Episodes
DD2 er einn af stóru leikjum ársins. Opinheims hack n slash leikur með brjálæðislega pirrandi fylgjendum. Er eitthvað meira? Arnór Steinn og Gunnar taka gott deep dive á leiknum. Þetta er spoiler free þáttur þannig þið getið hlustað án þess að hafa spilað leikinn. Ert DD2 í safninu þínu? Hvað fannst þér? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Published 05/01/24
Okey dokey! Þáttur vikunnar erum Fallout þættina. Arnór Steinn og Gunnar eru MJÖG hrifnir og taka gott deep dive í karakterana, söguna, tenginguna við leikina og fleira. Þetta er spoiler fullur þáttur, horfðu fyrst á Fallout seríuna áður en þú hlustar! Þú munt ekki sjá eftir því, þetta er SNILLD. Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Published 04/24/24
Published 04/24/24
Til hamingju hlustendur, það eru komnir 200 þættir! Arnór Steinn og Gunnar fagna almennilega. Við förum yfir farinn veg og veljum okkar uppáhalds þætti. Komnir eru SLATTI af Spotify playlistum þar sem þættirnir okkar eru flokkaðir niður. Langar þig að hlusta á öll viðtöl Tölvuleikjaspjallsins? Kíktu þá á playlistann! Langar þig bara að hlusta á leikjagagnrýni? Sá playlisti er til líka! Við erum ævinlega þakklátir ykkur fyrir alla hlustunina. Much love og sjáumst í næsta þætti 3 Þátturinn...
Published 04/10/24
Hvað á að gera þegar Arnór er í fríi? Þá hendum við góðvini þáttarins Alexander Maron (allimaron93), sem hefur áður hlaupið í skarðið og bjó einnig til þemalagið okkar, í stólinn með Gunnari. Þeir taka gott Allaspjall um Hogwarts Legacy, World of Warcraft og svo testar Gunnar hann í tölvuleikjatrivia. Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Published 04/03/24
Árið 2024 heldur áfram að gefa. Rise of the Ronin kom út um daginn og hefur reynst ... bara frekar vel? Fær góða dóma og umsagnir. Arnór Steinn og Gunnar eru búnir að spila leikinn í döðlur og hafa margt að segja. Þátturinn er spoiler free og inniheldur okkar helstu hughrif. Er Rise of the Ronin í þínu safni? Hvað finnst þér? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Published 03/27/24
Ömurlegar Tölvuleikjakvikmyndir SNÚA AFTUR! Í þetta skiptið rifja Arnór Steinn og Gunnar upp hina frábæru Street Fighter frá 1994. Hún var ein fyrsta ömurlega tölvuleikjakvikmyndin sem Tölvuleikjaspjallið fjallaði um í september 2020 (!!!). Nú horfðu þeir báðir á myndina og ræða hana í þaula. Spurningin er: Er hún orðin eitthvað betri? Hvað finnst ykkur? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Published 03/20/24
Back to basics, kæru hlustendur! Tölvuleikjaspjallið er einungis í hljóði á ný. Í þætti vikunnar hita Arnór Steinn og Gunnar upp fyrir væntanlega Fallout sjónvarpsþætti, tala ENN meira um Helldivers II og aðeins um leik sem þeir mega bókstaflega ekki segja neitt um. Hver er þín skoðun á Fallout sjónvarpsþáttunum? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Published 03/13/24
Aron Ólafsson var framkvæmdastjóri RÍSÍ í rúm fimm ár. Nú er hann farinn á ótroðnar slóðir hjá Solid Clouds og kemur því til Arnórs Steins og Gunnars og gerir upp RÍSÍ tímann. Rafíþróttir urðu í stuttu máli risastór hluti af íslensku samfélagi á mjög stuttum tíma. Við ræðum stöðuna í dag, hvernig þetta er búið að vera og hversu geggjað það er að krökkum er ekki lengur strítt fyrir að spila tölvuleiki. Nei samt í alvörunni - það er GEGGJAÐ 3 Takk fyrir þín störf og gangi þér vel í því næsta,...
