Bænabók Jesú og Boney M
Listen now
Description
Hér er farið vítt og breytt um Sálmana, bænabókarinnar sem Jesús þekkti. Við skoðum orð og þýðingar, merkingar, hugsanarím og harma og lítum að eins á tengsl þeirra við þekkta þætti í menningu og málfari. Útgangspunkturinn er Sálmur 102 sem hér er birtur:  Bæn hrjáðs manns þá er hann örmagnast og úthellir harmi sínum fyrir augliti Drottins. Drottinn, heyr þú bæn mína, hróp mitt berist til þín. Byrg eigi auglit þitt fyrir mér þegar ég er í nauðum staddur, hneig eyra þitt að mér, svara mér skjótt þegar ég kalla. Dagar mínir líða hjá sem reykur og bein mín brenna sem í eldi, hjarta mitt er mornað og þornað sem gras því að ég gleymi að eta brauð mitt. Af kveinstöfum mínum er ég sem skinin bein. Ég líkist pelíkana í eyðimörkinni, er eins og ugla í eyðirúst, ég ligg andvaka, líkist einmana fugli á þaki. Fjandmenn mínir smána mig liðlangan daginn; þeir sem hamast gegn mér nota nafn mitt til formælinga. Já, ég neyti ösku sem brauðs, blanda drykk minn tárum vegna reiði þinnar og bræði því að þú hófst mig upp og varpaðir mér aftur til jarðar. Dagar mínir eru sem síðdegisskuggi og ég visna sem gras. En þú, Drottinn, ríkir að eilífu og þín er minnst frá kyni til kyns. Þú munt rísa upp, sýna Síon miskunn því að nú er tími til kominn að líkna henni, já, stundin er runnin upp. Því að þjónar þínir elska steina Síonar og harma yfir rústum hennar. Þá munu þjóðirnar óttast nafn Drottins og allir konungar jarðarinnar dýrð þína því að Drottinn byggir upp Síon og birtist í dýrð sinni. Hann gefur gaum að bæn hinna allslausu og hafnar ekki bæn þeirra. Þetta skal skráð fyrir komandi kynslóð og þjóð, sem enn er ekki sköpuð, skal lofa Drottin. Drottinn lítur niður frá sinni heilögu hæð, horfir frá himni til jarðar til að heyra andvörp bandingja og leysa börn dauðans, til að kunngjöra nafn Drottins á Síon og lofa hann í Jerúsalem þegar þjóðir safnast þar saman og konungsríki til að þjóna Drottni. Hann bugaði kraft minn á miðri ævi, fækkaði ævidögum mínum. Ég segi: „Guð minn, sviptu mér ekki burt á miðri ævi því að ár þín vara frá kyni til kyns.“ Í öndverðu grundvallaðir þú jörðina og himinninn er verk handa þinna; þau munu líða undir lok en þú varir, þau munu fyrnast sem fat, þú leggur þau frá þér sem klæði og þau hverfa en þú ert hinn sami og ár þín fá engan enda. Börn þjóna þinna munu búa óhult og niðjar þeirra standa stöðugir fyrir augliti þínu.
More Episodes
Spjallað um atburði kyrruviku frá ýmsum sjónarhornum. 
Published 04/15/22
Published 04/15/22
Þarf alltaf að vera vín? Brúðkaupið í Kana getur verið erfitt að skilja ef áfengismagnið truflar okkur. Hvað var Jesús að fara með þessu? Og tengist þessi saga Bakkusarátrúnaði? Var Jesús dónalegur við mömmu sína? Og hvaða Guð er það sem við sjáum bara hnakkann á? Þetta og fleira og fleira til...
Published 01/14/22