X-Nýsköpun, vísindin og við - Ólafur Þór Gunnarsson
Listen now
Description
X-Nýsköpun Ólafur Þór Gunnarsson Ólafur Þór Gunnarsson kemur hjólandi í þennan þátt.  Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun,  þekkingu,  hlutverk ríkisins í Nýsköpun og margt margt fleira.  Eins og við er að búast er lækninum Ólafi tíðrætt um nýsköpun í heilbrigðisgeiranum. Ellefti þáttur Auðvarpsins er jafnframt fimmti þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.   Hvernig nýtum við okkur þekkingu og hugmyndir fólksins í landinu til að byggja upp betra samfélag?  Gerist þetta að sjálfu sér og hvernig geta stjórnvöld hjálpað? Í þessum þætti er áherslan á heilbrigðistæknina,  hvernig ýtum við undir og hjálpum okkar fólki að skapa og gera samfélagið betra.  Eru t.d. viðbrögð okkar og stjórnun í heilbrigðiskerfinu á tímum heimsfaraldurs til útflutnings?  Ólafur fer yfir málið ásamt því t.d. að ræða hvernig samfélagið getur ýtt undir ábyrga hegðun frumkvöðla með því að vera til staðar í upphafi og styðja vel við bakið á nýsköpun. X-Nýsköpun
More Episodes
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum. Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun.  Það er eina...
Published 01/30/24
Gervigreindin á hug okkar allann.  Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn. Regluverkið!  Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina?  Hver myndi þá gera það og af hverju? Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru.  Við förum...
Published 01/10/24