Nýsköpun, vísindin og við - Landsbjörg og lausnamótið með Guðbrandi Erni Arnarsyni
Listen now
Description
Dagana 4. til 7. maí 2021 stendur Auðna Tæknitorg fyrir lausnamóti í samstarfi við Landsbjörgu og fleiri aðila.  Hugmyndin að baki lausnamótinu er að stefna saman hópi fólks með mismunandi menntun, bakgrunn og reynslu til að hanna og setja fram lausnir á fyrirfram skilgreindum áskorunum.         Áskoranirnar koma frá björgunarsveitarfólkinu sjálfu og var safnað saman í aðdraganda lausnamótsins.         Í þættinum förum við yfir fjölbreytt hlutverk björgunarsveita á Íslandi og þær áskoranir sem þær standa frammi fyrir á hverjum degi.  Við ræðum hvernig við sem samfélag getum hjálpað björgunarsveitunum.  Hvernig getum við orðið að liði við að bregðast við þessum áskorunum og komið með lausnir? Lausnir sem síðar gætu orðið að búnaði eða vöru sem gæti gagnast björgunarsveitum um allan heim í störfum sínum.  Getum við t.d. nýtt okkur reynslu Evrópsku Geimvísindastofnunarinnar (ESA) við gerð hlífðarfatnaðar eða næringar?          Til að þetta megi takast þurfum við fjölbreyttan hóp þátttakenda, allt frá listamönnum, næringafræðingum og heilbrigðisstarfsfólki til tölvunarfræðinga  og verkfræðinga og allt þar á milli.           Allar frekari upplýsingar um samstarfsaðila, dagskrá og fyrirkomulag er að finna á audna.is Skráning er hér: https://ice-sar.missions.dev/en/event/
More Episodes
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum. Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun.  Það er eina...
Published 01/30/24
Gervigreindin á hug okkar allann.  Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn. Regluverkið!  Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina?  Hver myndi þá gera það og af hverju? Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru.  Við förum...
Published 01/10/24