Episodes
FEBRÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️ Skoðaðu styrkleikana þína, hættu þessu djöfulsins niðurrifi og ÁFRAM GAKK ÞÚ MIKLI SNILLINGUR. Án alls gríns samt þá mættum við öll vera duglegri að skoða hvað er gott við okkur. Ekki flóknara en það. Gerum það núna. 🎧
Published 02/16/24
Published 02/16/24
Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️ Sumir segja að eitt það mikilvægasta í lífinu sé fólkið okkar.. og tengingin sem við höfum við fólkið okkar. Rúnturinn er þitt tækifæri til að taka ísrúnt eða göngutúr eða bara sófachill með þinni manneskju og styrkja sambandið ALLSVAKALEGA. Vinkonur, vinir, mæðgur, mæðgin, feðgar, feðgin, frænkur, frændur, makar... name it. Þessi þáttur er til þess að gera samböndin þín betri og sterkari. Have fuuun 👏
Published 02/12/24
JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️ Splúnkunútt workshop sem hjálpar okkur að framkvæma. Semsagt hætta að dvelja og ofhugsa og fresta osfrv. Þetta er fyrir öll sem langar að komast skrefinu lengra í lífinu á þessu ári. Jafnvel þessum ársfjórðungi.. er ekki alltaf betra að búta þetta niður?
Published 01/31/24
JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur workshopið í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️ Flest förum við í gegnum tímabil þar sem allt er í blóma og gleði.. þá hugsum við "vá ég ætla alltaaaf að vera svona".. svo gerist lífið. Áður en maður veit af er maður kominn í vesenið eina ferðina enn. Það er náttúrulega bara óraunhæft að vera alltaf í toppstandi, en það er ágætt að grípa í leiðir til þess að ná sér til baka í hamingjuna og gleðina. Hér höfum við akkúrat svoleiðis workshop. 
Published 01/31/24
Þú finnur nýja þætti Í Normið Áskrift! Næææstum því síðasti þátturinn sem við gefum út kæru uppáhalds hlustendur. Við ákváðum að taka létt spin á "snail girl era" pælinguna, hjarðhegðunarvesenið sem myndast óhjákvæmilega í samfélaginu og svo kom dass af umræðu um "delayed gratification" eða seinkun á verðlaunum. Hvernig getum við í ósköpunum þjálfað með okkur smá sjálfsaga og losnað við þessa quick fix stemningu? 
Published 01/16/24
Hvað verður inni í áskriftinni? Ja, gott að þú spurðir. Hér færðu svarið. See you on the flip side!💃🏼
Published 12/27/23
Elsku hjartans bestu hlustendur. Hér líður Normið að lokum. ❤️ Við fórum yfir farinn veg, spiluðum ógeððððslega fyndna klippu, ræddum framhaldið og svo var þarna dassss af tilfinningarússíbana. Við eigum erfitt með að skrifa lýsingu hér fyrir þennan þátt, enda hægara sagt en gert að súmma upp 5 ár af snilld með ykkur. Við gátum ekki alveg sleppt af ykkur takinu samt og verðum með klikkað efni í áskrift strax eftir áramót. Skottastu á normid.is og skráðu þig í áskrift með okkur elsku litli...
Published 12/15/23
*Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Halldóru sjálfri* Halldóra Geirharðs hefur verið á bucketlistanum okkar yfir viðmælendur í langan tíma og því er einstaklega vel við hæfi að hún sé okkar síðasti viðmælandi. Margt fólk sem hefur komið til okkar í Normið hefur haft orð á því hversu mikil fagkona og viskubrunnur hún er. Við erum hjartanlega sammála því. Okkur þótti óendanlega vænt um að fá að kroppa í huga...
Published 12/12/23
2012 þurfti Magdalena Sigurðardóttir að horfast í augu við sinn alkóhólisma. Í dag hefur hún verið edrú í 11 ár og er alþjóðavottaður fíkni og fjölskylduráðgjafi ásamt því að starfa hjá Samhjálp. Þetta viðtal hitti okkur beint í hjartað og er okkur virkilega dýrmætur. Hlustum, lærum og förum í gegnum desember með frið í hjarta. ❤️  Þau sem vilja styrkja mikilvægt starf Samhjálpar geta gert það hér. 
