Episodes
Þàtturinn er tileinkaður nýjum bókum og voru það Gyða Sigfinnsdóttir og Anna Margrét Ólafsdóttir sem ræddu fjórar skáldsögur. Guðjón Helgi Ólafsson var alveg sérstakur gestur þáttarins en hann er mikill bókaunnandi og þá einna helst bóka eftir Jón Kalman. Til umfjöllunar voru glæpasögurnar Sjófugl eftir Egil Ólafsson, Guli kafbáturinn eftir Jón Kalman Stefánsson, Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur og Reykjavík eftir Ragnar Jónasson og Katrínu Jakobsdóttur.  Hér finnur þú Skúffuskáld á...
Published 03/31/23
Published 03/31/23
Sigríður Hagalín er viðmælandi þáttarins en hún gaf út sína fyrstu bók árið 2016. Það var bókin Eyland sem vakti mikla athygli en síðan þá hafa komið út þrjár skáldsögur eftir Sigríði. Það eru bækurnar Hið heilaga orð, Eldarnir og nú fyrir jólin bókin Hamingja þessa heims. Í þættinum ræða Gyða og Sigríður m.a. um Ólöfu ríku, drauma og svo margt margt fleira. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldum og bókaunnendunum í kringum ykkur! Skúffuskáld á Instagram og...
Published 01/22/23
Guðrún Brjánsdóttir er viðmælandi þáttarins að þessu sinni. Hún hefur gefið út ljóðabókina Skollaeyru og nóvelluna Sjálfstýringu. Í þessum þætti spjallar hún við Gyðu, m.a. um  það að vera skúffuskáld og hvernig það er að reyna fyrir sér sem höfundur. Sagan sigraði í samkeppni Forlagsins Nýjar raddir 2020. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldum og bókaunnendunum í kringum ykkur! Skúffuskáld á Instagram og Facebook Hvað er Lubbi Peace? Sendið póst á...
Published 01/09/23
Elísabet Thoroddsen er viðmælandi minn í þessum þætti. Í samstarfi við Bókabeituna gaf hún út sína fyrstu skáldsögu fyrir stuttu. Það er bókin Allt er svart í myrkrinu og var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmenna. Elísabet lærði kvikmyndagerð og hefur lengi skrifað fyrir skúffuna. Hún fór í rithóp og eftir það fóru hjólin að snúast hratt. Þetta og svo margt fleira ræddum við í þættinum. Skúffuskáld á Instagram og Facebook Hvað er Lubbi Peace? Sendið...
Published 12/15/22
Þàtturinn er tileinkaður nýútkomnum bókum, en við Gyða Sigfinnsdóttir ræddum nokkrar skáldsögur í jólabókaflóðinu. Til umfjöllunar voru glæpasögurnar Kyrrþey eftir Arnald Indriðason, Drepsvart hraun eftir Lilju Sigurðardóttur. Auk þeirra ræddum við Saknaðarilm eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og Facebook Vangaveltur og ábendingar eru velkomnar á netfangið [email protected]
Published 12/09/22
Kristlaug María Sigurðardóttir er betur þekkt sem Kikka. Kikka er leikskólakennari, rithöfundur og eigandi Bókasamlagsins. Hún er nokkuð viss um að hún sé með ADHD en hún hefur afkastað ótrúlega miklu og hikar ekki við að ráðast í verkefni sem heilla hana; eins og t.d. Bókasamlagið. Kikka fékk eintóm nei þegar hún vildi gefa út Ávaxtakörfuna; hjá bókaútgáfu og leikhúsum en hún lætur ekki menn í áhrifastöðum segja sér hvað virkar og hvað ekki. Hún treystir á sig sjálfa og gerir það sem hún...
Published 08/01/22
Þessi þáttur er tileinkaður barna - og ungmennabókum og í þættinum reifa 4 börn jafnmargar bækur.  Það eru þau Skarphéðinn Óli, Bergrún Björk, Kamilla Inga og Ronja. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri spjallar einnig um nokkrar bækur við Önnu Margréti. Bækurnar sem voru til umfjöllunar eru Mr. Einsam eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, Rauð viðvörun - Jólin eru á leiðinni eftir Sigrúnu Eldjárn, Nornaseiður eftir Gunnar Theodór Eggertsson, Bannað að eyðileggja eftir Gunnar...
Published 01/23/22
Þátturinn er tileinkaður ljóðabókum sem komu út fyrir jólin og hún Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við spjölluðum um bækurnar. Að þessu sinni spjölluðum við um nokkrar ljóðabækur en það voru bækurnar Ég brotna 100% niður eftir Eydísi Blöndal, Menn sem elska menn eftir Hauk Ingvarsson, Tanntaka eftir Þórdísi Helgadóttur, Álfheimar eftir Brynjar Jóhannesson og bókina Koma jól? eftir Hallgrím Helgason og myndskreyting var í höndum Ránar Flyering. Hér...
