Episodes
Hlynur Höskuldsson Bráðatæknir, sagði frá þjálfun Úkraínskra hermanna sem slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefur komið að síðan í maí 2023.
Published 10/21/23
Published 10/21/23
Bráðavarpið var á EMS2022 í Glasgow. Í þættinum fáum við örlitla innsýni í það hvað er um að vera á svona ráðstefnum og fáum létta leiðsögn um sýningarsvæðið á hvað þar fyrir augu ber.
Published 05/24/22
Bráðavarpið er á EMS 2022 í Glasgow í Skotlandi. Í þessum þætti fengium við þá Arnar Pál Gíslason bráðatækni og nýjan formann fagdeildar sjúkraflutningamanna og Sverri Örn Jónsson bráðatækni til þess að fara yfir atburði dagsins með okkur.
Published 05/04/22
Aldís Arna Tryggvadóttir streituráðgjafi kom til okkar í Bráðavarpið og fræddi okkur um streitu, hver eru einkenni streitu, hvað er hægt að gera í henni og allt þar á milli. Bráðavarpið er styrkt af landssambandi slökkviliðs og sjúkraflutningamanna. Sendið okkur endilega póst á [email protected] ef þið hafið hugmynd af umfjöllunar efni sem Bráðavarpið ætti að taka fyrir! Eins getið þið sent okkur skilaboð á Instagram og Facebook @bradavarpid.
Published 01/20/22
Brad Newbury, bráðatæknir og eigandi National Medical Education and Training Center, kom í spjall í Bráðavarpið. Brad Hélt fyrirlestur um erfiðar ákvarðanir, á námsstefnunni Á vakt fyrir Ísland sem haldin var dagana 22. og 23. október. við fengum Brad til þess að setjast niður með okkur og segja okkur í stuttu máli um hvað fyrirlestur hans fjallaði og einnig sagði Brad okkur frá skólanum sem hann rekur í Boston.
Published 10/23/21
Tómas Guðbjartsson hjarta og lungnaskurðlæknir hélt áhugaverðan fyrirlestur á námsstefnunni Á vakt fyrir Ísland, sem haldin er að Landssambandi slökkviliðs og sjúkraflutningamanna á dögunum. Þar ræddi Tómas um meðferð hníf og skotáverka á Íslandi. Við fengum Tómas til þess að setjast niður með okkur í Bráðavarpinu og segja okkur frá fyrirlestrinum og fleira!
Published 10/23/21
Sigríður B. Þormar, Sálfræðingur og hjúkrunarfræðingur kom í spjall til okkar og fór yfir það hvernig gott væri að nálgast aðstandendur og aðkomendur að slysum og eða alvarlegum veikindum. Þátturinn er eins og venjulega í samstarfi við Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningamanna. Við minnum á námsstefnuna ,,Á vakt fyrir Ísland" sem fer fram dagana 22 og 23 Október næst komandi. Skráning á lsos.is
Published 10/08/21
Már Kristjánsson Yfirlæknir á A7 smitsjúkdómadeild LSH og yfirmaður farsóttarnefndar LSH var gestur Bráðavarpsins í dag. Már kom til okkar í spjall í janúar 2020 og fannst okkur rétt að taka spjallið aftur, nú rúmu einu og hálfu ári síðar.
Published 09/27/21
Heimilsofbeldi er málefni sem þarf að ræða opinskátt. Til þess fengum við þær Drífu Jónasdóttur og Erlu Sigríði Sigurðardóttur í Bráðavarpið. Þær hafa hvor á sínu sviði kafað ofan í málin og deila hér með okkur sinni reynsu, þekkingu of sýn á hvernig heilbrigðisstarfsfólk ætti að nálgast verkefnið sem er heimilsofbeldi. Hér er linkur á skýrslu Drífu sem rædd er í...
Published 09/03/21
Svandís Svavarsdóttir Heilbrigðisráðherra mætti í spjall í Bráðavarpið og fór yfir skýrslu starfshóps um framtíðarsýn í sjúkraflutningum og bráðaþjónustu til árins 2030. Málefni bráðaþjónustunnar eru ráðherra greinilega hugleikin og því mjög gaman að ræða þessa hluti við hana! Virkilega áhuga vert spjall sem er vel þess virði að hluta á!
Published 08/23/21
Yousef Ingi Tamimi Hjúkrunafræðingur og Sjúkraflutningamaður í Svíþjóð kom í spjall til okkar í Bráðavarpið og fór yfir utanspítalaþjónustukerfið í Svíþjóð. Við ræddum einnig sjúkraflutninga í Svíþjóð á Covid tímum og margt annað skemmtilegt!
Published 07/14/20
Þá er komið að síðasta en alls ekki síðsta hlutanum af spjalli okkar við Höskuld Sverri Friðriksson. Í þættinum förum við meðal annars yfir ferðir hans til Líbanon og Nígeríu og svo margt fleira.
