herja á okkur. Hins vegar tökum við á öllum helstu deilumálum samtímans og reynum að gera okkur upp skoðanir á þeim. Veigarnar eru af dýrari kantinum hér í stúdíóinu, verst er þó að sleepy time teið virðist hafa svæft þáttastjórnendur í beinni...
Published 02/02/22
Enn og aftur rís frú Barnaby eins og fönix úr ösku og fagnar nú fyrsta þætti fimmtu seríu - hverjum hefði dottið það í hug? Lóa og Móa eru komnar í spádómssokkana og segja okkur hvað næsta ár hefur upp á að bjóða. Þær lesa í Tarot-spilin, ræða pláguna margrómuðu, cocoa-puffs og íslenska sumarbústaðinn í Afríku. Stormurinn blæs fyrir utan stúdíó barnaby og lægðin leggst yfir þær stöllur eins morðóður flóðhestur. 
Published 01/21/22
Nú er sko aldeilis handagangur í öskjunni, en þær Lóa og Móa eru ekki í stúdíó Barnaby í þessum þætti. Því þær stöllur eru búnar að binda á sig svunturnar og hella sér í hálfmánagerð. Í þessum lokaþætti seríunnar ber margt á góma á meðan þær baka vandræðin; Bítlarnir, umhverfisvænar jólagjafir, ímynduð Afríska hálfmánaverksmiðja, ömmur og langömmur. Mitt í öllu jólastressinu, er gott að setjast niður, baka í rólegheitunum og dreypa á öli. 
Published 12/21/21
Jólaenglarnir Lóa og Móa eru mættar á jólalínuna og eru með lausnir við öllum ykkar jólavandamálum. Þær veigra sér ekki við að leita til sérfræðinga og fá einn slíkan, heiðursjólasveinninn, Arnar Eggert Thoroddsen sem veitir okkur og hlustendum ráðgjöf hvað varðar afþreyingu yfir jólahátíðarnar. Margt ber á góma hjá þríeykinu; Boney M, Elf, bransinn og majónes. Félagsfræðingurinn sötrar malt og appelsín, setur upp Barnaby gleraugun og greinir jólahefðirnar í öreindir. Um leið uppljóstrar hann...
Published 12/07/21
Í þessum fyrsta aðventuþætti sitja vinkonurnar Lóa og Móa ekki auðum höndum. Þær eru vopnaðar rúmfóbæklingi, vír, skærum og límbyssu því jú það er komið að föndurstund. Þær ræða þess á milli sögulegt jólaföndur og dónalegar piparkökur sem búa í rykugum piparkökuhúsum. Díönuhornið sígilda er á sínum stað en fjölskyldan er auðvitað alltaf við sama heygarðshornið þarna suðurfrá. Síðast en ekki síst opna þær fyrir svokallaða Jóla-línu, þar sem hlustendur geta sent inn jólatengd vandamál sem þær...
Published 11/30/21
Galvaskar og undirbúnar hlaðvarpsgerðarkonur eru mættar hér í stúdíó Barnaby. Í hlaðvarpinu þar sem allt er hugsað og ekkert er sagt taka orðin þó að streyma stríðum straumum og umfjöllunarefnin eru hneykslanleg: fordómar, framhjáhöld, kvenfyrirlitning og nektarsumarbúðir fyrir fólk sem vill vera í fötum. Nú svo fara heilasellurnar aldeilis á flug þegar þær stöllur sjá fyrir sér að ríkisvæða klámbransann eins og hann leggur sig. Við skulum ekki gleyma að rót alls ills er árans kapítalisminn...
Published 11/23/21
Þær Lóa og Móa eru glaðar í bragði eftir Lóu-samlokuþátt síðustu viku. Í þessum þætti búa þær meðal annars til ný verðlaun, MLóbelinn, sem þær veita óhikað. Þær vinda sér síðan í mál líðandi stundar, mál sem er á allra vörum þessa dagana: Netflix -jólamyndirnar, Smjattpattarnir, breisku konunar sem við sjáum aldrei í sjónvarpinu. Að lokum taka þær þrefalt Díönuhorn í kók og fara yfir mál Mako fyrrum prinsessu Japana, Kako systur hennar og almúgamannsins Kei Komuro. Skammdegisdrunginn er svo...
