Episodes
Raðnauðgari herjaði á Lynnwood og svæðin í kring árið 2008 en þegar fórnarlambið fór til lögreglu með sína sögu þá var hún talin vera að ljúga þessu. Marie missti allt það litla sem hún átti í kringum sig og var það ekki fyrr en að sambærileg mál komu upp á öðrum stöðum sem lögreglan fór að skoða þetta nánar - þó ekki lögregludeildin í Lynnwood.  Samfélagsmiðlar:  www.instagram.com/launrad 
Published 04/04/24
Dr. John Schneeberger var mjög virtur læknir í Kanada sem átti fallega fjölskyldu og gengu hlutir vel hjá honum, mjög vel þar til að hann var ásakaður um nauðgun. Ekki var hægt að fá samsvörun á DNA sýninu hans við það sem tekið var úr fórnarlambinu og því var ákæran felld niður, en fórnarlambið hélt áfram baráttu sinni að sanna hvað Dr. John hefði gert.  Fylgdu Launráð á samfélagsmiðlum:  www.instagram.com/launrad 
Published 03/04/24
Published 03/04/24
Skotárásin í Sandy Hook skólanum átti sér stað í desember árið 2012, þegar Adam Lanza gekk inn með nokkur skotvopn og skaut alls 26 kennara og nemendur til bana. Skotárásin hefur verið mikið gagnrýnd og samsæriskenningar hafa hlaðist upp er varðar raunveruleikagildi hennar. Átti hún sér stað eða var þetta allt sviðsett til þess að rýmka byssulögjöfina?    Fylgdu Launráð á instagram:  www.instagram.com/launrad 
Published 03/09/23
Er það löglegt að hvetja til sjálfsvígs í Bandaríkjunum? Hvað ef það er gert í gegnum netið? Fjallað er um mál Nadiu og Mark og hverjar afleiðingarnar eru af því, að hjálpa fólki við að binda enda á líf sitt, einungis með orðum.  TRIGGER WARNING - Í þættinum er fjallað um sjálfsvíg   www.instagram.com/launrad 
Published 11/15/22
Published 05/18/22
Eitt febrúarkvöld árið 1994 hringir kærasti Gloriu í neyðarlínuna og biður um sjúkrabíl þar sem kærasta hans var að þjást af mikilli ógleði og átti erfitt með andardrátt. Þegar hún mætti á spítalann, byrjaði starfsfólkið hvert á fætur öðru að veikjast skyndilega. Sumir féllu í yfirlið á meðan aðrir fengu mæði og þurftu að víkja út úr herberginu.  Það átti eftir að reynast rannsóknaraðilum erfitt að finna orsök veikinda starfsfólksins, en með tímanum fundu þeir niðurstöðu sem þeir voru sáttir...
Published 05/12/22
Armin Meiwes var þýskur tölvuviðgerðarmaður. Hann hafði búið með móður sinni mest alla ævi eftir að faðir hans yfirgaf hann, sem setti ákveðið hol í hjartað hans. Hans draumur var því að snæða sér á mannakjöti, í von um að einmannaleikinn myndi batna þar sem sá aðili myndi sameinast honum. Að borða mannakjöt er ekki ólöglegt í Þýskalandi, svo hvernig dæmir maður slíkt athæfi til refsingar? 
Published 01/26/22
Nicholas Barclay var 13 ára þegar hann hvarf sporlaust eftir að hafa verið að spila körfubolta með vinum sínum árið 1994. Það var ekki fyrr en þremur árum síðar, sem lögreglan í San Antonio fékk símtal um að Nicholas væri fundinn heill á húfi í litlu hverfi á Spáni. Hann hafði verið pyntaður og þvingaður í mannsal um allan heim, og fór lögreglan strax í að rannsaka það hver hefði rænt honum og flogið með hann til Evrópu. Á meðan þeirri rannsókn stóð var margt annað sem vakti athygli...
Published 12/16/21
Við köfum ofan í eitt undarlegasta og dularfyllsta mál Ástralíu, þegar Tromp fjölskyldan hvarf skyndilega árið 2016. Þessi fimm manna fjölskylda skildi eftir sig vegabréf, ökuskírteini, kreditkort, farsíma og allar persónulegar eigur, og hélt af stað í nokkurra kílómetra ferðalag. 
Published 08/25/21