Episodes
Í þessum þætti er ráfað um mjög mikilvæg svæði, nánar tiltekið skynjunina og það hvernig hægt er að kortleggja skynrænan prófíl hvers og eins. Óhjákvæmilega koma líka við sögu tilfinningar, því þær eru jú eitt af því sem við skynjum og upplifum. Brauðsúpa, bjúgu, bað og bleyta eru líka meðal viðkomustaða, svona eins og gerist og gengur.
Published 04/25/24
Published 04/25/24
Þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala eru mættar aftur eftir langt hlé og ráfa um víðan völl að vanda. Meðal viðkomustaða eru orkubókhald, life stressor scale, 7 tegundir hvíldar, mysingur og normal brauð.
Published 02/01/24
TW: umræða um sorg og missi. Í þessum þætti ráfa þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala um svæði sem oft er ranglega talið vanta í einhverft fólk, nefnilega tilfinningar. Sorg er Evu ofarlega í huga, t.d. hvort einhverft fólk fari á ólíkan hátt gegnum sorgarferli en almennt gerist. Meðal annarra umræðuefna eru sjálfsmildi, stýrifærni, dagatalsblinda, PDA ofl ofl.
Published 06/27/23
Ráfið hjá Evu Ágústu og Guðlaugu Svölu liggur um víðan völl í þessum þætti og leiðsögumaðurinn er Sunna Dögg Ágústsdóttir sem er verkefnastjóri málefna ungmenna hjá Þroskahjálp. Meðal áfangastaða á ráfinu eru stimm, þjóðfánar, handavinna og kettir svo eitthvað sé nefnt. Einnig hvernig það er að vera einhverf í óeinhverfu samfélagi, hvort kröfur eru sanngjarnar eða ekki og hvernig stendur á því að einstaklingur sem nýtur þess að læra skuli ekki hafa notið þess að vera í skóla. Efnisviðvörun:...
Published 04/25/23
Í Ráfi dagsins fá þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala til sín góðan gest, Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttur, háskólanema í University of Florida. Hún leggur stund á nám í menntavísindum með fókus á heilsulæsi barna og stefnir að því að efla tækifæri barna til heilbrigðs lífs með því að efla almenna menntun um heilsu. Leið hennar til háskólanáms hefur þó síður en svo verið bein og breið, hún glímdi við alvarlegan heilsubrest og passaði illa inn í skólakerfið hérlendis vegna lesblindu, einhverfu og...
Published 03/09/23
Hér er kominn seinni þátturinn af tveimur þar sem þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa um rófið ásamt Páli Ármanni og Margréti Oddnýju Leópoldsdóttur. Leið ráfsins liggur um vegi skólagöngunnar og hvernig sú ganga blasir við frá sjónarhóli einhverfra. 
Published 02/19/23
Í þessum þætti ráfa þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala í fylgd tveggja gesta, sem bæði hafa komið áður í spjall. Margrét Oddný Leópoldsdóttir og Páll Ármann eru bæði, líkt og þær Guðlaug og Eva, seinhverf - eða uppgötvuðu með öðrum orðum einhverfuna sína á fullorðinsárum. Umræðan skoðar frá ýmsum sjónarhornum hvað það þýðir að greinast seint á einhverfurófi, hvort það er kostur að vita af einhverfunni og þá hvernig. Fjallað er um áskoranir og viðhorf samfélagsins og einhverfra sjálfra til...
Published 02/16/23
Í þessum fyrsta þætti ársins 2023 fá þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala til sín góðan gest, hana Auði Ákadóttur, listakonu. Ráfið liggur að mestu um hina mjög svo margbreytilegu og áhugaverðu vegi skynjunar. Staldrað er við sjálfa skynjunina sem slíka, af hverju hún er svona mikilvæg til að skilja einhverfu, hvaða kosti óhefðbundin skynjun getur haft sem og hvaða áskoranir geta fylgt henni. Ólíkar bragðtegundir af rjómaís koma líka við sögu, sem og normal (og abnormal) brauð. Meðal hápunkta er...
Published 01/19/23
Í þessum þætti ráfa þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala um bókstaflegar slóðir, bæði hvað varðar orð, myndir og skynjun. Meðal viðkomustaða er skólaforðun (fáránlegt orð að okkar mati), lýsi, PDA, svo ekki sé minnst á paprikur og kartöflur - já og það hversu mörg tré þarf til að mynda skóg.  Við þökkum kærlega fyrir dýrmæta viðurkenningu sem okkur hlotnaðist á dögunum, þegar við fengum Múrbrjótinn frá Þroskahjálp. Það er okkur mikils virði að ráfið okkar skuli vera talið brjóta niður múra, draga...
