Episodes
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum. Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun.  Það er eina leiðin framávið. Freyr ræðir um innri nýsköpun, ytri nýsköpun, stefnur og strategíur.  Hvernig kerfið þarf á hjálp að halda til að kynna og innleiða breytingar. Svo förum við að sjálfsögðu yfir...
Published 01/30/24
Gervigreindin á hug okkar allann.  Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn. Regluverkið!  Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina?  Hver myndi þá gera það og af hverju? Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru.  Við förum yfir regluverkið sem Evrópusambandið er búið að samþykkja,  eftir víðtækt samráð við Evrópuráðið og löndin sem mynda sambandið.. Fyrir hverja er regluverkið?  Hvað er verið að tryggja/vernda með...
Published 01/10/24
Sverrir Geirdal heldur áfram að fjalla um gervigreind,  stafræna nýsköpun undir hatti EDIH.  Að þessu sinni tekur hann á móti Dr. Páli Rafnar Þorsteinssyni verkefnastjóra hjá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands til að ræða mál málanna, Gervigreind og siðfræði. Er gervigreind mannleg greind?  Ef ekki er henni þá treystandi,  út frá siðfræði, að takast á við verkefni sem kallar á mannlega greind?  Er gervigreind annarskonar greind,  sem hefur kosti umfram mannlega greind, t.d. hraða og aðgang að...
Published 06/21/23
Róbert Bjarnason framkvæmdastjóri Íbúar.ses fræðir okkur um gervigreind. Umfjöllun þessa þáttar er í anda EDIH,  eða Miðstöðvar stafrænnar nýsköpunar - Hvað er gervigreind?  Forrit með töfradufti?  Hvaðan koma töfrarnir?  En gögnin eru þau góð og hver ákveður og stjórnar?   Mættum með 5 verkefni daglegs lífs sem við sjáum fyrir okkur að gervigreind gæti hjálpað okkur með.  Missum okkur svo í restina yfir fréttum vikunnar um að Íslenska verði annað tungumál ChatGPT.  Ótrúlegar fréttir og...
Published 03/17/23
Framtíðin mætti í settið til að ræða tónlistarsköpun með gervigreind. Þórhallur Magnússon prófessor í framtíðartónlist við tónlistadeild Sussex háskólans og rannsóknarprófessor við Listaháskóla Íslands mætir og ræðir um gervigreind, sköpun og tónlist. 24. þáttur Auðvarpsins fjallar um mál málanna í dag.  Hvað er gervigreind? Hvað er tónlist?  Hvernig lýtur næsta hljóðfæri út?  Hvernig nýtist gervigreindin í tónlistarsköpun? Þórhallur er hafsjór fróðleiks um gervigreind, hljóðfæri og sköpun. ...
Published 02/27/23
Háskólinn í Reykjavík og nýsköpunin á afmælisdegi Auðnu! Í 23. þætti Auðvarpsins hittum við fyrir rektor Háskólans í Reykjavík, Ragnhildi Helgadóttur. Við ræðum Nýsköpun í háskólastarfi, erindi háskólanna í síbreytilegu samfélagi nútímans.  Hvernig við ýtum undir meiri og skarpari nýsköpun innan úr vísindastarfinu. Hvernig standa háskólarnir á Íslandi í alþjóðlegum samanburði og hvernig kennum við fólkinu okkar að það sé þroskandi að hnjóta, af því lærum við mest! En við byrjum að sjálfsögðu...
Published 12/06/22
Nýsköpunarsjóður er brúin yfir og vinin í dauðadalnum! Í 22. þætti Auðvarpsins förum við yfir fjármögnunarumhverfi nýsköpunar á Íslandi, séð frá sjónarhóli Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Sem fagnar 25 ára afmæli sínu á næsta ári! Framkvæmdastjóri sjóðsins, Hrönn Greipsdóttir er gestur þáttarins. Við byrjum samt á allt öðru, við byrjum á hótel Sögu sem við söknum, um leið og við fögnum nýju hlutverki hússins sem hluti af háskólasamfélaginu í Vatnsmýrinni. Hlutverk sjóðsins í umhverfinu er að...
Published 10/24/22
Vorum á jaðrinum en erum núna í miðju hringiðunnar! Jón Atli Benediktsson Vísindamaður, Professor og Rektor Háskóla Íslands er gestur 21. þáttar Auðvarpsins. Við förum yfir ferilinn,  upphafið og ástríðuna sem fylgir því að vinna að skemmtilegum verkefnum með skemmtilegu fólki,  bæði innanlands og utan.  Jón Atli fer yfir alþjóðlegt samstarf sem HÍ er aðili að og leiðtogahlutverk okkar litla Háskóla. Mikil tækifæri eru fólgin í frekara samstarfi háskóla á Íslandi, þar sem verkefnið er að...
