Nýsköpun, vísindin og við - Hugverkaréttur með Sigríði Mogensen og Jóni Gunnarssyni
Listen now
Description
15. þáttur er helgaður hugverkarétti,  hvernig sá réttur er lykillinn að samkeppnisforskoti og almennt betra lífi hér á landi.  Bæði fyrir fyrirtækin og fólkið okkar. Hugverkastofa stendur fyrir mjög svo áhugaverðri afmælisráðstefnu þann 4. Nóvember 2021,  þar sem haldið verður upp á 30 ára afmæli stofunnar með því að ræða hugverkarétt í tengslum við sjálfbærni – aldeilis þarft og áhugavert efni,  sem við förum aðeins inná í þættinum.  Við fáum Sigríði Mogensen sviðsstjóra iðnaðar og samkeppnissviðs Samtaka iðnaðarins og Jón Gunnarsson samskiptastjóra Hugverkastofu til okkar að þessu sinni. Við Íslendingar, með okkar frábæru frumkvöðla eigum erindi inn á alþjóðasviðið. Við getum haft áhrif með rannsóknum og uppgötvunum á þeim sviðum sem Ísland er hvað sterkast í, eins og vistvænni orku, sjávarútvegi, loftslagstengdum verkefnum og fl..  Til að tryggja verðmætasköpun í því starfi er nauðsynlegt að huga að verndun hugverka. Óáþreifanleg verðmæti eru þau verðmæti sem í framtíðinni munu skapa hagsæld,  bæði hér á landi og í heiminum öllum. Fyrirtækjum sem eiga hugverkarétt vegnar betur, vaxa hraðar og borga hærri laun.   Leiðin út úr núverandi stöðu er varðar líf á jörðinni er í gegnum nýsköpun í iðnaði.  Þar getum við gert miklu betur með því að grænvæða ferla, aðföng og umgengni.  Þar getum við Íslendingar náð forskoti og hjálpað heiminum. Allt þetta og miklu meira í 15. Þætti Auðvarpsins
More Episodes
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum. Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun.  Það er eina...
Published 01/30/24
Gervigreindin á hug okkar allann.  Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn. Regluverkið!  Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina?  Hver myndi þá gera það og af hverju? Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru.  Við förum...
Published 01/10/24