Uppkast - 13. þáttur (Gott hlaðvarp gjöra skal)
Listen now
Description
Uppkastsgengið rís úr dvalanum og hendir í lengsta þáttinn hingað til sem er eðlilega helgaður jólunum. Símtölum rignir inn og meira að segja jólasveinninn sjálfur slær á þráðinn! Jólaplötur fara undir nálina og gengið opnar sig um slæmar jólagjafir ásamt ýmsum hefðum sem ríkja á þeirra heimilum. Leggið við hlustir, ef hlustendur eru ekki komnir í jólaskap er hér lyfseðilsskyldur þáttur til að bjarga því!
More Episodes
Published 12/21/20
Uppkastsgengið snýr aftur eftir langt og gott sumarfrí. Ýmislegt hefur drifið á daga drengjanna og þá helst Steinars sem náði hinni frægu núllstillingu á Hornströndum. Ævintýraþráin fær að skína í plötu þáttarins þegar Steinar segir okkur frá og ekki frá plötunni The Broadsword and the Beast með...
Published 08/29/20
Áfram halda uppkastsmenn að reka garnirnar út úr félaga sínum og hér er farið á dýptina! Allt sem þú vissir ekki og langaðir ekkert endilega til að vita um Torfa. Plata þáttarins er ekkert slor, svarta albúmið með Metallica og það er á ýmsu kjammsað. Staður og stund fer svo á enn nýjar slóðir þó...
Published 07/03/20