Description
Ræðum það snýr aftur á nýju ári eftir fæðingarorlof stjórnandans.
Rætt er um stöðu ríkisstjórnarinnar, deilur um embættisfærslur Svandísar Svavarsdóttur, nýjustu skoðanakannanir, forystuskipti í Sjálfstæðisflokknum, möguleg stjórnarmynstur eftir næstu kosningar, endurkomu Samfylkingarinnar frá fyrsta áratugnum, stöðu Katrínar Jakobsdóttur, tímasetningu alþingiskosninga í ljósi forsetakosninga, forsetaframboð, kröfur til sigurstranglegra frambjóðenda, forsetatíð Guðna, borgarstjóraskipti og hvort Íslendingar séu til í tekjutengdar sektir fyrir umferðarlagabrot.
Gestastjórnendur: Freyja Steingrímsdóttir, samskiptastjóri BSRB og Kolbeinn Marteinsson, almannatengill hjá Athygli
Stjórnandi: Andrés Jónsson
Stef: Ræðum það - Dire & Nolem
Ræðum það... fer yfir stöðuna í baráttunni um Bessastaði
Gestastjórnendur: Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingismaður, Steinar Þór Ólafsson markaðsmaður og samskiptaráðgjafi og Freyja Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands.
Published 05/05/24
Ræðum það... er á pólitískum nótum að þessu sinni.
Rætt er um innkomu Kristrúnar Frostadóttur í útlendingamál, stöðu ríkisstjórnarinnar, einkarekstur í velferðarkerfinu, einkavæðingu ríkisfyrirtækja, eignarhald á bönkum, boðaða sölu Íslandsbanka, tímasetningu kosninga og möguleg stjórnarmynstur...
Published 02/19/24