Published 12/15/22
Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa um almanakið ogskoða áhrif skammdegisins á líðan einhverfra. Þeim til stuðnings eru svör frá meðlimum Skynsegin hópsins á facebook við spurningunni: Hvernig leggst veturinn í ykkur? Upplifið þið hann sem áskorun og þá hvernig? Eruð þið með einhver ráð til að tækla skammdegið? Ef þið upplifið veturinn sem uppáhaldstíma - hvers vegna er það? Svörin eru margvísleg og áhugaverð, eins og við var að búast.
Published 11/03/22
Í þessum þætti ráfa þær Eva Ágústa og Guðlaug Svala þvers og kruss um það jarðsprengjusvæði sem vinátta getur verið þegar einhverft fólk er annars vegar. Þessi umræða gæti triggerað erfiðar minningar, svo mælt er með því að fólk hlusti við góðar aðstæður og reikni jafnvel með að þurfa að melta efnið aðeins.  Hvernig skilgreina einhverfir hugtakið vinátta? Hvað þýðir að vera vinur? Hvar finnum við vini? Og svo framvegis og svo framvegis... Óeinhverfir, til dæmis aðstandendur einhverfra og...
Published 09/15/22
Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa í þessum þætti um lendur áhugamálanna - og þá sérstaklega áhugamál einhverfra. Þær fá til þess frábæra aðstoð frá spjallþræði á Fb-grúppunni Skynsegin, þar sem málið um áhugann er krufið til mergjar. Af hverju er það skrýtnara að hrífast af finnska vetrarstríðinu en enska boltanum? Þarf fullorðið fólk að skammast sín fyrir að skapa listaverk úr perlum (af því að þær eru barnadót) eða ofurást á blekpennum? Við sögu koma klisjur, mýtur og fordómar - enda erum...
Published 09/01/22
Ráf dagsins liggur um slóðir læknisfræði, siðfræði, samskipta og skilnings/leysis. Gestur Evu Ágústu og Guðlaugar Svölu er Margrét Oddný Leópoldsdóttir, læknir, textíllistakona, siðfræðinemi með meiru. Hún þekkir heilbrigðismál frá báðum hliðum þar sem hún kemur í dag að þeim sem sjúklingur. Samskipti og aðgengi að þjónustu, réttlæti og menning innan kerfisins er meðal þess sem ráfið snertir á og kynnti Margrét okkur meðal annars fyrir nokkrum áhugaverðum hugtökum - á borð við...
Published 06/16/22
Ráfið liggur að þessu sinni alla leið á Selfoss, en gestir þáttarins koma einmitt þaðan. Dagmar Ósk Héðinsdóttir hefur vakið athygli fyrir dúkkubörnin sín og mætti til Evu Ágústu og Guðlaugar Svölu ásamt hinni brosmildu Rósu Lind. Dúkkubörn hjálpa mikið með kvíða og depurð, framkalla vellíðan með faðmlögum og verða oft til þess að skapa samtöl og tengsl. Stundum mæta foreldrar dúkkubarna fordómum en oft vekja dúkkubörnin gleði og ánægju. Fjölbreytileiki einhverfurófsins, boccia, handavinna og...
Published 05/31/22
Gestur þáttarins er Aðalheiður Dögg, Heiða Dögg eða Einhverfa Döggin, allt eftir því hvar þið rekist á hana. Hún er í stjórn Einhverfusamtakanna og var ásamt þeim Evu Ágústu og Guðlaugu Svölu í undirbúningsteymi listahátíðarinnar Marglitur Mars, sem samtökin stóðu að í tilefni af alþjóðadegi einhverfu nú í vor. Viðkomustaðirnir á ráfinu eru þó mun fleiri, enda talsvert af bæði einhverfu og ADHD í Rabbrýminu að þessu sinni. Vinnuaumhverfi sem hentar einhverfum, eitraðar staðalímyndir, fegurð...
