Episodes
Í þessum þætti af Blöndu ræðir Kristjana Vigdís Ingvadóttir sagnfræðingur um Þrautseigju og mikilvægi íslenskrar tungu. Hún ræðir um tungumálið frá ýmsum áhugaverðu sjónarhornum, hvort alltaf hafi verið öruggt að íslenskan héldi velli og ástæður þess að svo fór. Eins setur hún stöðu íslenskunnar í fortíð í samhengi við stöðu hennar í samtímanum og jafnvel í framtíðinni. Kristjana Vigdís hefur verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bók sína Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar...
Published 03/09/22
Lífshlaupið er leikur sem stendur yfir milli fyrirtækja og einstaklinga í febrúarmánuði. Þetta ár, 2022, er engin undantekning frá fyrri árum og má því segja að hér sé um að ræða árlegan viðburð. Aðalsteinn Sigurgeirsson lítur á lífshlaupið frá nýju sjónarhorni þar sem skógur spilar heldur betur mikla rullu. Með ritrýndum heimildum sýnir hann fram á ágæti skóga í umhverfi manna og hvernig heilsuefling getur eflt líkama, sál og skóg.
Published 02/21/22
Í þessum þætti af Blöndu spjallar Davíð Ólafsson sagnfræðingur um efni nýju bókarinnar hans sem heitir Frá degi til dags og er 27. bindið í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar. Umræðuefnið er í aðra röndina eðli og umfang dagbókaritunar á Íslandi um tveggja alda skeið, frá 1720 til 1920 og hins vegar allar þær raddir alþýðufólks sem heyrst hafa í skrifum sagnfræðinga frá því um 1970. Þróun sagnfræðinnar, eðli hennar og tilgangur er heldur hvergi langt undan. Bókin kom út hjá...
Published 02/21/22
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Hauk Ingvarsson um nýja bók hans, Fulltrúi þess besta í bandarískri menningu. Haustið 1955 sótti bandaríski rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn William Faulkner Íslendinga heim. Kalda stríðið var í algleymingi og íslenska þjóðin klofin í afstöðu sinni til herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli. Faulkner var eindreginn talsmaður stórveldisins í vestri en fangaði hugi og hjörtu Íslendinga þvert á flokkslínur, sósíalistar lýstu honum sem fulltrúa þess besta í...
Published 12/02/21
Markús Þórhallsson ræðir við Pál Björnsson um nýja bók hans, Ættarnöfn á Íslandi: Átök um þjóðararf og ímyndir. Er það einstæður íslenskur þjóðararfur að kenna barn til föður eða móður eða íhaldssemi og fornaldardýrkun? Eru ættarnöfn erlend sníkjumenning sem grefur undan íslensku máli? Í bókinni er rakin saga deilna um ættarnöfn á Íslandi allt frá 19. öld og hvernig þær tengjast sögulegri þróun, svo sem myndun þéttbýlis, uppgangi þjóðernishreyfinga, hernámi Íslands og auknum áhrifum kvenna.
Published 11/19/21
Markús Þórhallsson ræðir við Má Jónsson um Galdur og guðlast. Galdramál 17. aldar eru óhugnanlegur vitnisburður um refsihörku yfirvalda sem á sextíu árum létu brenna eina konu og tuttugu og einn karl á báli. Í þessu tveggja binda verki eru teknir saman allir tiltækir dómar og bréf sem vörðuðu ákæru eða orðróm um galdra á árabilinu 1576-1772. Már Jónsson prófessor bjó til útgáfu og ritar inngang.
Published 11/02/21
Bændaskógrækt hófst í Reykhúsum árið 1983 og rann svo inn í Norðurlandsskóga. Plantað var samkvæmt áætlun skógarráðgjafa, langmest lerki fyrst og svo furu eftir ástandi og gæðum jarðvegs og gróðurs. Engu birki var plantað þar sem nokkuð var um sjálfsáið birki sem fór að verða áberandi eftir að landið var friðað fyrir sauðfjárbeit.
Published 11/01/21
Nú er haustið mætt í allri sinni dýrð og eins og boðað hafði verið fara strákarnir yfir fyrri reynslu sína af Októberfest í Munchen. Þá er farið yfir jólabjórana aðeins, gott grín á kostnað strákanna og jólahlaðborðs strategíur. Í þessum þætti er smakkað: Paulaner Oktoberfest Bier  Litla Brugghúsið Keilir IPA  Veður fyrir leður Hoppy Pils nr. C30  The Brothers Brewery Dirty Julie IPA  Býkúpudrottning honey soured ale
Published 10/18/21
Þessi þáttur hefst á óvenjulegum slóðum þegar Lite markaðinum á Íslandi eru gerð smávægileg skil. Þá er farið um víða völl og allskyns smakkað meðan piltarnir velta vöngum yfir lífi og tilveru.
