Lífsreynslusögur Vikunnar
Listen now
Description
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Meiðandi orð: „Þegar dóttir mín veiktist af sjúkdómi sem síðar dró hana til dauða sagði ókunnugur maður eina setningu við mig sem hefur lifað með mér síðan. Enn skil ég ekki tilgang mannsins og mun eflaust aldrei gera það.“  - Neyð konunnar gekk mér að hjarta: „Fyrir nokkru var ég á leið heim frá sólarströnd í íslenskri flugvél. Skyndilega heyrðist rödd flugfreyjunnar í kallkerfinu og hún spurði hvort læknir væri um borð. Hjón gáfu sig fram og fljótlega var okkur öllum ljóst að í vélinni var kona haldin ofsahræðslu í alvarlegu kvíðakasti. Hún er greind með alzheimer á byrjunarstigi og var þarna ein á ferð og missti skyndilega allt veruleikaskyn og vissi ekki hvar hún var stödd.“  - Systir í samkeppni: „Ég er næstelst í systkinahópnum, á tvo bræður og eina systur, nokkrum árum yngri. Við systkinin vorum ágætlega samrýnd en á unglingsárunum fann ég að systir mín virtist vera komin í einhvers konar samkeppni við mig.“ - Faðir hans eyðilagði sjálfsmynd hans: „Þegar ég skildi við manninn minn og stóð uppi ein með drengina mína kom fljótlega í ljós að sambúð mín við föður þeirra hafði skilið eftir ör á sál þess eldri. Hann varð fljótlega fyrir miklu aðkasti í skólanum, enda var vanlíðan hans öllum augljós og börn geta verið grimm. Fagfólk kom inn í málið og ég varð að taka á öllu mínu til að ég og barnið mitt yrðum ekki kaffærð í sérfræðikjaftæði sem hafði ekkert með líf okkar að gera.“ - Konan á móti: „Fyrir nokkrum árum bjó ég í sama fjölbýlishúsi og kona nokkur sem hafði átt sérstakt og erfitt líf sem hafði sett mark sitt á hana. Í fyrstu var hún indæl en það breyttist þegar hún fann að ég vildi ekki jafnmikið samband hafa og hún.“ See acast.com/privacy for privacy and opt-out information.
More Episodes
Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Fátæka konan: „Eitt sinn vann ég með konu sem bar sig illa í vinnunni vegna fátæktar og tókst að hafa gott af fyrirtækinu fyrir vikið. Löngu síðar lenti ég í því sjálf að vera ranglega ásökuð um svipað en öllu verra athæf.“ - Skelfilegur...
Published 12/26/21
Published 12/26/21
 Í þessum þætti fáum við að heyra eftirfarandi frásagnir: - Með öllum ráðum: „Foreldrar mínir bjuggu saman í nokkur ár en fóru hvort í sína áttina þegar ég var í kringum fimm ára. Sambandið við pabba eftir skilnaðinn var mjög gott og ég naut þess að hitta hann. Þegar hann fór að vera með annarri...
Published 12/19/21