Episodes
Í sjöunda þætti Utanríkisvarpsins ræðir Sveinn H. Guðmarsson um Atlantshafsbandalagið við Hermann Ingólfsson, fastafulltrúa Íslands hjá bandalaginu, í nýjum höfuðstöðvum þess í Brussel. Aðildin að Atantshafsbandalaginu er önnur lykilstoða í vörnum Íslands samkvæmt þjóðaröryggisstefnunni og var Ísland stofnaðili að bandalaginu fyrir rúmum 70 árum. Í þættinum er farið vítt og breytt yfir starfsemi bandalagsins og hvernig hafi tekist til að aðlagast nýjum tímum.
Published 06/19/20
Í sjötta þætti Utanríkisvarpsins er rætt við Davíð Loga Sigurðsson deildarstjóra hjá Alþjóða og þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins um mannréttindi og utanríkismál. Sérstaklega er rætt um setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna sem er eitt veigamesta hlutverk sem Ísland hefur gegnt á alþjóðavettvangi. Mikla athygli vakti þegar Ísland hafði frumkvæði að því að flutt var sameiginlegt ávarp, af hálfu 36 ríkja, um bágt ástand mannréttinda í Sádi-Arabíu. Eins þegar Ísland...
Published 06/04/20
Published 06/04/20
Í fimmta þætti Utanríkisvarpsins eru Sameinuðu þjóðirnar til umfjöllunar. Rætt er við Jörund Valtýsson, fastafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og Helen Ingu S. Von Ernst sérfræðing um þessa mikilvægu stofnun, stöðu alþjóðakerfisins og Alþjóðleglan jafnlaunadag Sameinuðu Þjóðanna sem að tillögu Íslands verður haldinn í fyrsta sinn í haust. Tekið skal fram að þátturinn var tekinn upp áður en COVID-19 faraldurinn skall á. Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar árið 1945, fyrir 75 árum...
Published 05/26/20
Brexit og framtíðarsamband Íslands og Bretlands eru til umfjöllunar í fjórða þætti Utanríkisvarpsins, hlaðvarpi utanríkisþjónustunnar. Samskiptin við Bretland skipta Ísland afar miklu máli enda er landið einn af okkar mikilvægustu útflutningsmörkuðum og tengslin á milli þjóðanna hafa alla tíð verið náin. Undirbúningur Íslands vegna útgöngunnar hefur því verið víðtækur og staðið yfir svo til frá upphafi en Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra hefur lagt sérstaka...
Published 05/15/20
Sigríður Snævarr á að baki langan og farsælan feril í utanríkisþjónustunni. Hún hóf störf í ráðuneytinu um miðbik áttunda áratugarins og í byrjun þess tíunda var hún skipuð sendiherra, fyrst íslenskra kvenna. Í dag veitir Sigríður deild heimasendiherra forstöðu en henni var komið á fót í samræmi við tillögur umbótaskýrslunnar Utanríkisþjónusta til framtíðar sem Guðlaugur Þór Þórðarsson utanríkisráðherra lét gera árið 2017. Sigríður Snævarr er gestur þessa þriðja þáttar Utanríkisvarpsins þar...
Published 04/30/20
Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur staðið í ströngu undanfarið við að aðstoða Íslendinga erlendis að komast heim vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Mörg ríki hafa lokað landamærum sínum, flugframboð hefur snarminnkað og víðtækar ferðatakmarkanir eru á heimsvísu. Íslendingar erlendis eiga á hættu að verða strandaglópar. Í öðrum þætti Utanríkisvarpsins, hlaðvarpi utanríkisþjónustunnar, er fjallað um starf borgaraþjónustunnar í miðjum heimsfaraldri. Rætt er við starfsfólk...
Published 04/07/20
10. apríl næstkomandi verða áttatíu ár liðin frá því að Ísland tók meðferð utanríkismála í eigin hendur og utanríkismáladeild Stjórnarráðsins gerð að utanríkisráðuneyti. Markar þessi tímapunktur upphaf íslensku utanríkisþjónustunnar. Í tilefni af þessum tímamótum lítur nú Utanríkisvarpið - hlaðvarp utanríkisþjónustunnar - dagsins ljós. Fyrsti gestur Utanríkisvarpsins er Guðlaugur Þór Þórðarsson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Í þættinum ræða þeir Sveinn H. Guðmarsson vítt og breitt...
Published 03/06/20