Segðu mér sögu
Listen now
Description
Jóhann Sigurðarson er einn af ástsælustu leikurum þjóðarinnar. Frammistaða hans hefur hrifið jafnt gesti Þjóðleikhússins sem og börn heima í stofu sem dolfallin hafa heyrt hann bregða sér í allra kvikinda gervi í talsettu barnaefni. Svo er hann líka góður söngvari. En hér förum við með Jóhann yfir nýjasta afrekið: Frábæran flutning hans á Harry Potter bókunum eftir J.K. Rowling sem finna má hér á Storytel. Hallgrímur Thorsteinsson er einn ástsælasti fjölmiðlamaður Íslendinga. Í nýrri hlaðvarpsseríu, Segðu mér sögu með Halla Thorst, kynnir hann hlustendur Storytel fyrir höfundum okkar vinsælustu bóka. Einstaklega skemmtilegir og vandaðir viðtalsþættir sem sannir bókaunnendur ættu ekki að láta fram hjá sér fara.
More Episodes
Hinn landsþekkti leikari Guðmundur Ólafsson er jafnframt vinsæll rithöfundur og sá eini sem tvisvar hefur hlotið Íslensku barnabókaverðlaunin. Í fyrra skiptið 1986 fyrir bókina Emil og Skundi og það síðara 1998 fyrir Heljarstökk afturábak. Krakkar á öllum aldri nutu líka listilegrar frásagnargáfu...
Published 01/08/20
Berglind Björk Jónasdóttir veit fátt jafn nærandi og að sökkva sér ofan í góða bók. „Það er ekkert sem færir mann nær núvitundinni en að týna sér í upplestri“ segir hún. Við þekkjum Berglindi Björk sem alhliða flytjanda, sem leikkonu, söngkonu og tónlistarmann, kannski einna best sem eina af...
Published 01/08/20
Published 01/08/20