Published 12/21/21
Valgerður Ólafsdóttir veltir því fyrir sér að sækja um aðild að Rithöfundasambandi Íslands en hún hefur gefið út kennslubók í sálfræði og bókin Konan hans Sverris kom út fyrir skemmstu. Konan hans Sverris er saga konu sem fer úr ofbeldisfullu hjónabandi. Sagan er skrifuð sem bréf til eiginmannsins og hvernig eftirsjá samtvinnast þrautseigju og styrk þegar fram líða stundir. Valgerður segir frá sögunni, ferlinu við að skrifa hana og spjallar um lífið og tilveruna. Munið að gerast...
Published 12/09/21
Gyða og Anna Margrét spjalla um nokkrar nýútkomnar bækur í þættinum. Þær spjalla um þrjár bækur fyrir börn og þrjár nýútkomnar skáldsögur. Bækurnar sem eiga heiðurssess í þættinum eru: Reykjavík barnanna eftir Margréti Tryggvadóttur og Lindu Ólafsdóttur Skrímslaleikur eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Guettler og Rakel Helmsdal Drottningin sem kunni allt nema... eftir Gunnar Helgason og Rán Flyering Olía eftir Svikaskáld Merking eftir Fríðu Ísberg Myrkrið á milli stjarnanna eftir Hildi...
Published 11/22/21
Á ferð minni um landið í sumar var upptökutækið með í för sem kom að góðum notum þegar ég stoppaði á Dalvík. Þar fór ég í heimsókn í Menningarhúsið Berg þar sem hægt er að fara á kaffihús, næla sér í bók í bókasafninu og njóta listar í listasalnum. Í Bergi hitti ég rithöfundana og skúffuskáldin Katrínu Sif og Klemenz Bjarka sem spjölluðu við mig um skrifin og margt fleira. Villtasti draumur þeirra er að lifa af skrifunum einum saman og það var gaman að heyra af afrekum þeirra, verkum í...
Published 09/13/21
Hlín Agnarsdóttir vílaði það ekki fyrir sér að keyra Reykjanesbrautina til að koma til mín í viðtal. Hún bjó einu sinni í Keflavík þegar hún vann sem ritstjóri en list, sköpun og tjáning eru sannarlega hennar ær og kýr. Hlín hefur skrifað mikið, gefið út, leikstýrt og lifað og hrærst í öllu sem því tengist.  Salka Valka hafði gífurleg áhrif á hana og hún kýs að lesa efni sem reynir á hana frekar en afþreyingu. Hlín hefur aðallega kennt leikritaskrif í ritlistarnámi Háskóla Íslands og finnst...
Published 08/22/21
Tryggvi Pétur Brynjarsson skrifar alltaf þegar laus stund gefst og hefur gefið út tvær bækur á Amazon. Hann kom til mín í Stúdíó Lubba Peace og sagði mér frá litríkri ævi sinni, hvernig var að gefa út bók sjálfur og hvernig það er að vera alveg einn við allt ferlið að gefa út bók. Hann ræddi um íslenskuna sem er honum hugleikin, lífið í Bandaríkjunum og hvernig var að koma aftur heim. Tryggvi vinnur að nýrri bók og heldur ótrauður áfram við að skrifa, lesa og læra. Skúffuskáld á Instagram...
Published 08/15/21
Kristín Ómarsdóttir kom til mín í Stúdíó Lubba Peace og ræddi um sköpun, að skrifa, lifa og lesa. Hún sagði frá ópraktískum njósnum, innblæstri, dularfullu starfi og svo mörgu fleiru. Fyrsta bókin kom út eftir Kristínu þegar hún var aðeins 19 ára gömul og hún hefur verið óstöðvandi síðan. Spjallið fer um víðan völl; um ritdóma, gagnrýni, lestur, sjónvarpsáhorf,  rútínu og praktík. Undir lokin tekur Kristín að sér hlutverk spyrils og gefur góð ráð. Skúffuskáld á Instagram og Facebook Hvað...
Published 08/08/21
Björn Halldórsson er viðmælandi minn í þessum fyrsta þætti í þáttaröð númer tvö! Eftir Björn hafa komið út tvær bækur og hann lifir og hrærist í skrifum og bókum. Bókin STOL kom út í febrúar 2021 og hann sagði frá ferlinu við að skrifa bókina og að hann ætlaði alls ekki að skrifa þessa bók. Björn segir m.a. frá námi sem hann sótti í bókmenntum og ritlist og hvernig það var að koma heim og skrifa á íslensku. Opinskátt samtal um skrif, bækur, lestur og margt fleira. Skúffuskáld á Instagram...