Published 05/04/20
Við höldum áfram með spjall okkar við Höskuld Sverri Friðriksson. En í þessum þætti fer hann yfir árin í Bandaríkjunum, lengsta sjúkraflutninginn og svo ótrúlega margt annað! þriðji þáttur af af spjalli við Höskuld kemur svo út mánudaginn 4 maí.
Published 05/01/20
Höskuldur Sverrir Friðriksson Bráðatæknir til rúmlega 30 ára hefur svo sannarlega frá mörgu að segja! Okkur fannst tilvalið á þessum skrítnu tímum að setjas niður með honum og fara yfir ferilinn og hvað á daga hans hefur drifið! Við vekjum athygli á því að þetta er fyrri þáttur af tvemur, seinni þátturinn kemur út næst komandi föstudag 1 maí.
Published 04/26/20
Við beindum kastljósinu að Covid19 verkefninu sem gengur yfir heiminn þessa dagana í Bráðavarpinu í dag. En við fengum þá Jóhann Má Ævarsson sérnámslækni í heimilslækningum og Bergþór Stein Jónsson sérnámslækni í Bráðalækningum í Minnisota til þess að fara yfir sjúkdóminn og þau inngrip og meðferðir sem verið er að prufa víðsvegar um heiminn. í fyrrihluta þáttarins sagði Loftur Einarsson slökkviliðs og sjúkraflutningamaður okkur frá því hvernig er að vera með Covid19. En hann greindist með...
Published 03/30/20
Aldís Þóra Harðardóttir Kírópraktor hjá Sjúkraþjálfun Selfoss kom í Bráðavarpið og fór yfir stoðkerfisverki, þá aðalega bakverki með okkur. Hvernig ber að beita sér rétt þegar til dæmis sjúklingum er lyft? Hver eru einkenni brjósklos?
Published 03/26/20
Hjúkrunarfræðingarnir Signý Sveinsdóttir og Þórdís Edda Hjartardóttir héldur erindi á Bráðadeginum 2020 og kynntu þar gæðaverkefni sem þær hafa unnið að á bráðamóttöku Landsspítalans undan farið. Verkefnið snýr að því að vekja heilbrigðisstarfsfólk til umhugsunar um notkunar sírita eða mónitora við umönnum sjúklinga.
Published 03/06/20
Már Kristjánsson yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landsspítalans og Hjálmar Björgvinsson deildarstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra komu í Bráðvarpið og sögðu okkur frá kóronaveirunni sem kennd er við Wuhan hérað í Kína sem geysar um heiminn þessa dagana. https://www.landlaeknir.is/um-embaettid/greinar/grein/item38806/Koronaveiran-2019-nCoV-%E2%80%93-Frettir-og-fraedsla/Novel-coronavirus-2019-nCoV--Latest-updates-and-info
Published 01/29/20
Björgvin Óli Ingvarsson Sjúkraflutningamaður og forgangsakstursþjálfari kom til okkar í Bráðavarpið og fór yfir það með okkur hvernig ber að haga akstri á forgangi. Hvaða tækni er gott að nota, hvað ber að varast og svo framvegis. Hér kemur linkur á rannsókn sem gefin var út í Bandaríkjunum í Júlí 2019: https://www.annemergmed.com/article/S0196-0644(18)31325-8/pdf
Published 12/01/19
Hvað gera þeir um borð í sjúkraflugvél Mýflugs? Er eitthvað öðruvísi við að vinna við sjúkling umborð í flugvél eða sjúkrabíl? Svör við þessum spruningum og miklu fleiri er að finna í þessum þætti af Bráðavarpinu. Anton Berg Carrasco Bráðatæknir hjá Slökkviliði Akureyrar kom og sagði okkur frá sjúkrafluginu.
Published 11/15/19
Mark Dixon Bráðatæknir hélt fyrirlestur á ráðstefnunni á vakt fyrir Ísland. Þar fjallaði hann um nám sjúkraflutningamanna sem og nýja rannsókn sem háskólinn í Limerick, þar sem Mark er kennlsustjóri, gerði um háls og hryggáverka. Hér er linkur á þá rannsókn: https://emj.bmj.com/content/32/12/939
Published 10/19/19
Dr. Richard Lyon hélt fyrirlestur á námsstefnunni á vakt fyrir Ísland þar sem hann fór yfir það hvaða verklag utanspítalaþjónustan í London styðst að miklu leiti við en það er sjúkraþyrluþjónustan HEMS.
Published 10/19/19
Reynir Guðjónsson öryggisstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, hélt fyrirlestur á námsstefnunni Á vakt fyrir Ísland. Fyrirlesturinn ber nafnið ,,Hvað er öryggi?" Við fengum Reyni í stutt spjall í Bráðavarpið um öryggi!
Published 10/18/19
Doktor Sveinbjörn Gizurarson kom í viðtal í Bráðavarpið og fræddi okkur um eiturefni og viðbrögð við eiturefnaslysum. Hann talaði einnig um byltingarkenndan nefúða sem brýtur upp krampa sem hann hefur þróað og er á leiðinni á markað í Ameríku.
Published 10/18/19