Heilsumoli. Langar þig að bæta heilsuna en veist ekki hvar þú átt að byrja? Þjónusta í boði
Listen now
Description
Langar þig að bæta heilsuna en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja eða vantar þig bara smá spark í rassinn til þess að komast af stað í átt að betri heilsu? Þá er heilsumarkþjálfun eitthvað fyrir þig. HeilsuErla býður upp á einkatíma, fyrirlestra&ráðgjöf á vinnustöðum og skemmtilega vinnustofu. Heilsumarkþjálfun- einkatími Markmiðasetning- heilsan í fyrsta sæti.  60 mínútna tími þar sem við setjum í sameiningu heilsutengd markmið, bæði skammtíma og langtíma markmið. Ég býð upp á Heilsumarkþjálfun í Sjúkraþjálfuninni í Sporthúsinu á miðvikudögum. Hægt er að bóka tíma með því að hringja í 564-4067 eða senda tölvupóst á [email protected]. Fyrirlestrar- Með lífið í lúkunum Í boði eru fyrirlestrar um ýmis heilsutengd málefni á borð við svefn, hreyfingu, næringu, öndun, streitu, markmiðasetningu og margt fleira. Hægt er að óska eftir fyrirlestrum um ákveðið efni eða allan pakkann.  Ráðgjöf- Leggðu daglega inn í heilsubankann. Hægt er að óska eftir hópráðgjöf um heildræna heilsu, hvernig auka má lífsgæði með breyttum lífsstílsvenjum og hvernig á að setja sér raunhæf markmið að langvarandi árangri og bættri heilsu. Vinnustofur- Heilsutengd markmiðasetning Skemmtilegur valkostur. Fræðsla, verkefni og umræður. Stuttur fyrirlestur og verkefnavinna þar sem gerð eru heilsutengd verkefni sem miða að því kenna þátttakendum hagnýta færni og hugmyndir til þess að bera ábyrgð á og bæta eigin heilsu. Góð byrjun á þínu heilsuferðalagi. ATH! næsta vinnustofa verður 22.febrúar. Nánari upplýsingar og skráning hér: https://forms.gle/ftd87EbnjRvui5cLA Ekki gleyma að fylgja HeilsuErlu á Instagram
More Episodes
Þátturinn er í boði Nettó og UnbrokenÍ þættinum ræðir Erla við Jónu Á. Gísladóttur rithöfund, markþjálfa og móður um foreldrahlutverkið, einhverfu, mikilvægi þess að foreldrar barna með sérþarfir gleymi ekki að sinna sjálfum sér og sambandinu og muni eftir því að huga að líkamlegri og andlegri...
Published 06/13/24
Í þættinum ræðir Erla við Önnu Mörtu Ásgeirsdóttur frumkvöðul, eiginkonu, móður og stjúpmóður um mótbyr og meðbyr í lífinu, vinnusemi, lesblindu, mikilvægi hreyfingar, hvernig á að næra sig fallega, andvana fæðingar vegna gallstasa, sorgina sem fylgdi og mikilvægi þess að hugsa um heilsuna. Anna...
Published 06/06/24
Published 06/06/24