Episodes
Bjarni Ármanns er tölvunarfræðingur að mennt og starfar sem fjárfestir í dag. Hann rekur æskuárin á Akranesi en þrálát heilahimnubólga varð til þess að hann dró sig í hlé frá sjósókn, félagslífi og fótbolta en lærði í stað þess útsaum og las bókmenntir. Í örlagaríkri útskriftarferð nokkrum árum seinna sást til Bjarna prútta á götumörkuðum í Tælandi sem varð til þess að honum var boðin staða í bankageiranum en hann vann sig hratt upp á þeim vígvelli og var orðinn bankastjóri Íslandsbanka fyrir...
Published 12/01/23
Published 11/07/23
Baldvin Þór er Íslandsmethafi í 1.500m, mílu, 3.000m, 5.000m og 10km - með öðrum orðum: hann á Íslandsmetið í öllum þeim greinum sem hann reynir fyrir sér í, aðeins 23 ára gamall! Fáir hafa heyrt Baldvins getið en hann flutti ungur til Bretlands og þaðan yfir til Bandaríkjanna í háskólanám á íþróttastyrk. Þrátt fyrir erfitt fyrsta ár var Baldvin valinn verðmætasti keppandinn á svæðismótum og þrefaldur svæðismeistari. Stefnan er sett á Ólympíuleikana á næsta ári og við ræðum andlegu og...
Published 11/07/23
Einar ,,Latsi'' Sigurjónsson er sjúkraþjálfari með þráhyggju fyrir þríþraut. Þó áhugi þinn á þríþraut og þolíþróttum nái ekki jafn langt og Einars þá talar hann hér um hluti sem varða heilsu allra og hvernig er hægt að bæta þá/nýta sér þá til að bæta sig: fitubrennsla, nýting kolvetna, zone 2 æfingar, carbon skór og heimsmet í maraþoni, saunur, HRV og stórskemmtilegar sögur frá 7 ára IronMan ferlinum.
Published 10/25/23
Bubbi Morthens mætir sem opin bók og ræðir áföll í æsku, uppgjör við geranda sinn áður en hann myndi falla frá, steraneyslu eftir sextugt, hversu mikil neyslan og vanlíðanin var þegar hann sprakk út í vinsældum á Íslandi, að pumpa út hundruðum laga og leyfa ekki vinsældum að stjórna sér, hvernig vinsælustu lög á Íslandi verða til, tilraunirnar til að gerast edrú og hvernig verstu dagarnir edrú eru betri en bestu dagarnir dópaður.
Published 10/13/23
Með hvatningarorðum föðurs síns heitins: “aldrei hætta að þora” hefur Kristján Gíslason ýtt sér út af beinu brautinni og ferðast um allan heim, einn síns liðs á mótorhjóli. Eftir mikla farsæld í viðskiptalífinu, vinnustundir myrkrana á milli, litla samveru með börnunum sínum og ofgnótt af veraldlegum hlutum fann Kristján sig á efri árum í leit að einhverju þýðingarmeira en golfi og sportbílum.   Kristján er nýkominn heim frá Suður-Ameríku þar sem hann hjólaði nokkra af sínum erfiðustu...
Published 12/28/22
JGG er atvinnuplöggari sem er sérlega fylginn sér. Hann hefur líklega séð og plöggað öllum bíómyndum og sjónvarpsseríum sem þú hefur heyrt af. Í þættinum ræðir hann forna tíma í útvarpi með menningarhetjum samfélagsins (Simmi, Jói, Auddi, Pétur), frasakonungs starfstitilinn og frasafræðarahlutverk hans fyrir Næturvaktina (gugga í gúmmíbát), þegar hann flutti umdeildan Jordan Belfort til landsins (“eina höggið sem ég hef tekið í mínu einyrkjabrölti”), að biðja stöðugt um hluti og hræðast ekki...
Published 12/21/22
Lárus Welding setti sér það markmið að gerast bankastjóri fyrir þrítugt eftir að hafa séð Bjarna Ármannsson gera slíkt hið sama 10 árum áður. “Það reyndust stór mistök," enda hvarflaði ekki að honum að í kjölfar 17 mánaða sem bankastjóri myndu fylgja 17 ár af málaferlum. Lárus segir á einlægan hátt frá vegferðinni í átt að bankastjóratitlinum; svarta beltinu í karate, ofsakvíðakasti eftir samningaviðræður í London, glímuna við áfengi og að gefa það upp á bátinn eftir atvik degi fyrir afmæli...
Published 12/14/22
Guðmundur Fertram bjó til 500.000kr. verðmæti úr þorskroði sem áður fyrr var hent eða brætt en nýtist nú til að bæta og bjarga mannslífum. Fyrir tíma Kerecis var efnafræðingurinn og rekstrarverkfræðingurinn forstjóri 250 manna fyrirtækis í Danmörku, aðeins 26 ára gamall, þegar dot-com bólan reið yfir. Við förum yfir lærdóminn sem hann dró af þeirri vegferð, tímann hans hjá Össuri, hugmyndina að Kerecis, líffræðilegar útskýringar á því hvernig varan virkar, hvernig höfnun frá FDA varð til...