Published 10/15/21
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Þorstein Vilhjálmsson um grein hans, Betra fólk: Tengsl takmarkana barneigna og mannkynbóta í íslenskri orðræðu 1923-1938, sem birtist í vorhefti Sögu 2021. Í greininni er fjallað um hugmyndir um getnaðarvarnir í mannkynbóta skyni frá fyrstu skrifum Guðmundar Hannessonar, í læknablaðið 1923, þar til slíkt ratar í íslenska löggjöf á síðari hluta fjórða áratugarins. Við sögu koma menntamenn sem flytja inn erlenda hugmyndafræði, menntakonur sem standa að útgáfu...
Published 10/04/21
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir frá Vinstri grænum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
Published 09/20/21
Axel Sigurðsson frá Viðreisn situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
Published 09/20/21
Guðmundur Auðunsson frá Sósíalistaflokknum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
Published 09/20/21
Haraldur Benediktsson frá Sjálfstæðisflokknum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
Published 09/20/21
Valgarður Lyngdal Jónsson frá Samfylkingunni situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
Published 09/20/21
Magnús Norðdahl frá Pírötum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
Published 09/20/21
Erna Bjarnadóttir frá Miðflokknum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
Published 09/20/21
Guðmundur Franklín Jónsson frá Frjálslynda lýðræðisflokknum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
Published 09/20/21
Sigurður Ingi Jóhannsson frá Framsóknarflokknum situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
Published 09/20/21
Ásta Lóa Þórsdóttir frá Flokki Fólksins situr fyrir svörum um landbúnaðarmál í aðdraganda Alþingiskosninga 2021.
Published 09/20/21
Bruggvarpið snýr aftur.  Strákarnir setjast aftur við míkrafóninn og röfla eins og þeim einum er lagið. Í þessum þætti er farið aðeins yfir kosningarnar framundan. Höskuldur veltir því fyrir sér með hvaða leiðtoga stjórnmálaflokkanna hann myndi vilja fá sér bjór, með dyggir aðstoð Stefáns. Þá er forystuféð aðeins dregið í dilka með hvaða bjóra þeir eru paraðir við. Svo ræða þeir piltar að sjálfsögðu daginn og veginn og snerta aðeins á netverslunum. Í þessum þætti er smakkað: Garðskagi...
Published 09/17/21
Einar Kári Jóhannsson ræðir við Jón Karl Helgason, prófessor í íslensku, um bók hans Ódáinsakur: Helgifesta þjóðardýrlinga sem kom út hjá Sögufélagi árið 2013. Jón ræðir íslenska þjóðardýrlinga, á borð við Jónas Hallgrímsson, Jón Sigurðsson og Halldór Laxness, hvernig þeir fengu þetta hlutverk, hvað það þýðir og hvernig það hefur þróast. Einnig tengir hann sögu þeirra við aðra þjóðardýrlinga í Evrópu og segir frá alþjóðlegu samstarfsverkefnum á þessu sviði. Nýlega var greinasafn um þetta...
Published 08/20/21
Baunin jarðhneta er efni þessa þáttar af Flórunni. Plantan er stórmerkileg fyrir margra hluta sakir og hefur víðtæka notkunarmöguleika. Vilmundur og Guðrún Hulda miðla ýmsum mismerkilegum fróðleik um sögu þessarar plöntu, ræktun hennar og notkun.
Published 07/23/21
Möguleikarnir á meiri kornrækt á Íslandi eru umtalsverðir, en enn sem komið ræktun við bara brot af heildarneyslu landsins. Í þessum þætti af Fæðuöryggi ræðir Guðrún Hulda við Hrannar Smára Hilmarsson tilraunastjóra í jarðrækt hjá Landbúnaðarháskóla Íslands um stöðu og horfur í kornrækt á Íslandi. Spjalla þau m.a. um mikilvægi plöntukynbóta, styrkjaumhverfi landbúnaðarrannsókna, kornverkefni sem eru í gangi og bígerð og hvað þarf til að auka framleiðslu korns hér á landi.
Published 07/13/21