#20. - Fyrsta stóra viðtal Katrínar í forsetaframboði
Listen now
Description
Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­setafram­bjóðandi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráðherra, sit­ur fyr­ir svör­um í nýj­asta þætti Spurs­mála. Er þetta fyrsta stóra viðtalið sem Katrín veit­ir eft­ir að hún ákvað að gefa kost á sér til embætt­is for­seta Íslands. Auk Katrín­ar mæta þau Börk­ur Gunn­ars­son, kvik­mynda­gerðarmaður og fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi hjá NATO, og Ásdís Kristjáns­dótt­ir, bæj­ar­stjóri Kópa­vogs, í settið og rýna helstu frétt­ir líðandi viku. Bú­ast má við að upp­lýs­andi umræða skap­ist um átök­in sem eiga sér stað fyr­ir botni Miðjarðar­hafs. Fregn­ir af árás­um Írans og Ísra­el í báðar átt­ir eru mikið áhyggju­efni fyr­ir heims­byggðina og vekja upp ýms­ar spurn­ing­ar hér á landi sem og ann­ars staðar.  Þá hef­ur þróun rík­is­fjár­mál­anna einnig skotið upp koll­in­um í vik­unni sem verður komið inn á í þætt­in­um. Fjár­mál rík­is­ins brenna oft­ar en ekki á land­an­um enda um eitt stærsta hags­muna­mál þjóðar­inn­ar að ræða og margt sem þykir bet­ur mega fara í þeim efn­um.  
More Episodes
Halla Tóm­as­dótt­ir for­setafram­bjóðandi sit­ur fyr­ir svör­um í nýj­asta þætti Spurs­mála und­ir stjórn Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar. Líkt og í fyrri þátt­um verður Höllu gert að svara krefj­andi spurn­ing­um. Beint verður að henni spurn­ing­um sem snúa að skyld­um for­set­ans og því sem...
Published 05/17/24
Jón Gnarr svarar krefj­andi spurn­ing­um er varða fortíð hans og bak­grunn sem einn vin­sæl­asti grín­isti lands­ins í sam­hengi við fram­boð hans til embætt­is for­seta Íslands. Einnig var knúið á um svör hvers kon­ar hug­sjón­ir Jón hef­ur á for­seta­embætt­inu og með hvaða hætti hann kem­ur...
Published 05/10/24
Published 05/10/24