Published 12/01/23
Yndislega og hæfileikaríka leikkonan hún Katla Margrét kom í spjall til okkar og vá hvað er gott að spjalla við þetta eðaleintak. Hún hefur auðvitað komið að óteljandi verkefnum, starfar sem leikkona í Borgarleikhúsinu og leikur næst hlutverk í mjöög spennandi seríu sem kemur út eftir áramót og kallast Kennarastofan. Við ræddum leiklistina, skólakerfið, áramótaskaupið, sturlað fyndna sketsa úr Stelpunum og allskonar þar á milli! Njótið elsku hlustendur ❤️
Published 11/29/23
Deeejókaðu hvað þessi þáttur er mikið eyrnakonfekt. Við elskum hrá spjöll um mannlegheit sem enda samt einhvernvegin í plebbatöktum og hláturskasti.  Eyþór Ingi er auðvitað eitt mesta hæfileikabúnt landsins og var ungur þegar hann byrjaði að leyfa þjóðinni að njóta viðveru sinnar. Kæri hlustandi, við stórgræddum á því hlusta á Eyþór og það munt þú gera líka. NJÓTUM ❤️
Published 11/17/23
Mörg finnum við fyrir allskonar kvíða á lífsleiðinni og okkur þótti mikilvægt að ræða aðeins heilsukvíða í samhengi við síðasta þáttinn okkar, viðtal við stofnendur Intuens. Í fyrsta skipti hefur einstaklingurinn öðruvísi vald yfir upplýsingum um eigin heilsu og þess vegna er eðlilegt að velta fyrir sér hvernig áhrif þetta hefur allt saman á manneskjuna.  Við ræddum líka félagsfælni og kvíða almennt og hvernig sé hægt að vinna í að losa sig úr vítahringnum sem myndast þegar hausinn fær að...
Published 11/14/23
Þau Torfi og Steinunn eru meðstofnendur Intuens. Þetta spennandi fyrirtæki býður upp á byltingarkenndar breytingar hvað varðar heilsu og heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Hjá Intuens getur þú bókað þig í heilskanna og fengið að sjá stöðuna á þínum eigin líkama, án þess að þurfa að bíða eftir samþykki annars staðar frá.  Þegar kemur að heilsunni, þá er þekking máttur. Intuens er fyrirtæki sem nýtir sér nýjustu segulómtækni, gervigreind og tölvugreiningar frá Philips til að varpa ljósi á ýmsa...
Published 11/10/23
Í þessum þætti ræðum við hvernig við getum tekist á við hátt Cortisol stig, en cortisol er auðvitað aðal streituhormónið í líkamanum. Hvernig hefur það áhrif á líf okkar í daglegu lífi?  Hvernig lítur lífið út þegar það er ekki óregla í taugakerfinu? Hér er á ferð mikilvægur þáttur fyrir þau sem að langar að taka streituna föstum tökum og mögulega finna þetta blessað jafnvægi!
Published 10/31/23
Tveir öðlingar mættu með okkur í stúdíóið og úr varð þessi stórkostlegi þáttur. Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson eru þekktir fyrir að framleiða snilld og flest þekkjum við Hraðfréttir sem hristu skemmtilega upp í Kastljósinu fyrir nokkrum árum síðan.  Þessa dagana eru þeir meðal annars að vinna að því að framleiða Áramótaskaupið okkar allra - sem undirstrikar hvað þeir eru fáránlega hæfileikaríkir í sínu fagi.  Kæru landsmenn, góða skemmtun.  
