Líkamsímynd barna
Listen now
Description
Líkamsímynd barna er mikilvægur þáttur í lífi barns. Við gerum okkar allra besta að hjálpa börnum að þróa með sér jákvæða líkamsímynd en það er þó ekki alltaf auðvelt í samfélagi sem matar okkur á staðalímyndum og ranghugmyndum um líkama okkar. Ég fékk frábæra konu, hana Elvu Ágústsdóttur í viðtal til mín, en hún hefur skoðað líkamsímynd og sjálfsmynd barna náið, ásamt því að vera í stjórn samtakana um líkamsvirðingu. Í þættinum ræðum við mikilvægi jákvæðrar líkamsímyndar fyrir börn og hvernig er best að mæta börnum þegar kemur að líkamsímynd og sjálfsmynd barna. Það getur verið snúið, en með aukinni fræðslu um líkamsvirðingu, getum við hjálpað börnunum okkar að öðlast jákvætt samband við líkama sinn, í gegnum allar breytingar. Fyrir áhugasama, þá fer Elva yfir líkamsímynd kvenna ásamt öðru tengt jákvæðri líkamsmynd á instagram : elvaagustsdottir 
More Episodes
Anja stjúpdóttir mín er 13ára og nýbúin að kynnast heimi samfélagsmiðla. Hún fékk þessa frábæru hugmynd að ræða jákvæða líkamsímynd út frá sjónarmiðum ungmenna. 
Published 02/06/20
Published 02/06/20
Fyrsti þátturinn þar sem Ernuland Podcast er með viðmælanda, en það er hún Árný Guðjónsdóttir. Árný er frábær karakter með bein í nefinu og ég hef lært mikið af henni þegar kemur að líkamsvirðingu. Einnig er Árný tveggja barna móðir, admin með mér á facebook-síðunni Jákvæð líkamsímynd og að klára...
Published 12/29/19