Episodes
Það hefur legið fyrir í nokkurn tíma að gefa út þætti þar sem ég tek fyrir ákveðið efni og fjalla um það út frá mínu sjónarmiði. Hér er sá fyrsti kominn í loftið og er ég í meginatriðum að fjalla um mikilvægi þess að beina sjónum að vítamínum, stein og snefilefnum fyrir starfssemi líffæra í stað þess að horfa eingöngu í hlutfall orkuefnanna þriggja og hitaeiningar, fer inn á mínar skoðanir gagnvart fæðusamsetningu og vitna í rannsókn sem gerð var við háskólann í Minnesóta sem sýndi...
Published 04/04/21
Published 04/04/21
Áður en við tókum upp þáttinn þá tókum við æfingu saman sem var virkilega góð, og við hæfi að byrja spjallið á því sem við ræddum um á æfingunni. Á 13 mín byrja ég að spyrja Helga út í það sem hann og kona hans Rut Sigurðardóttir ákváðu að gera eftir mikla rannsóknavinnu sem var að hafa börn sín tvö í heimaskóla þar sem þau blómstra. Helgi sem er kennaramenntaður auk þess að vera íþróttafræðingur og einkaþjálfari segir frá áhugaverðri sín sinni á skólakerfið og  hugmyndafræði heimaskólans sem...
Published 02/27/21
Gestur þáttarins er Stefán Ólafur Stefánsson menntunar og uppeldisfræðingur. Sem m.a. stendur á bak við Ekki gefast upp líkamsræktarnámskeiðin sem eru fyrir ungmenni sem glíma við andlega vanlíðan, félagsfælni og kvíða. Stefán segir frá hugmyndafræðinni á bak við stofnun ekki gefast upp, breytingar sem orðið hafa í starfssemi þeirra, tölum um íþróttastarf ungmenna, andlega vanlíðan ungra karlmanna og margt fleira. Þetta er þáttur sem vert er að hlusta á. Þátturinn er unninn í samstarfi við...
Published 02/15/21
Sigrún rekur FitbySigrún og Kvennastyrk sem er nýleg líkamsræktarstöð í Hafnarfirði. Hún hefur sérhæft sig í þjálfun fyrir nýbakaðar mæður og fyrir konur á meðgöngu. Í þættinum segir hún frá sjálfri sér, hvernig það kom til að hún fór í þennan rekstur og hugmyndafræði sína. Hér er á ferðinni gríðarlega flott stelpa sem lætur verkin tala.  Heimasíða FitbySigrún  FitbySigrún á Instagram
Published 01/11/21
Viðmælendur þáttarins eru hjónin Íris Huld Guðmundsdóttir íþróttafræðingur og markþjálfi og Einar Carl Axelson nuddari og yfirþjálfari í Primal. Ég fékk þau til mín í viðtal eftir að hafa lengi fylgst með þeirra flottu vinnu sem þau hafa unnið og vinna. Í þættinum segir Íris frá upphafi Sigrum streituna námskeiðsins sem er mjög vinsælt, og Einar Carl talar um hugmyndafræði Primal, sögu þess og gefur parktísk ráð við þjálfun. Þau bæði eru mjög áhugaverðir einstaklingar sem athyglisvert er að...
Published 12/11/20
Viðmælandi þáttarins er Jón Ívar Einarsson prófessor við læknadeild Harvard og skurðlæknir við Brigham and Women‘s Hospital í Boston Jón hefur sterkar skoðanir á hlutum sem tengjast covid. Í þættinum lýsir hann einnig virkni bóluefnisins frá Pfizer.
Published 12/07/20
Bergsveinn Ólafsson, betur þekktur sem Beggi Ólafs, er knattspyrnumaður, mastersnemi í hagnýtri jákvæðari sálfræði og þjálfunarsálfræði og fyrirlesari. Beggi hefur mikla ástríðu fyrir því hvernig fólk getur lifað þýðingamiklu lífi og hámarkað tilvist sína á þessari jörð. Einn liður í því að verða betri einstaklingur í dag en í gær er að sinna heilsunni, sem Beggi hugar mikið að, hann er nýbúinn að gefa út bókina tíu skref í átt að innihaldsríku lífi sem er stórkostleg bók. Beggi heldur úti...
Published 11/30/20
Viðmælandi þáttarin er Pálmar Ragnarson einn vinsælasti fyrirlesari landsins þar sem hann talar fyrir bættum samskiptum en þar getum við eflaust alltaf blómum á okkur bætt. Hann er einnig nýbúinn að gefa út bókina samskipti sem er bæði þarfandi og fræðandi lestur. Pálmar er einn af þeim einstaklingum sem gefur allt sem hann á í það sem hann fæst við og hefur uppskorið ríkulega eftir því. Í þættinum fjöllum við um mikilvægi góðra samskipta á heilsu okkar,  hvernig þú nærð að framkalla það...
Published 11/20/20
Gestur þáttarins er Björgvin Páll Gústafsson landsliðsmarkvörður í handbolta, öndunarsérfræðingur og lífskúnstner. Í þættinum spjöllum við um átaksverkefni hans Vopnabúrið sem er átaksverkefni við einelti og andlegri líðan í grunnskólum, streitu, kvíða, ADHD og farið inn á öndun og taugakerfið með tilliti til andlegrar líðan. Ég spurði hann út í ferilinn og hann segist enn eiga 10 ár eftir miðað við hvernig hann er í dag. Ekki missa af þessum þætti! Björn einkaþjálfari á Facebook og Instagram.
Published 11/13/20
Gestur þáttarins er Rafn Franklín. Rafn er mikill viskubrunnur og hefur fetað áhugaverðar leiðir og ere inn þeirra sem hafa óþreytandi áhuga á að bæta við sig þekkingu sem er næg fyrir. Eftir að hafa kynnst Rafni fyrr árinu þegar ég fór í viðtal í hlaðvarpið hans 360heilsa hefur okkur orðið vel til vina þar sem við deilum mörgu sameiginlegu og mér fannst við hæfi að fá hann í viðtal á þessum tímapunkti þegar við erum í mesta skammdeginu og líkamsræktarstöðvar eru lokaðar, við fjöllum um covid...
Published 10/31/20