#129 - Andri Þór Guðmundsson
Listen now
Description
“Eitt af mínum stærstu markmiðum var að öðlast innri ró. Þú lifir ekki lífinu fyrir aðra, þú lifir lífinu fyrir sjálfan þig. Ég átti pabba sem var alkóhólisti og það er ákveðið átak að brjótast út úr því og taka stjórn á lífinu. Þú þarft stundum að taka erfiðar ákvarðanir og erfiða slagi sem eru sársaukafullir og draga dilk á eftir sér allt þitt líf en þú verður að setja sjálfan þig í fyrsta sæti, það er enginn annar sem gerir það fyrir þig.” Andri Þór hefur stýrt Ölgerðinni síðustu 20 árin en þegar hann tók við forstjórastarfinu var markaðshlutdeild Ölgerðarinnar 30% á móti 70% samkeppnisaðila og 15% hjá Pepsi á móti 85% Coke. Við ræðum stór og áþreifanleg markmið sem Andri setur fyrirtækinu og sjálfum sér, hvað þarf til að framfylgja sterkum gildum, að leyfa sér að hugsa stórt og setja sér risa markmið, erfiðleika í fjölskyldulífinu, hvernig NOCCO kom eins og stormsveipur inn á koffínmarkaðinn, skortinn á sjálfstrausti og drifið í sköpunargleðinni.
More Episodes
Bjarni Ármanns er tölvunarfræðingur að mennt og starfar sem fjárfestir í dag. Hann rekur æskuárin á Akranesi en þrálát heilahimnubólga varð til þess að hann dró sig í hlé frá sjósókn, félagslífi og fótbolta en lærði í stað þess útsaum og las bókmenntir. Í örlagaríkri útskriftarferð nokkrum árum...
Published 12/01/23
Published 11/07/23
Baldvin Þór er Íslandsmethafi í 1.500m, mílu, 3.000m, 5.000m og 10km - með öðrum orðum: hann á Íslandsmetið í öllum þeim greinum sem hann reynir fyrir sér í, aðeins 23 ára gamall! Fáir hafa heyrt Baldvins getið en hann flutti ungur til Bretlands og þaðan yfir til Bandaríkjanna í háskólanám á...
Published 11/07/23