Episodes
Í þættinum í dag er fjallað um ADHD og nám. Fjallað um trix og tól sem hafa nýst einstaklingum með ADHD til að ná betri tökum námi og námsskipulagi. Vilt þú senda inn hugmynd inn í Dótakassann? Hámarksárangur í námi með ADHD
Published 12/10/21
Published 12/10/21
Í þættinum í dag er fjallað um ADHD. Fjallað er um helstu hugtök og pælingar sem oft koma til tals í kringum ADHD og þegar fólk er að velta því fyrir sér hvort það sé með ADHD.  Hvað er ADHD? Hvaða áhrif hefur það á fólk? Tenglar: Ertu með hugmynd að efni fyrir Dótakassann? ADHD samtökin Lífið með ADHD 
Published 10/19/21
Í þættinum í dag er fjallað um hversvegna gott getur verið að setja sér markmið og hvernig hægt er að brjóta stór markmið upp í lítil skref og ná þannig aukinni færni og betri árangri í því sem við erum að fást við. Tenglar á efni sem tengjast efni þáttarins: - Að setja sér markmið - SMART markmið - Markmiðsetning
Published 10/05/21
Í þættinum í dag er fjallað um að taka stöðuna á sjálfu sér og verkefnunum sem við erum að takast á við. Horfum inn í veturinn. Hvað viljum við gera öðruvísi í vetur en í fyrra og hvernig byrjum við á því að skipuleggja taktíkina hjá okkur og setja okkur í stellingar til að ná þeim markmiðum og áföngum sem við stefnum að. 
Published 08/20/21
Þessi þáttur er fyrsti þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan.  Í þættinum í dag verður fjallað um mikilvægi þess að tengjast öðrum en allar manneskjur eru félagsverur og það er okkur öllum mikilvægt að eiga í góðum og nærandi tengslum við fjölskyldu okkar og vini. Í þættinum er fjallað um hvers vegna þetta er mikilvægt og hvernig við getum haft áhrif á okkur sjálf og samskipti okkar við aðra.   Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/     
Published 05/06/21
Þessi þáttur er annar þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan.  Í þessum hluta er fjallað um mikilvægi hreyfingar. Rætt um hvaða hreyfing er góð og reynum að komast að því hvaða hreyfing hentar best.     Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/     
Published 05/06/21
Þessi þáttur er loka þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan.   Í þættinum í dag er farið yfir það hvernig við getum gefið af okkur til annara og til samfélgsins. Að gefa af sér hefur margvísleg jákvæð áhrif á okkur sjálf og á aðra og margt sem kemur til greina.  Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/    
Published 05/06/21
Þessi þáttur er þriðji þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan.  Í þessum  þætti er fjallað um hversu gott það getur verið að veita allskonar hlutum athygli. Hvernig við getum æft okkur í því að taka eftir jákvæðum og uppbyggilegum hlutum í kringum okkur og rætt um hvaða áhrif það getur haft á lífið okkar og það hvernig okkur líður.   Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/    
Published 05/06/21
Þessi þáttur  er fjórði þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan.  Í þættinum í dag er farið yfir hvers vegna það er góð hugmynd að leyfa sér að læra eitthvað nýtt út lífið. Að vera forvitin og læra eitthvað nýtt hefur margskyns jákvæð áhrif á heilsu og líðan og flestir hafa áhuga á að prófa eitthvað nýtt eða læra eitthvað sem þeir hafa ekki haft tök á að læra hingað til.  https://5leidir.blogspot.com/
Published 05/06/21
Í næstu þáttum veður fjallað um 5 leiðir að vellíðan. Um er að ræða fimm mikilvæga þætti sem hafa áhrif á heilsu okkar og líðan.   Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/     
Published 05/06/21
Í 25. þætti er farið yfir pófatímabil og prófaundirbúning.  Núna eru margir að fara í próf og því var ákveðið henda í stutt prófaprepp. Hvernig á að undirbúa sig fyrir próf og hvað er hægt að gera í til að tækla stress í prófum og ná sem bestum árangri. 
