6. þáttur. Mannréttindi og utanríkismál
Listen now
Description
Í sjötta þætti Utanríkisvarpsins er rætt við Davíð Loga Sigurðsson deildarstjóra hjá Alþjóða og þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins um mannréttindi og utanríkismál. Sérstaklega er rætt um setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna sem er eitt veigamesta hlutverk sem Ísland hefur gegnt á alþjóðavettvangi. Mikla athygli vakti þegar Ísland hafði frumkvæði að því að flutt var sameiginlegt ávarp, af hálfu 36 ríkja, um bágt ástand mannréttinda í Sádi-Arabíu. Eins þegar Ísland hafði frumkvæði að því að mannréttindaráðið samþykkti ályktun um stöðu mannréttinda á Filippseyjum fyrir tæpu ári. Skýrsla mannfréttindafulltrúa SÞ um mannréttindaástandið á Filippseyjum kom einmitt út í dag eftir að þátturinn var tekinn upp.
More Episodes
Í sjöunda þætti Utanríkisvarpsins ræðir Sveinn H. Guðmarsson um Atlantshafsbandalagið við Hermann Ingólfsson, fastafulltrúa Íslands hjá bandalaginu, í nýjum höfuðstöðvum þess í Brussel. Aðildin að Atantshafsbandalaginu er önnur lykilstoða í vörnum Íslands samkvæmt þjóðaröryggisstefnunni og var...
Published 06/19/20
Published 06/04/20
Í fimmta þætti Utanríkisvarpsins eru Sameinuðu þjóðirnar til umfjöllunar. Rætt er við Jörund Valtýsson, fastafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og Helen Ingu S. Von Ernst sérfræðing um þessa mikilvægu stofnun, stöðu alþjóðakerfisins og Alþjóðleglan jafnlaunadag Sameinuðu Þjóðanna sem að...
Published 05/26/20