Published 05/18/22
Í þessum þætti ráfa Eva Ágústa og Guðlaug Svala um lendur gríns og gleði, lesa innsendar sögur frá hlustendum um fyndna atburði eða sögur úr lífinu þar sem húmor er í aðalhlutverki. Allnokkrar fjalla um misskilning sem gjarnan tengist bókstaflegri hugsun og túlkun. Sumar eru um ólíka afstöðu til árshátíða eða vinnustaðagleði og jafnvel vandræðaleg samskipti kynjanna. Óþægilega hreinskilnar spurningar og athugasemdir eiga líka sitt pláss, nema hvað. Góða skemmtun og takk fyrir að deila sögum...
Published 04/13/22
Í þessum þætti fara Eva Ágústa og Guðlaug Svala út að ráfa með hundinn... eða þannig :) Hrönn Kristey Atladóttir, hundaþjálfari, leiðir þær í allan sannleik um hunda og gagnsemi þeirra fyrir einhverfa og bara alla sem gætu þurft að tala við aðila sem hlustar vel, rukkar ekki fyrir tímann sinn og skráir ekkert niður í gagnagrunn (hund semsagt). Reynsla Hrannar af hundum hófst í bernsku og sótti hún strax til þeirra öryggi og félagsskap. Í dag kennir hún fólki að umgangast þessi tryggu dýr og...
Published 02/25/22
Eva Ágústa og Guðlaug Svala fá til sín góðan gest, Elísabetu, í fyrsta þætti ársins 2022. Að þessu sinni liggur ráfið um slóðir fíknar, tengsla einhverfu og fíknar og þarfir einhverfra í meðferð og edrúmennsku. Einnig er staldrað við áhugaverðar staðreyndir, eins og ókosti þess að endurheimta lyktarskyn eftir að hætta að reykja, hvort skemmtistaðir eru í raun góðir staðir fyrir skemmtun og ýmislegt annað fróðlegt. 
Published 02/10/22
Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa um kosti og galla hátíða, siða og skylduverka. Hvað er gott og hvað er erfitt þegar kemur að afmælisveislum, fjölskylduboðum, ferðalögum og stórhátíðum? Þarf alltaf að vera hangikjöt? Þarf að taka til áður en skrautið er sett upp? Stundum er sagt að börn verði bara að læra að venjast veislum og að taka þátt í félagslífinu eins og það er. Ætli það sé alltaf góð hugmynd? Hvað með fullorðna fólkið, má það vera styttri tíma en aðrir í matarboðum eða kannski fara...
Published 11/04/21
Eva Ágúst og Guðlaug Svala fá til sín góðan gest, Siggu Birnu Valsdóttur fjölskyldu- og leiklistarmeðferðarfræðing sem starfar við rágjöf hjá Samtökunum 78. Ráfið fer að þessu sinni mestmegnis fram á vegamótunum þar sem einhverfurófið og kynjarófið mætast. Tengsl þessara rófa eru rædd, aðstaða einstaklinga sem tilheyra þeim báðum, innsýn kerfisins og þjónusta við þennan hóp. Það er áskorun að tilheyra fleiri en einum minnihlutahópi og því er lífsnauðsynlegt að temja sér að hlusta ekki bara...
Published 09/06/21
Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa vítt og breitt um málefni tengd rútínum, rútínuleysi, breytingatímabilum og öðru sem þeim dettur í hug. Hegðun sem tjáning á líðan kemur við sögu, tjáning á öðru formi en orðum, af hverju verða börnin matvönd haust og vor - já og smá rapp til að krydda umræðuna. 
Published 08/26/21
Eva Ágústa og Guðlaug Svala ráfa yfir farinn veg og ræða áhugavert efni sem komið hefur upp í spjalli við gesti undanfarið. Þar má nefna eigið tungumál, áfallavinnu, afsannaðar mýtur um einhverfa, sköpun og sögugerð og fleira. Orkubókhald (Maja Toudal, energy accounting) kemur líka við sögu sem og önnur úrræði sem koma að gagni við að vernda orkuna sína. 
Published 07/09/21
Ráfið um einhverfurófið liggur í þessum þætti um brautir áfalla. Gestur Evu Ágústu og Guðlaugar Svölu, Páll Ármann, veltir fyrir sér eðli og orsökum áfalla, mögulegum tengslum þeirra við einhverfu eða hvort þau eru bara hluti þess að vera manneskja. Meðal viðkomustaða á ráfinu eru grillaðar samlokur, geltandi hundar og mikilvægi þess að fá hlustun, skilning og stuðning til að jafna sig á erfiðum upplifunum.  TW: umræða um áföll og erfiða lífsreynslu gæti verið triggerandi. 
Published 06/28/21