Published 11/30/22
Rannveig Borg starfar sem lögfræðingur hjá Adecco Group í Sviss, er tveggja bóka rithöfundur og meistaranemi í fíknifræði. Hún hefur starfað sem lögfræðingur í Frakklandi, Lúxemborg, Bretlandi, Íslandi og Sviss þar sem hún er núna búsett. Rannveig segir okkur frá náminu og námserfiðleikunum í Frakklandi, átröskun sem hún glímdi við í æsku, hvernig hún tengir við fíknir og stjórnleysi annarra og nýlega ADHD greiningu sem setur líf hennar og fíkn í samhengi.
Published 11/23/22
Hjalti Karlsson vissi ekkert hvert hann væri að fara með líf sitt þegar hann sótti um í Listaháskólanum til þess eins að fá höfnun frá honum. Þrátt fyrir brjálæðislega feimni náði lífið að leiða Hjalta til New York þar sem hann fékk inn í listaháskólann Parsons og þaðan í læri hjá Stefan Sagmeister, virtum hönnuði í New York sem hannaði m.a. plötuumslög fyrir heitustu hljómsveitir samtímans, sem markaði upphaf af glæstum hönnunarferli Hjalta. Hönnunarstofan hans hefur unnið fyrir BMW,...
Published 10/19/22
"The woman responsible for the year’s biggest video game" eru orðin sem Fortune nota til að lýsa Sigurlínu Ingvarsdóttur, framleiðanda í afþreyingarbransanum sem er stærri en tónlist og stærri en kvikmyndir: tölvuleikir. Sigurlína er áhugasöm um flesta hluti en vélaverkfræðingur að mennt. Hún sótti fljótt í ábyrgðarstöður og starfaði í lyfja- og smásölugeiranum áður en gaf sig á tal við Hilmar, stofnanda CCP, sem leiddi til ráðningar hennar í tölvuleikjabransanum. Sigurlína er vægast sagt...
Published 10/12/22
Fida flutti 16 ára gömul frá Palestínu til Íslands. Það var forgangsatriði fjölskyldunnar að þau myndu mennta sig en Fida komst stutt í námi eftir áratug af námsörðugleikum, þar til hún fékk greiningu á lesblindu. Þar eftir nældi hún sér í hverja gráðuna á fætur annarri og lauk námi í umhverfis- og orkutæknifræði. Lokaverkefnið hennar varð að fyrirtækinu sem hún stýrir nú í dag: GeoSilica. Í þættinum ræðum við raunveruleika palestínskra barna, hvernig hermenn skjóta og handtaka börn þar í...
Published 10/05/22
Harry Potter hafði áhrif á heilu kynslóðirnar en ekki jafn mikil áhrif á neinn mann og Snæbjörn Arngrímsson. Snæbjörn var 25 ára, þriggja barna faðir og eigandi forlagsins Bjarts þegar endurskoðandinn hans hringdi og spurði hvort skynsamlegt væri að halda rekstrinum áfram með svona stóra fjölskyldu. Þrátt fyrir að bera sig alltaf eins og sigurvegara og koma fram í viðtölum með fyrirsögnum á borð við “Fé skortir mig ei!” og “Bjartur gengur brilliant!” - á meðan hann tók næturvaktir á...
Published 09/29/22
Sigurjón var poppstjarna, athafnamaður og íbúðareigandi - á meðan hann var í menntaskóla. Hann lauk bókmenntafræði, lærði kvikmyndagerð í Bandaríkjunum og hóf þar ótrúlegan feril sem framleiðandi þegar hann hann hitti á gullæð við framleiðslu tónlistarmyndbanda með kúnna á borð við Michael Jackson, Madonnu, Guns and Roses og fleiri. Úr tónlistarmyndböndum yfir í auglýsingargerð (f. Nike, Pepsi, Coca Cola...) og svo kvikmyndagerð - Hollywood vildi bita af Sigurjóni Sighvatssyni. ...
Published 09/21/22
Jón Ásgeir seldi poppkorn og leigði út rugguhesta á unglingsaldri, labbaði svo út úr menntaskóla til að opna Bónus með pabba sínum og fór þaðan til Bretlands þar sem hann kom auga á og framkvæmdi þrjár stærstu og best heppnuðustu yfirtökur á smásölumarkaði þar í landi á síðari árum. Allt með sínum skerf af drama að sjálfsögðu - maðurinn er yfirheyrðasti Íslendingur sögunnar og sat undir ákærum í 6.000 daga.
