X-Nýsköpun, vísindin og við - Jón Steindór Valdimarsson
Listen now
Description
X-Nýsköpun Jón Steindór Valdimarsson Jón Steindór Valdimarsson er fulltrúi Viðreisnar í síðasta pólitíska þættinum,  allavega í bili. Hann fer yfir hugmyndir sínar um vísindalega nýsköpun,  þekkingu,  hlutverk ríkisins í stýringum á áherslum í nýsköpun.  Jón hefur verið viðloðandi nýsköpunarumhverfið í langan tíma og hefur frá mörgu að segja. Tólfti þáttur Auðvarpsins er jafnframt sjötti og síðasti þátturinn í sérstakrar seríu tileinkaða stjórnmálum.  Í seríunni tökum við á móti fulltrúum stjórnmálaflokka á Íslandi og ræðum þeirra hugmyndir og stefnu er varðar vísindalega nýsköpun.   Í þessum þætti deilir Jón með okkur sinni sýn.  Hann varar okkur við of mikilli stýringu,  fer yfir fortíðina og hvað við getum lært af fyrri áherslum og ákvörðunum,  t.d. er varðar loðdýrarækt og innleiðingu hitaveitunnar.  Hann fer sömuleiðis yfir eigin feril í nýsköpun,  hvernig hann ásamt félögum sínum sá tækifæri í geisladisknum og hvernig það tækifæri kom og fór. X-Nýsköpun
More Episodes
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum. Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun.  Það er eina...
Published 01/30/24
Gervigreindin á hug okkar allann.  Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn. Regluverkið!  Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina?  Hver myndi þá gera það og af hverju? Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru.  Við förum...
Published 01/10/24