Published 03/06/24
Playstation Portal kom út fyrir nokkrum dögum síðan og ... hvað? Hvernig er tölvan? Hvernig hefur hún reynst? Arnór Steinn og Gunnar eru búnir að spila slatta og ræða þennan áhugaverða PS5 aukahlut í þætti vikunnar. Gunnar hefur spilað Helldivers II hjá tengdó og Arnór Steinn er mögulega búinn að fara með sína í bað. Ræðum tækni, útlit, þægindi og margt fleira. Er Portal á þínu heimili? Hvernig hefur hún reynst? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Published 02/28/24
Settu á þig sundhettuna, farðu í sundfötin og dýfðu þér með andlitið fyrst oní geðveikina sem er HELLDIVERS 2. Arnór Steinn og Gunnar koma með sín fyrstu hughrif af þessum frábæra leik. Byssur, vondukallar, geðveiki, bilun og helvítis dýfan. Oní með ykkur og ekkert múður! Ef þið eruð ekki búin að prófa divers þá gerið þið það á sekúndunni eftir að hafa hlustað á þennan þátt! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Published 02/21/24
Það eru allnokkrir hlustendur búin að biðja okkur um að taka viðtal við Guffa úr GTS þannig hér kemur það! GTS mótaröðin er að verða vinsælli og vinsælli og því snilldar hugmynd að fá einn af frumkvöðlunum hér á landi í viðtal til að útskýra fyrir Arnóri Steini um hvað þetta allt saman snýst. Hvað getur þú gert til að taka þátt? Þú getur byrjað á að tjékka á Facebook hópnum hjá GTS samfélaginu og svo setur þú stefnuna á YouTube rásina þeirra, hlekkir hér fyrir neðan. Takk kærlega fyrir...
Published 02/14/24
Cory Barlog spilaði Hades og ákvað að gera sinn eigin ... og hann er geggjaður. Spoiler filled þáttur um GOD OF WAR RAGNARÖK dlc pakkann VALHALLA. Spilið hann og horfið svo á þennan þátt. Myndir þú vilja spila God of War: Betlehem þar sem jésúbarnið er loka boss? Hvernig fannst þér Valhalla? Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Published 02/05/24
Það er stóra spurningin ... eftir svakalega gott 2023, verður 2024 gott eða slæmt? Arnór Steinn og Gunnar rýna í komandi leiki ársins. Sumir eru áhugaverðir, aðrir munu fljúga undir radarinn. Þeim tekst einnig einhvern veginn að nýta tækifærið til að drulla yfir Assassin's Creed. Hvaða leikur vekur mesta spennu hjá þér? Segðu okkur frá! Þátturinn er í boði Elko Gaming.
Published 01/28/24
Árið er ALVEG að verða búið! Arnór Steinn og Gunnar taka saman þetta frábæra ár í FJÓRÐA áramótasérþætti Tölvuleikjaspjallsins. Hver er leikur ársins samkvæmt Arnóri? Var eitthvað fréttnæmt sem gerðist í ár? Allt þetta og MEIRA í hnausþykkum lokaþætti. Við förum svo í smá jólafrí og komum fíflefldir til baka um miðjan janúar. Takk fyrir að vera þið og gleðilegt nýtt ár!
Published 12/31/23
Einn af leikjum ársins er klárlega Baldur's Gate 3. Við vildum fá algjöra fagmanneskju til að ræða leikinn í þaula í árs yfirferðinni okkar ... og hver önnur en okkar allra besta MARÍN EYDAL kemur í sett til að ræða leikinn! Föruneyti Pingsins er að gera góða hluti á Twitch þar sem Marín spilar leikinn ásamt vel völdum snillingum. Tjékkið á Marín á hennar socials og fylgist með Föruneyti Pingsins á nýju ári! Er Baldur's Gate 3 leikur ársins hjá þér? Þátturinn er í boði Elko Gaming og...
