Blanda #19 Kristjana Vigdís um Þrautseigju og mikilvægi íslenskrar tungu
Listen now
Description
Í þessum þætti af Blöndu ræðir Kristjana Vigdís Ingvadóttir sagnfræðingur um Þrautseigju og mikilvægi íslenskrar tungu. Hún ræðir um tungumálið frá ýmsum áhugaverðu sjónarhornum, hvort alltaf hafi verið öruggt að íslenskan héldi velli og ástæður þess að svo fór. Eins setur hún stöðu íslenskunnar í fortíð í samhengi við stöðu hennar í samtímanum og jafnvel í framtíðinni. Kristjana Vigdís hefur verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bók sína Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar tungu sem Sögufélag gefur út.
More Episodes
Lífshlaupið er leikur sem stendur yfir milli fyrirtækja og einstaklinga í febrúarmánuði. Þetta ár, 2022, er engin undantekning frá fyrri árum og má því segja að hér sé um að ræða árlegan viðburð. Aðalsteinn Sigurgeirsson lítur á lífshlaupið frá nýju sjónarhorni þar sem skógur spilar heldur betur...
Published 02/21/22
Í þessum þætti af Blöndu spjallar Davíð Ólafsson sagnfræðingur um efni nýju bókarinnar hans sem heitir Frá degi til dags og er 27. bindið í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Umræðuefnið er í aðra röndina eðli og umfang dagbókaritunar á Íslandi um tveggja alda skeið, frá 1720 til...
Published 02/21/22