Published 10/10/22
Miðstöð snjallvæðingar stofnuð á Íslandi með 300 milljón kr. framlagi frá EU 20. þáttur Auðvarpsins fjallar um Miðstöð snjallvæðingar.  Til að ræða Miðstöðina,  þýðingu hennar og hlutverk koma Theodór Gíslason Tæknistjóri og einn stofnenda Syndis og Helga Waage Tæknistjóri og einn stofnenda Mobilitus í þáttinn. Við förum um víðan völl í umræðum um gervigreind, öryggismál,  þýðingu Íslenskunnar fyrir snjallvæðinguna,  menntun á mjög breiðum grunni,  gagnatengingar og allskonar skemmtilegt. Við...
Published 07/04/22
Nú eru það stóru málin, tekið upp á sjötta degi innrásar Rússa inn í Úkraínu sem hittir á sjálfan Sprengidaginn.   19. þáttur Auðvarpsins er helgaður tölvuöryggismálum.  Í þáttinn kemur einn helsti öryggissérfræðingur landsins, sem vill sjálfur kalla sig atvinnuhakkara; Theodór Gíslason Tæknistjóra og einn stofnenda Syndis. Við kynnumst Theodor aðeins og fræðumst um ástæður þess að hann varð og er hakkari.  Þar hjálpaði alvarlegt slys við Hagaskólann árið 1994, þar sem hann lenti undir...
Published 03/02/22
Fersk úr atkvæðagreiðslu, þar sem stofnun nýs nýsköpunarráðuneytis;  Ráðuneyti háskóla, iðnaðar og nýsköpunar var samþykkt, kemur ráðherrann til okkar í Auðvarpið og ræðir sína sýn á málaflokkinn. Í 18 og jafnframt fyrsta þátt endurreisnarársins 2022 kemur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar til okkar í Auðvarpið og fræðir okkur um hvernig pólitísk nýsköpun fer fram. Hvernig hún vill spila sóknarleik við nýsköpun samfélagsins.  Að ráðuneytið eigi að markast...
Published 01/27/22
Táknmynd 17. Þáttar er búin til af gervigreind.  Þar sem Dr. Hafsteinn viðmælandi þáttarins stjórnar ferðinni og er þá listamaðurinn, eða hvað?  (sjá nánar neðst í textanum) 17. og jafnframt síðasti þáttur ársins 2021 er helgaður gervigreind og listinni.  Við ræðum tengingu gervigreindar, vitvéla, ofurtölva og listaverka!  Við komumst að því hvort hægt er að búa til listaverk með hjálp tölva með aðferðum gervigreindarinnar. Dr. Hafsteinn Einarsson kemur til okkar og fer yfir rannsóknir sínar...
Published 12/30/21
16. þáttur er helgaður, já þið giskuðu rétt, hann er helgaður hugverkarétti.  Í þessum þætti leggjum við áherslu á fólkið, á launþega og spjöllum um samfélag framtíðarinnar sem gæti verið samfélag hugverksins.   Formaður BHM Friðrik Jónsson og formaður Samtaka Iðnaðarins Árni Sigurjónsson skrifuðu saman grein um hugverkaiðnaðinn.  Þar sáu þeir tveir herramenn marga snerti fleti á milli launþega og atvinnurekenda er varðar uppbyggingu og hönnun á samfélagi byggt á hugverkum. Friðrik er...
Published 11/19/21
15. þáttur er helgaður hugverkarétti,  hvernig sá réttur er lykillinn að samkeppnisforskoti og almennt betra lífi hér á landi.  Bæði fyrir fyrirtækin og fólkið okkar. Hugverkastofa stendur fyrir mjög svo áhugaverðri afmælisráðstefnu þann 4. Nóvember 2021,  þar sem haldið verður upp á 30 ára afmæli stofunnar með því að ræða hugverkarétt í tengslum við sjálfbærni – aldeilis þarft og áhugavert efni,  sem við förum aðeins inná í þættinum.  Við fáum Sigríði Mogensen sviðsstjóra iðnaðar og...
Published 11/02/21
Í þessum 14. þætti Auðvarpsins ræðum um mjög áhugavert og heitt mál í samtímanum; Gervigreind og vitvélar.  Hvað er Gervigreind?  Hvernig skilgreinum við greind og getur hún yfirleitt verið gervi?   Dr. Kristinn R. Þórisson forstöðumaður Vitvélastofnunar Íslands er gestur þáttarins.   Dr. Kristinn er margfróður um umræðuefnið og hjálpar okkur að skilja fyrirbærið greind og gervigreind.  Hvar eru fræðin stödd?   Sömuleiðis ræðum við um áhrifin á samfélagið okkar.  Við ræðum um misskiptingu...
