Episodes
Það eru átta ár síðan ég greindist. Við erum í dag ótrúlega þakklát fyrir að að vera á þeim stað sem við erum. Lífið hefur kennt okkur mikið á síðustu átta árum.  Ég reyni alltaf að muna að fólk er oft að kljást við eitthvað sem ég hef ekki hugmynd um...
Published 11/05/20
Ferðalagið okkar hélt áfram. Þetta hefur verið mjög mikill skóli sem við höfum gegnið í gegnum.  Lífið er upp og lífið er niður. Við minnum okkur reglulega á að lifa með æðruleysi og þakklæti að vopni. Það borgaði sig að gefast ekki upp og halda áfram...
Published 11/05/20
Styrkur konu minnar var ótrúlegur á þessum tíma. Ég er og verð henni ævinlega þakklátur fyrir að gefast ekki upp á mér í gegnum okkar erfiðustu tíma.  Þetta ár var hún maður ársins ! Takk Sara mín.
Published 11/05/20
Greiningin mín hafði gríðaleg áhrif á líf mitt og líf okkar.  Ég lagðist í mikla sjálfsvorkunn og einangraði mig mikið. Ég varð félagsfælinn og tókst á við þunglyndi í fyrsta skipti lífs míns. Ég átti mjög erfitt með að vera bjartsýnn um tíma og ég...
Published 11/05/20
Í þessum þætti fer ég yfir allt ferlið þegar ég greindist og þær rannsóknir sem ég fór í. Ég verð að viðurkenna að það var mér mun erfiðara að taka þennan þátt upp en ég hélt það myndi verða.  Dagurinn sem ég greindist var versti dagur lífs míns og ég...
Published 11/05/20
Þegar ég settist niður fyrir framan míkrafóninn þá hafði ég ákveðna hugmynd um hvað mig langaði að tala um en ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að byrja. Ég var alveg rosalega stressaður að byrja að tala um þetta allt og rifja upp söguna og segja frá...
Published 11/05/20