Published 04/30/21
Í 24 þætti fer ég um ganga í Menntaskólanum við Hamrahlíð og heyri í nemendum, kennurum og rektor. Í dag er fyrsti skóladagur annarinnar og nemendur aftur byrjaði að mæta í skólann. Hvernig hafa þau það?, hvernig líst þeim á þetta? og hvað er framundan?
Published 01/06/21
í 23. þætti skoðum við það hvernig við bregðumst stundum við á endasprettinum undir lok annar. Hvernig mikið álag kallar stundum fram hugsanaskekkjur og hvernig við þurfum að kortleggja þau atriði sem mikilvægast er að fókusa á til að draga úr stressi...
Published 11/21/20
Í dag fjalla ég um hvernig við getum kortlagt aðstæðurnar okkar, stillt væntingarnar okkar og haft góð áhrif á okkur sjálf. Mín verkefni - mín ábyrgð. Hvernig ég nálgast hlutina hefur áhrif á það hvernig mér líður og hvernig mér gengur....
Published 10/10/20
Í 21. þætti er ég að velta fyrir mér því þegar við erum stöðugt að horfa í baksýnisspegilinn og rifja upp gamlar minningar og erfið augnablik. Ég ræði aðeins um hvernig minnið okkar er ekki alltaf 100% og að við getum stundum lent í því að vera að...
Published 08/05/20
Í 20. þætti kom Ásthildur Guðlaugsdóttir náms- og starfsráðgjafi í Kársnesskóla í spjall og fór yfir stöðuna með mér. Í þættinum spjölluðum við um hvað gott er að hafa í huga þegar nemendur eru að velja sér nám og máta sig við ólíka framhaldsskóla....
Published 05/27/20
Í 19. þætti fjöllum við um rafræn heimapróf og pælum í því hvernig gott er að undirbúa sig fyrir komandi prófatörn. Ásdís Birgisdóttir námsráðgjafi kom í símaviðtal og fór yfir hagnýtar pælingar í kringum þessi mál og það er alveg á hreinu að það er...
Published 04/27/20
Í 18. þætti Dótakassans er fjallað um bestu ár lífsins og hversu mikilvægt það er að fara annað slagið út fyrir þægindarammann sinn. Með því að ögra okkur sjálfum reglulega náum við oft að stækka þægindarammann okkar og þá erum við betur tilbúin til að...
Published 04/03/20
Í 17. þætti tók ég upp símann og hringdi í nemendur og kennara í MH og heyrði í þeim hljóðið eftir tvær vikur í samkomubanni. Hvernig gengur? Hvernig upplifun er þessi nýji raunveruleiki? Þetta eru skemmtileg samtöl og það er áhugavert að heyra ólíkar...
Published 03/30/20
Í 16. þætti er fjallað um þumalputtaregluna 3:1 og hversu mikilvægt það er að fókusa á jákvæða og uppbyggilega hluti í kringum okkur.  Stuttur þáttur í dag en mikilvægur.Tenglar:Framhahaldsskólanemar - hvað getið þið...
Published 03/26/20
í 15. þætti kom Erla Guðmundsdóttir heilsumarkþjálfi, crossfitþjálfari, ungbarnasundskennari og menntaskólakennari í frábært spjall og sagði frá því hvað mikilvægt er að hafa í huga ef við viljum hugsa um heilsuna. Þetta þarf ekki að vera flókið en það...
Published 03/23/20
Í 14. þætti hringdi ég í nokkra nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hvernig gengur á tímum samkomubanns? Hvernig gengur félagslega og hvernig gengur námið? Ef þú vilt koma í viðtal í Dótakassann, sendu þá endilega tölvupóst á netfangið:...
Published 03/20/20
í 13. þætti pælum við aðeins í frestunaráráttu og hvernig við getum tekist á við hana og lagt okkur fram við að leysa verkefnin okkar hverju sinni. Tenglar:Hvernig er staðan í dag? Verkefnin mínNámstækni
Published 03/19/20
Í 12. þætti kynnum við til dót dagsins og í dag verður fjallað um mikilvægi jákvæðra frétta og jákvæðra samskipta. Á næstunni verða gefnir út svona stuttir þættir þar sem áherslan verður á jákvæð og uppbyggileg atriði sem við getum nýtt okkur til að...
Published 03/16/20