Published 11/16/21
Þær Lóa og Móa hella upp á konunglegt te því gest ber að garði, Lóa Hjálmtýsdóttir nokkur, listamaður og rithöfundur. Í þættinum fáiði að vera fluga á vegg í hinu skemmtilegasta teboði þar sem tekið er á stóru málunum og litlu hlutunum. Lóa segir okkur frá söfnunaráráttu, æskuminningum, sjónvarpsþáttum og ótrúlegum tilviljunum lífsins. Móa kemur út úr skápnum sem eltihrellir en Lóa lætur sér hvergi bregða því hún hefur migið í saltan sjó. Tveimur klukkutímum og einum mandarínukassa síðar er...
Published 11/09/21
Þjóðháttasafn framtíðarinnar hefur leitað til Frú Barnaby og biður hana um að lýsa fornum heimi, árdaga Skeifunnar, fegurð Grensásvegar og æskustundirnar á Pizzahúsinu. Móa og Lóa fara yfir stóru málin, á að fara í ljós fyrir ballið, er tungumálið þrungið merkingu neindarinnar, nú svo ræða þær kynlíf eldri borgara, senda feðraveldinu fingurinn og finna lykt af fortíðinni. Já það er ofsögum sagt en það vill vera!
Published 10/26/21
Lóa og Móa taka við gesti í stúdíóinu og það er engin önnur en menningarmógúllinn og stjórnandinn Auður Jörundsdóttir, boss lady. Hún er okkur í Frú Barnaby vel kunnug sem einn af okkar helstu aðdáendum. Auður leiðir okkur í gegnum líf "menningar-verkamannsins", skoska fortíð og svo koma við sögu ævintýragjarnir kettir á Hólum í Hjaltadal. Ásamt öllu helsta slúðrinu úr myndlistarheiminum. Í Díönuhorninu ræðum við síðan Spencerbrúðkaup og axlarmeiðsl. Et voilà!
Published 10/12/21
Það er haust, Móa og Lóa eru staddar í matjurtagarði á vegum reykjavíkurborgar - það heyrist þrusk, kjökur og illkvitnislegur hlátur í fjarska. Þetta er einfalt mál að leysa - sökudólgar eru fleiri en einn. Með Barnaby gleraugunum fáið þið innlit í veruleika grænmetisbænda, kvenna í atvinnulífinu, kaupendur lífrænna afurða og ævintýralega exótískt dýralíf á Langanesi. Síðast en ekki síst ræður frúin í drauma í gegnum kosmískan naflastreng til móðurlífsins.
Published 10/05/21
Loksins eru þær Lóa og Móa mættar til leiks fyrir enn eina seríu af Frú Barnaby - vinsælasta hlaðvarp á Íslandi og þó víðar væri leitað. Þær stöllur veigra ekki fyrir sér að hlaupa upp og niður í húsakynnum hinnar virðulegu fjölskyldu Grantham og skoða þar alla króka og kima. Eitthvað ber skuggaleg fortíð Lóu á góma og Móa játar á sig háskalegan fíknisjúkdóm sem tók yfir líf hennar um tíma. Það er aldeilis upp á þeim typpið!
Published 09/28/21
Stjörnurnar röðuðust óvænt upp í fullkomna röð og hið ótrúlega gerðist - Frú Lóa birtist í gættinni; Tene norðursins, illgresi suðursins - vöxtur, rækt og órækt, aldargömul brúðarterta. Vinkonurnar færa ykkur hér á silfurfati sérstakan sumarsmell um leið og þær hita upp fyrir fjórðu þáttaröð. Og nei þær Lóa og Móa hafa sko engu gleymt hvort sem það er í kokteiladrykkju eða slúðri!
Published 08/19/21
Það er komið að endalokum seríu þrjú, þær Lóa og Móa renna hýru auga til sumarsins og velta því upp hvort þessi endalok séu í raun upphaf. Græðlingar, kímblöð, eitruð karlmennska, kynlífsróbót og sjúkdómar í eikartrjám koma við sögu á meðan þær sötra pina colada undir sólhlíf á ímyndaðri strönd. Þær stöllur fara í tímaflakk og skoða sjálfa sig eftir 10 ár í hlaðvarpsbransanum, breiskleiki, Gísli Marteinn og húmorsleysi hefur þá orðið á vegi þeirra og eitthvað orðið þunnt í vináttunni. En...
Published 05/18/21