Published 08/01/21
Í þessum tuttugasta þætti, og jafnframt síðasta í þessari fyrstu þáttaröð, ræða Gyða og Anna Margrét um ljóðabækur og bókina Hesta eftir Rán Flyering og Hjörleif Hjartarson. Bækurnar eru allar upplagðar í sumarlesturinn og myndu sóma sér vel í ferðalagi eða á teppi í lautarferð. Ljóðabækurnar sem þær ræða um eru bækurnar Spegilsjónir eftir Guðrúnu Hannesdóttur, Les birki eftir Kari Ósk Grétudóttur, Havana eftir Maríu Ramos og loks ljóðasafn Kristínar Ómarsdóttur. Skúffuskáld á Instagram...
Published 06/24/21
Þátturinn er tileinkaður bókum sem komu út fyrir jólin og hún Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín í spjall. Að þessu sinni spjölluðum við um Eldana eftir Sigríði Hagalín, Fjarvera þín er myrkur eftir Jón Kalman, Bölvun múmíunnar eftir Ármann Jakobsson, Yfir bænum heima eftir Kristínu Steinsdóttur og (M)Ein eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur.
Published 04/28/21
Lilja Sigurðardóttir er glaður glæpasagnaritari sem sekkur sér ofan í viðfangsefnin sem hún skrifar um. Fyrsta bókin eftir hana kom út árið 2009 og síðan þá hefur hún verið óstöðvandi enda er hún kannski næsti Dan Brown. Lilja kom til mín í Lubba Peace og sagði mér frá vinnudeginum og hvað felst í því að skrifa góða glæpasögu. Hún ætlar að koma í Lubba Peace og vera með glæpasagnanámskeið í mars.
Published 02/16/21
Sigurjón Kjartansson hefur verið partur af íslenskri menningu í mörg ár með sínu framlagi í gríni og þungarokki. Hann og Jón Gnarr mynda Tvíhöfða, þeir færðu okkur Fóstbræður ásamt fleirum, Sigurjón er í hljómsveitinni HAM og svo skrifar hann sjónvarpshandrit. Hann tók á móti mér í RKV studios og sagði mér frá handritsgerð og ferlinu við það að skrifa fyrir sjónvarp.
Published 02/03/21
Bókaspjall Önnu Margrétar og Gyðu heldur áfram. Að þessu sinni ræddum við saman um þrjár mjög ólíkar bækur, en það voru bækurnar; 107 Reykjavík eftir Auði Jónsdóttur og Birnu Önnu Björnsdóttur, Strendingar eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur og Váboðar eftir Ófeig Sigurðsson.
Published 12/20/20
Í þessum þætti er spjallað um nokkrar barnabækur sem koma út fyrir jólin. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við ræddum um fjórar barnabækur; Hetja eftir Björk Jakobsdóttur, Barnaræninginn eftir Gunnar Helgason, Iðunn og afi pönk eftir Gerði Kristnýju og Töfralandið eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur. Í lok þáttarins má heyra spjall við Bergrúnu Björk og Skarphéðinn Óla um bækurnar sem þau lásu.
Published 12/10/20
Auður Ava Ólafsdóttir sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu árið 1998 - bókina Upphækkuð jörð og nú fyrir nokkrum dögum kom út bókin Dýralíf en það er jafnframt sjöunda skáldsagan sem kemur út eftir hana. Auður Ava er einnig textahöfundur hljómsveitarinnar Milkywhale, hún hefur skrifað nokkur leikrit, smásögur, ljóð og dansverk. Auður Ava er gestur Skúffuskálda og hafði frá mörgu kynngimögnuðu að segja!
Published 11/16/20
Í þessum þætti er aftur talað um bækur sem koma út fyrir jólin, að þessu sinni ljóðabækur. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við ræddum um fimm nýjar ljóðabækur; Fjölskyldulíf á jörðinni eftir Dag Hjartarson, Þagnarbindindi eftir Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur, Við skjótum títuprjónum eftir Hallgrím Helgason, Hetjusögur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur og Guðrúnarkviða eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur.
Published 11/13/20
Þessi þáttur er frábrugðinn þeim sem á undan hafa komið en hér er spjallað um bækur. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við ræddum um þrjár nýjar bækur; Gata mæðranna eftir Kristínu Marju Baldursdóttur, Aprílsólarkuldi eftir Elísabetu Jökulsdóttur og bókina Dauði skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson.
Published 11/03/20