Published 10/24/23
Skoðum hversu veruleikafirrt, eða dululu, fólk getur almennt verið. Við ræddum svokallað "girl math" og "boy math" sem er út um allt á tiktok og öðrum miðlum þessa dagana. En er mögulega sálfræðilegur ávinningur við það að vera delulu? Perhaps maybe. 😏 Svo tókum við lífeyrisrant einhversstaðar um miðjan þátt og smá flug-sköllun í lokin. Bon appetit. 
Published 10/14/23
*Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Guðrúnu sjálfri Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem tónlistar-töffara-sleggjan GDRN, kom til okkar í hrátt og skemmtilegt viðtal og mikið var gott að sitja með henni og spjalla um lífið. Njóttu vel kæri hlustandi, þessi er extra ljúfur. 
Published 10/06/23
Innri pressan, samfélagið, ramminn, reiðin, fáránleikinn... gaaaman. Af hverju förum við ekki bara í gegnum lífið í kyrrðinni og rólegheitunum?  Pressan sem við setjum á okkur er stundum svolítið fyndin og mjög oft þreytandi. Skoðum þetta. 
Published 09/29/23
Daníel Sæberg hefur gengið í gegnum það sem að við óttumst mörg mest. Hann talar einlægt um barnsmissi og hvernig hann tekst á við sorgina. Þessi þáttur er þess vegna algjör viskubrunnur af fallegum einlægum ráðum og það voru mikil forréttindi að fá að læra af hans sýn á lífið í gegnum þessa erfiðu upplifun. Hugarfarið hans Danna er aðdáunarvert, hlustum og lærum. ❤️ Þú getur fylgst með Danna hér: @dannisaeberg 
Published 09/22/23
Við tókum fyrir svokallað Wound Mapping í þessum þætti. Virkilega áhugaverðar pælingar um hvaða sár stjórna hegðuninni okkar í daglegu lífi. Þú vilt kafa veeeeel í þennan. 🙃 Þetta er klárlega eitthvað sem þú munt vilja glósa. Töst fyrir léttu og ljúfu lífi kæru hlustendur!
Published 09/15/23
Gott fólk! Halla Tómas kom til okkar í vægast sagt stórkostlegt spjall. Eins og flestum er kunnugt er Halla forstjóri B Team og ein af stofnendum Auður Capital. Hún gaf á dögunum út bókina "Hugrekki til að hafa áhrif" sem við mælum með að allir kynni sér! Þessi áhrifaríki þáttur má einfaldlega ekki framhjá þér fara. Búðu þig undir ALVÖRU INNBLÁSTUR. 
Published 09/08/23
Vá hvað þetta var eye opening þáttur. Hollt og gott spjall en samt smá blaut tuska. Góð blanda.  Einar Carl er flestum kunnugur sem stofnandi Primal. Hann lenti í snjóbrettaslysi fyrir þónokkrum árum og kennir nú fólki að taka fulla ábyrgð á eigin ástandi til þess að öðlast frelsi í eigin líkama.  Í Primal er hægt að nálgast einkatíma í verkjaútrýmingum, stoðkerfisvandmálum, æfingamarkmiðum tengdum líkamsþyngdarstyrk, liðleika og streitustjórnun. Auk þess kennir Einar Movement tíma, Sigrum...
Published 08/31/23
Hvað er Monachopsis? Jouska?  eða Vellichor? Tja.. þegar stórt er spurt!  Lífið er fullt af allskonar upplifunum og tilfinningum sem allir finna.. en enginn kann að útskýra. Ræðum. 
Published 08/25/23
Ásgrímur Geir Logason, eða Ási eins og við þekkjum hann flest, er frægur fyrir frábæru podcöstin sín og snillatakta á tiktok, auk þess er hann frábær leikari og yndisleg manneskja í gegn.  Þú kannast eflaust við podcöstin Betri Helmingurinn og Heitt á Könnunni en Ási er stjórnandi þeirra beggja. Við fórum um víðan völl með Ása og ræddum meðal annars æskuna, leiklistina, góðmennskutakta og podcast-rekstur. Hann er líka ekkert að grínast með hlaðvarpsferilinn því hann var að gefa út nýtt og...
Published 08/18/23