X-Nýsköpun, vísindin og við - Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
Listen now
Description
X-Nýsköpun, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir heimsækir okkur Einar Mäntylä í Grósku og deilir sínum hugmyndum um hlutverk vísindalegrar nýsköpunar í samfélaginu okkar. Sjöundi þáttur Auðvarpsins er í raun fyrsti þáttur sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.   Hvernig byggjum við upp þekkingasamfélag þar sem við nýtum okkur framþróun í vísindum og rannsóknum samfélaginu til heilla? Fyrst til að stíga á stokk er ráðherra nýsköpunarmála Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur.  Í þættinum förum við yfir víðan völl tækifæranna.  Ræðum útflutning á vetni, húshitun í Þýskalandi,   hvernig hitaveituvæðingin var ígildi tunglskots á sínum tíma.  Hvernig við getum sannanlega haft áhrif til góðs á  hnattrænar áskoranir eins og loftslagsmálin, orkuskiptin og fleira. X-Nýsköpun
More Episodes
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum. Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun.  Það er eina...
Published 01/30/24
Gervigreindin á hug okkar allann.  Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn. Regluverkið!  Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina?  Hver myndi þá gera það og af hverju? Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru.  Við förum...
Published 01/10/24