Ráfað um rófið 03 01 - Auður og skynjun
Listen now
Description
Í þessum fyrsta þætti ársins 2023 fá þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala til sín góðan gest, hana Auði Ákadóttur, listakonu. Ráfið liggur að mestu um hina mjög svo margbreytilegu og áhugaverðu vegi skynjunar. Staldrað er við sjálfa skynjunina sem slíka, af hverju hún er svona mikilvæg til að skilja einhverfu, hvaða kosti óhefðbundin skynjun getur haft sem og hvaða áskoranir geta fylgt henni. Ólíkar bragðtegundir af rjómaís koma líka við sögu, sem og normal (og abnormal) brauð. Meðal hápunkta er Chloé Hayden og afrek hennar, svo sem bókin Different not Less og leikur hennar í Heartbreak High. Lágpunktur gæti hins vegar verið erfiðleikar við að fara til læknis og gera sig skiljanlega í slíkum heimsóknum. 
More Episodes
Þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala fá til sín góðan gest, leikkonu, áhættuleikstjóra og kennara að nafni Arna Magnea Danks. Ráfið kemur víða við, allt frá Dramatic Combat yfir í stopmotion myndir í kennslu barna á rófinu. Valdeflingin sem fylgir greiningu kemur við sögu, sem og bernska og...
Published 06/11/24
Published 06/11/24
Í þessum þætti er ráfað um mjög mikilvæg svæði, nánar tiltekið skynjunina og það hvernig hægt er að kortleggja skynrænan prófíl hvers og eins. Óhjákvæmilega koma líka við sögu tilfinningar, því þær eru jú eitt af því sem við skynjum og upplifum. Brauðsúpa, bjúgu, bað og bleyta eru líka meðal...
Published 04/25/24