Published 12/31/23
Aftur, árið 2023 er eitt það besta í manna minnum. Það voru ekki bara Playstation leikir í boði í ár. Onei ... Daníel Rósinkrans, GÓÐUR vinur þáttarins, kom til okkar og talaði um Nintendo árið 2023. Zelda, Mario og MARGT fleira! Stay tuned fyrir næstu þætti um árið 2023! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Published 12/20/23
Áramótasérþáttur Tölvuleikjaspjallsins er ÞREFALDUR í þetta skiptið! Í sett koma sérfræðingar um alls kyns tölvuleiki og fjalla um árið með Arnóri og Gunnari. Við byrjum á Sigga Sören (siggividis94 á Playstation) sem talar um sinn uppáhalds leik ársins sem er Diablo IV, ásamt mörgum fleirum. Takk fyrir komuna Siggi og gleðilegt ár! Næsti þáttur kemur svo út í næstu viku og þið þekkið rest! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Published 12/13/23
Árið 2010 kom út eitt stykki aukapakki. Aukapakkinn gerði þér kleift að skjóta meira en bara kúreka. Þú gast skotið UPPVAKNINGA. Já börnin mín góð, í þætti vikunnar ræðum við UNDEAD NIGHTMARE. Frábær aukapakki sem er mögulega sá besti. Hvað finnst þér?
Published 12/04/23
Eruð þið tilbúin? Einn af leikjum ársins í STÚT fullum þætti. Þið lásuð rétt; ENGAR HÖMLUR! Við tölum um söguna, vondu kallana og margt, MARGT fleira. Þannig: RISASTÓR HÖSKULDARVIÐVÖRUN FYLGIR ÞÆTTINUM! Hvað fannst þér um Spider-Man 2? Ertu sammála Arnóri Steini eða Gunnari? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Published 11/27/23
Hvað er betra en einstakur og áhrifamikill indie leikur? TVEIR einstakir og áhrifamiklir indie leikir. Þið þekkið þetta, Arnór Steinn kynnir hinn draumkennda Journey frá 2012 og Gunnar kynnir Untitled Goose Game, þar sem þú spilar sem gæs sem veldur usla og skelfingu í bresku þorpi. Hefur þú spilað annan hvorn? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Published 11/20/23
"It's a-me!" Segir Chris Pratt sem Super Mario. Þetta er setning sem mörg okkar bjuggust ekki við að lesa. Super Mario Bros kom út í ár, teiknimynd sem er raunverulega ekkert það slæm. Arnór Steinn og Gunnar greina hana samt í tætlur og hafa margt skemmtilegt að segja. Er Super Mario Bros myndin málið? Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Published 11/13/23
Fyrsta og eina DLC sem kemur út fyrir Cyberpunk 2077. Búið er að yfirhala leikinn svo gott sem frá toppi til táar - hann er eiginlega eins og hann átti að vera í byrjun. En er hann góður? Arnór Steinn fær Daníel Frey, hype-málaráðherra Cyberpunk í sett til að ræða aukapakkann. Við förum ekki djúpt í spoilera þannig þátturinn er öruggur til áhorfs! Þátturinn er í boði Elko Gaming og Serrano.
Published 11/06/23
“If it ain’t broke, don’t fix it … but still make it slightly more better.” Það er varla hægt að kjarna Spider-Man 2 betur. Þetta er bara heimskulega góður leikur og hananú. Arnór Steinn og Gunnar fengu eintak fyrir nokkrum vikum og eru búnir að spila hann í döðlur. Þátturinn er algjörlega höskuldarviðvörunarlaus - bara fyrstu hughrif okkar og helvítis stemming.  Hvað er nýtt, helstu breytingarnar, hvað finnst okkur um Mörð og Pétur og MARGT fleira í stútfullum þætti vikunnar. Nóg af...
Published 10/25/23
Helvíti er frosið, svín fljúga og upp er núna niður. Arnór Steinn prófaði fótboltatölvuleik og fannst það bara gaman. Í þætti vikunnar ræða drengirnir um EA FC 24. Ferlið á bak við gerð leiksins var EA að copya heimavinnuna hjá sjálfum sér og setja annað nafn á. Þetta er bara Fifa, krakkar. Þátturinn er bráðfyndinn þó hann sé um fótbolta. Þið getið líka horft á hann til að sjá hvað Arnór er brjálæðislega lélegur í fótboltaleikjum. Gunnar er alsæll ... eða hvað? Þátturinn er í boði Elko...
Published 10/18/23