Guð-spjall, 27. þáttur: Er allt hégómi? Eða bara röng þýðing? Og hver er ávinningurinn af stritinu?
Listen now
Description
Predikarinn mætir með sínar þekktustu setningar. Allt er hégómi, aumasti hégómi - eða hvað? Við köfum í það og kíkjum svo á aðra texta næsta sunnudags. "Hver er ávinningurinn?" er etv. hin sameiginlegi þráður en svörin misjöfn. Já, og svo er hann Páll postuli eitthvað að tala um skít. Svona kemur margt á óvart þegar kafað er í texta.  Textar dagsins: Lexía: Préd 1.1-10 Orð prédikarans, sonar Davíðs, konungs í Jerúsalem. Aumasti hégómi, segir prédikarinn, aumasti hégómi, allt er hégómi. Hvaða gagn hefur maðurinn af öllu erfiði sínu sem hann streitist við undir sólinni? Ein kynslóð fer, önnur kemur en jörðin stendur að eilífu. Og sólin rennur upp og sólin gengur undir og hraðar sér aftur til samastaðar síns þar sem hún rennur upp. Vindurinn gengur til suðurs og snýr sér til norðurs, hann snýr sér og snýr sér og hringsnýst á nýjan leik. Allar ár renna í sjóinn en sjórinn fyllist ekki. Þangað sem árnar renna munu þær ávallt renna. Allt er sístritandi, enginn maður fær því með orðum lýst, augað verður aldrei satt af að sjá og eyrað verður aldrei mett af að heyra. Það sem hefur verið mun verða og það sem gerst hefur mun enn gerast og ekkert er nýtt undir sólinni. Sé nokkuð til er um verði sagt: Þetta er nýtt, þá hefur það orðið fyrir löngu, fyrir okkar tíma. Pistill: Fil 3.7-14 En það sem var mér ávinningur met ég nú vera tjón sakir Krists. Já, meira að segja met ég allt vera tjón hjá þeim yfirburðum að þekkja Krist Jesú, Drottin minn. Sakir hans hef ég misst allt og met það sem sorp til þess að ég geti áunnið Krist og reynst vera í honum, ekki sakir eigin réttlætis, sem fæst af hlýðni við lögmálið, heldur sakir þess sem trúin á Krist gefur, réttlætið frá Guði með trúnni. – Ég vil þekkja Krist og kraft upprisu hans, ég vil þjást með honum og líkjast honum í dauða hans. Mætti mér auðnast að ná til upprisunnar frá dauðum. Ekki er svo að ég hafi þegar náð því eða sé þegar fullkominn. En ég keppi eftir því ef ég skyldi geta höndlað það, með því að ég er höndlaður af Kristi Jesú. Systkin, ekki tel ég sjálfan mig enn hafa höndlað það. En eitt geri ég. Ég gleymi því sem að baki er en seilist eftir því sem fram undan er og keppi þannig að markinu, til verðlaunanna á himnum, sem Guð hefur í Kristi kallað okkur til. Guðspjall: Matt 19.27-30 Þá sagði Pétur við hann: „Við yfirgáfum allt og fylgdum þér. Hvað munum við hljóta?“ Jesús sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur: Þegar Guð hefur endurnýjað allt og Mannssonurinn situr í dýrðarhásæti sínu munuð þið, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels. Og hver sem hefur yfirgefið heimili, bræður eða systur, föður eða móður, börn eða akra sakir nafns míns, mun fá allt hundraðfalt aftur og öðlast eilíft líf. En margir hinir fyrstu verða síðastir og hinir síðustu fyrstir.“
More Episodes
Spjallað um atburði kyrruviku frá ýmsum sjónarhornum. 
Published 04/15/22
Published 04/15/22
Þarf alltaf að vera vín? Brúðkaupið í Kana getur verið erfitt að skilja ef áfengismagnið truflar okkur. Hvað var Jesús að fara með þessu? Og tengist þessi saga Bakkusarátrúnaði? Var Jesús dónalegur við mömmu sína? Og hvaða Guð er það sem við sjáum bara hnakkann á? Þetta og fleira og fleira til...
Published 01/14/22