Sigurjón Sighvatsson
Listen now
Description
Sigurjón var poppstjarna, athafnamaður og íbúðareigandi - á meðan hann var í menntaskóla. Hann lauk bókmenntafræði, lærði kvikmyndagerð í Bandaríkjunum og hóf þar ótrúlegan feril sem framleiðandi þegar hann hann hitti á gullæð við framleiðslu tónlistarmyndbanda með kúnna á borð við Michael Jackson, Madonnu, Guns and Roses og fleiri. Úr tónlistarmyndböndum yfir í auglýsingargerð (f. Nike, Pepsi, Coca Cola...) og svo kvikmyndagerð - Hollywood vildi bita af Sigurjóni Sighvatssyni. Athafnamennskunni var hvergi lokið, Sigurjón flutti Domino's til Íslands, eignaðist hlut í Joe Boxer og keypti fyrirtæki sem gerði hlífðar- og vinnufatnað fyrir sjómenn að tískumerki sem allir Íslendingar þekkja í dag: 66° Norður. Í viðtalinu er bransinn ræddur, kulnunin og 6 mánaða rúmlögn, innhverf íhugun, þegar Tarantino bauð Sigurjóni að framleiða Pulp Fiction, Nicolas Cage og tilfinningagreindin hans og drifið sem fólst í því að alast upp í skugga bróður síns.
More Episodes
Bjarni Ármanns er tölvunarfræðingur að mennt og starfar sem fjárfestir í dag. Hann rekur æskuárin á Akranesi en þrálát heilahimnubólga varð til þess að hann dró sig í hlé frá sjósókn, félagslífi og fótbolta en lærði í stað þess útsaum og las bókmenntir. Í örlagaríkri útskriftarferð nokkrum árum...
Published 12/01/23
Published 11/07/23
Baldvin Þór er Íslandsmethafi í 1.500m, mílu, 3.000m, 5.000m og 10km - með öðrum orðum: hann á Íslandsmetið í öllum þeim greinum sem hann reynir fyrir sér í, aðeins 23 ára gamall! Fáir hafa heyrt Baldvins getið en hann flutti ungur til Bretlands og þaðan yfir til Bandaríkjanna í háskólanám á...
Published 11/07/23