Episodes
Vigdís segir okkur frá starfsemi hjá Stafrænu Íslandi Vigdís Jóhannsdóttir er markaðsstjóri hjá Stafrænu Íslandi, stjórnarformaður Hannesarholts, formaður handknattleiksdeildar Víkings og í stjórn FKA eða Félag kvenna í atvinnulífinu. Áður starfaði hún hjá auglýsingastofunni Pipar, 365 miðlum og var kosningastjóri Höllu Tómasdóttur í forsetakosningunum árið 2016. - Key of Marketing
Published 04/14/22
Tony Robbins Íslands, hann hann Nökkvi Fjalar Orrason kom til okkar í hlaðvarpið Föngum viðskiptavini saman. Nökkvi hefur verið í sviðsljósinu á Íslandi fyrir hitt og þetta, á ferlinum hefur stefnan verið að hjálpa fólki að vera besta útgáfan af sjálfu sér. Í dag rekur hann Swipe sem er áhrifavalda umboðsskrifstofa sem leggur áherslu á TikTok. Nökkvi segir okkur frá ferlinum, 12:00, Áttunni, leikaraferlinum, áhrifavaldamarkaðssetningu, Swipe og hvernig Nökkvi Fjalar brandið varð Nökkvi...
Published 01/26/22
Við fengum Stefán Atla markaðsfulltrúa og Franz Gunnarsson sviðsstjóra hjá 1819 Torginu í heimsókn. Torgið er ný eining innan 1819 sem hefur verið í þróun síðustu 2 ár. Þeir segja okkur nánar frá því en Torgið er nýr viðskiptavettvangur þar sem þú færð allt sem þig vantar á besta verðinu. Þú getur náð þér í appið strax í dag Við fórum svo aðeins út fyrir efnið og töluðum um Metaverse, NFT og mögulega framtíð samfélagsmiðla. - Key of Marketing
Published 12/19/21
Föngum viðskiptavini saman – 6. þáttur – Gísli Þorsteinsson Í þætti 6 af „Föngum viðskiptavini saman” fengum við hann Gísla Þorsteinsson til okkar, markaðsstjóra Gæðabakstur / Ömmubakstur. Gísli á farsælan feril að baki og starfaði m.a. í fleiri ár hjá Origo sem markaðsstjóri. Í þættinum segir hann okkur t.d. frá endurmörkun Nýherja sem við þekkjum í dag sem Origo ásamt fullt af góðum bransasögum og kemur inn á gagnleg ráð þegar kemur að markaðssetningu. - Key of Marketing
Published 11/16/21
Í þætti 5 af „Föngum viðskiptavini saman” fengum við hana Ósk Heiðu Sveinsdóttur til okkar, for­stöðumann þjón­ustu og markaða hjá Póst­in­um. Ósk er forvitin, orkumikil og hugmyndarík, í þættinum segir hún okkur frá leyndarmálinu sínu á bakvið að koma öllum þessum hugmyndum áfram og í framkvæmd. Hún hefur yfirgripsmikla reynslu af sölu og markaðsmálum meðal annars úr hátækni, ferðaþjónustu og smásölu. Ósk Heiða er með MSc gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands og BSc...
Published 09/30/21
Í þætti 4 af „Föngum viðskiptavini saman” fengum við hann Ólaf Jónsson til okkar, sérfræðing í stafrænni markaðssetningu. Óli Jóns eins og hann er kallaður er einstaklega skemmtilegur gestur í hlaðvarpið og þekkir það vel, enda heldur hann sjálfur úti hlaðvarpsþáttum sem snúast um markaðsmál. Hann starfar í dag sem markaðsráðgjafi hjá Jons.is og er í hlutastarfi hjá Birtingahúsinu. Óli Jóns á afar farsælan feril að baki, hann hefur verið lykilmaður í markaðsstarfi hjá þekktum fyrirtækjum í...
Published 08/19/21
Í þætti 3 af „Föngum viðskiptavini saman" fengum við hana Elfu Ragnarsdóttur til okkar. Elfa tekur þátt í uppbyggingu á nýrri bókunarsíðu fyrir ferðaiðnaðinn sem sölustjóri Ferðaeyjunnar. Í þættinum förum við yfir hugmyndina á bakvið Ferðaeyjuna, hvernig þau sinna kynningarmálum og fáum innsýn inn í frumkvöðlastarfið. - Key of Marketing
Published 08/05/21
Í þætti 2 af „Föngum viðskiptavini saman" fengum við hana Önnu Báru til okkar. Anna Bára starfar við markaðsþróun hjá Eflu sem er ein stærsta verkfræðistofa landsins.   Í þættinum förum við yfir teymisvinnu, efnismarkaðssetningu, LinkedIn, stafræna markaðssetningu og margt fleira.   - Key of Marketing
Published 06/30/21
Í þessum þætti kynna Oddur og Ægir hlaðvarpið „Föngum viðskiptavini saman" til leiks og spjalla um uppruna Key of Marketing. „Successinn mátti sjá á ÍMARK þegar Dóri DNA opnar kvöldið og segir Ég heiti Dóri DNA og er frá Key of Marketing og allir fóru að hlæja"
Published 06/10/21