#17. - Hvað tefur vaxtalækkanir?
Listen now
Description
Ásgeir Jóns­son seðlabanka­stjóri er aðalviðmæl­andi Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í nýj­asta þætti Spurs­mála. Pen­inga­stefnu­nefnd Seðlabank­ans til­kynnti í vik­unni um að staða stýri­vaxta héld­ist óbreytt og yrði áfram í 9,25 pró­sent­um. Ákvörðunin hef­ur valdið þó nokkru upp­hlaupi einkum í sam­hengi við ný­und­ir­ritaða kjara­samn­inga sem ætlað var að hafa áhrif á lækk­un og þróun verðbólgu. Í þætt­in­um verður krefj­andi spurn­ing­um beint að seðlabanka­stjóra um horf­urn­ar á efna­hags­markaði hér á landi. Yf­ir­ferð á stærstu frétt­um vik­unn­ar verður í góðum hönd­um þessa vik­una. Þær Nadine Guðrún Yag­hi, sam­skipta­stjóri flug­fé­lags­ins Play, og Þór­hild­ur Þor­kels­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri hjá Brú Stra­tegy, mæta í settið til að rýna helstu frétt­ir líðandi viku. Sam­hliða störf­um sín­um halda þær Nadine og Þór­hild­ur úti hlaðvarpsþátt­un­um Eft­ir­mál sem notið hafa mik­illa vin­sælda.
More Episodes
Þau Edda Her­manns­dótt­ir markaðs- og sam­skipta­stjóri hjá Íslands­banka, Sindri Sindra­son fjöl­miðlamaður og Andrés Jóns­son al­manna­teng­ill mæta í settið og rýna í stöðuna sem nú blas­ir við á loka­metr­um kosn­inga­bar­átt­unn­ar. Miðað við niður­stöður síðustu skoðanakann­ana gæti verið...
Published 05/31/24
Published 05/31/24
Und­an­farið hef­ur fram­boð Arn­ars vakið mikið um­tal. Einna helst eft­ir að Arn­ar Þór kærði Hall­dór Bald­urs­son skopteikn­ara til siðanefnd­ar Blaðamanna­fé­lags Íslands á dög­un­um. Þá hafa hug­sjón­ir Arn­ars og and­óf hans á ríkj­andi stjórn­ar­fari og for­ræðis­hyggju rík­is­valds­ins...
Published 05/24/24