Published 10/26/21
Í þessu Auðvarpi ræðum við um mál málanna.  Hvernig fæðum við heiminn?  Hvernig nýtum við vísindin til að efla fæðuöryggi, bæði okkar og alls heimsins. Er erfðafræði svarið? Eru skordýrin svarið?   Hvernig nýtum við tímavélar til að flýta þróun plantna þannig að þær þjóni okkur betur, séu “umhverfisvænni“, að þær geti betur varist sjúkdómum og ásókn sníkjudýra. Hver eru tækifærin á Íslandi og hvernig stuðlum við að samtali á milli vísinda, bænda og samfélagsins.  Hvernig getur hið opinbera...
Published 10/11/21
X-Nýsköpun Jón Steindór Valdimarsson Jón Steindór Valdimarsson er fulltrúi Viðreisnar í síðasta pólitíska þættinum,  allavega í bili. Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun,  þekkingu,  hlutverk ríkisins í stýringum á áherslum í nýsköpun.  Jón hefur verið viðloðandi nýsköpunarumhverfið í langan tíma og hefur frá mörgu að segja. Tólfti þáttur Auðvarpsins er jafnframt sjötti og síðasti þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum...
Published 08/18/21
X-Nýsköpun Ólafur Þór Gunnarsson Ólafur Þór Gunnarsson kemur hjólandi í þennan þátt.  Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun,  þekkingu,  hlutverk ríkisins í Nýsköpun og margt margt fleira.  Eins og við er að búast er lækninum Ólafi tíðrætt um nýsköpun í heilbrigðisgeiranum. Ellefti þáttur Auðvarpsins er jafnframt fimmti þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er...
Published 07/16/21
X-Nýsköpun, Smári McCarthy Smári McCarthy er gestur okkar í þessum þætti.  Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun,  þekkingu,  hlutverk ríkisins í Nýsköpun og margt margt fleira.  T.d. hvernig við Íslendingar gætum eignast okkar eigin geimfara. Tíundi þáttur Auðvarpsins er jafnframt fjórði þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun....
Published 07/02/21
X-Nýsköpun, Logi Einarsson Logi Einarsson er gestur okkar í þessum þætti, sem ber undirtitilinn „með Loga“.  Hann fer yfir hugmyndir sínar og Samfylkingarinnar um vísindalega nýsköpun og hlutverk hennar í framþróun samfélagsins. Níundi þáttur Auðvarpsins er þriðji þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.   Hvernig byggjum við upp þekkingasamfélag...
Published 06/25/21
X-Nýsköpun, Lilja Alfreðsdóttir Lilja Alfreðsdóttir er gestur okkar í þessum þætti.  Hún fer yfir hugmyndir sínar og Framsóknarflokksins um vísindalega nýsköpun og hlutverk hennar í framþróun samfélagsins. Áttundi þáttur Auðvarpsins er annar þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.   Hvernig byggjum við upp þekkingasamfélag þar sem við nýtum okkur...
Published 06/03/21
X-Nýsköpun, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir heimsækir okkur Einar Mäntylä í Grósku og deilir sínum hugmyndum um hlutverk vísindalegrar nýsköpunar í samfélaginu okkar. Sjöundi þáttur Auðvarpsins er í raun fyrsti þáttur sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.   Hvernig byggjum við upp þekkingasamfélag þar sem við nýtum...
Published 06/03/21
Dagana 4. til 7. maí 2021 stendur Auðna Tæknitorg fyrir lausnamóti í samstarfi við Landsbjörgu og fleiri aðila.  Hugmyndin að baki lausnamótinu er að stefna saman hópi fólks með mismunandi menntun, bakgrunn og reynslu til að hanna og setja fram lausnir á fyrirfram skilgreindum áskorunum.         Áskoranirnar koma frá björgunarsveitarfólkinu sjálfu og var safnað saman í aðdraganda lausnamótsins.         Í þættinum förum við yfir fjölbreytt hlutverk björgunarsveita á Íslandi og þær áskoranir...
Published 04/28/21
Í tilefni af alþjóðadegi hugverkaverndar - World Intellectual Property day, þann 26. apríl 2021 fáum við Tatjönu Latinovic hugverkastjóra Össurar og Guðmund Þór Reynaldsson hugverkastjóra Marel í heimsókn.  Hugverkadagurinn er að þessu sinni helgaður...
Published 04/26/21