Published 09/14/22
Ingvar Ómarsson tileinkar lífi sínu því að fara hraðar á hjóli. Það gengur þokkalega en Ingvar er 32x Íslandsmeistari í hjólreiðum og okkar eini atvinnumaður í sportinu. Við ræðum hvernig Novator gerði honum kleift að gerast atvinnumaður, óhefðbundið mataræði Ingvars og lífshættulegan árekstur sem hann lenti í við mótorhjól á 80 kílómetra hraða.
Published 09/08/22
Steinunn Sigurðardóttir er fremsti fatahönnuður landsins. Eftir útskrift frá Parsons í New York starfaði hún náið með Ralph Lauren og Calvin Klein. Steinunn fluttist heim og eignaðist fatlaðan dreng en lét það ekki stoppa sig frá því að lifa sínu lífi, var ráðin inn til Gucci og flaug til og frá Ítalíu við störf sín þar með Tom Ford.
Published 09/02/22
Baltasar Kormákur segir frá ótrúlegum tímum 18 ára gamall á búgarði í Arizona, hvernig hann tók skrefið úr leiklistinni yfir í leikstjórnina og hefur aldrei beðist afsökunar á því að ganga vel, að taka ekki fyrsta boðinu inn í Hollywood með tilheyrandi lífsstíl og neyslu, hvernig Mýrin varð farmiðinn hans til Hollywood, að leikstýra stærstu kvikmyndastjörnum heims og að leyfa þeim að komast ekki um með neina stæla, áhættuatriði og hughreystingar við tökur á Djúpinu með Ólafi Darra, að leyfa...
Published 08/25/22
Ólafur Stefánsson ræðir vegferðina að því hvernig hann varð besti handboltamaður heims eftir að hafa ekki verið valinn í landsliðsúrtak og komast ekki inn í læknisfræðinám. Eftir ferilinn fór Óli í 7 ára ferðalag, kynntist sjálfum sér, upplifði það sem hann hafði lesið um og er núna kominn aftur heim.
Published 07/14/22
Starfsmönnum Controlant fjölgaði úr 50 í 350 og tekjurnar úr 400 milljónum í 8 milljararða á aðeins 2 árum. Controlant varð landsþekkt á örskömmum tíma þegar samstarf þess við Pfizer og vöktun bóluefna gegn Covid-19 var handsalað. Það er freistandi að kalla þetta 'overnight success' en ef horft er til síðustu 15 ára er ljóst að árangurinn náðist ekki á einni nóttu. Rafmagnsverkfræðingarnir Gísli og Elli hönnuðu þráðlausan skynjara til að mæla þrýstinginn í jeppadekkjum en þegar svínaflensan...
Published 07/07/22
Mari er ultrahlaupari sem gerði bakgarðinn frægan þegar hún hljóp 288km fyrr í vor. Hér fer hún yfir uppeldisaðstæður í Eistlandi, fíkn foreldra sinna, lífið í sveitinni án uppeldis og menntunar, að vera tekin frá foreldrum, SOS barnaþorpin, flutninga sína til Íslands, uppgjör við æskuna, all-in genið og djammið, hvernig hún safnaði/sparaði fyrir íbúð, ultrahlaupin og innkoman í hlaupasenuna hérlendis.
Published 06/29/22
Óskabarn Napólí fer hér yfir stormasaman feril í stúdentapólitík og stjörnulögfræði: lögreglufylgd af fótboltaleik til að halda ræðu á Bessastöðum, ritgerðarmálið sem þurrkaði atvinnutækifærin út af borðinu og neyddu Villa til að flytja á Skagaströnd, Landsréttarmálið og stærsta málsflutningur ferilsins, dómstól götunnar, tattúin, Napólí, Ítalíu og fjölskyldulífið.
Published 06/23/22
"Við eigum bara daginn í dag. Það er það eina sem við höfum og hann þarf bara að vera góður. Hver einasti dagur þarf að vera góður." Reynir seldi fyrirtæki og er í dag fjárfestir sem byggir hús, mokar skít og gróðursetur tré. Hann heldur fjarlægð frá peningum og fær aðra til að sjá um þá fyrir sig. Við ræðum hvernig hann eignaðist margar milljónir sem ungur maður og tapaði þeim öllum, útrás CreditInfo og af hverju Reynir lærði þróunarfræði, mannfræði, grísku og frönsku áður en hann hélt út...
Published 06/15/22
“Eitt af mínum stærstu markmiðum var að öðlast innri ró. Þú lifir ekki lífinu fyrir aðra, þú lifir lífinu fyrir sjálfan þig. Ég átti pabba sem var alkóhólisti og það er ákveðið átak að brjótast út úr því og taka stjórn á lífinu. Þú þarft stundum að taka erfiðar ákvarðanir og erfiða slagi sem eru sársaukafullir og draga dilk á eftir sér allt þitt líf en þú verður að setja sjálfan þig í fyrsta sæti, það er enginn annar sem gerir það fyrir þig.” Andri Þór hefur stýrt Ölgerðinni síðustu 20 árin...
Published 06/02/22