Episodes
Þriðja vaktin – Jafnréttishandbók heimilisins kom út í lok nóvember í fyrra. Bókina skrifaði ég ásamt Huldu Tölgyes sálfræðingi og í nánu og góðu samstarfi við ritstjórann okkar, Hauk Bragason. Haukur hélt að hann þyrfti mest að passa að tóna okkur niður, passa að við værum ekki of róttæk, reið og stuðandi, en var í raun farinn að þurfa að tóna okkur upp.  Í þessum þætti gefum við innsýn í ferlið á skrifunum, segjum frá því hvernig bókin þróaðist, segjum frá upplifun okkar af ofsafenginni en...
Published 04/07/24
Published 04/07/24
Sara Cervantes er hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum sem flutti til Íslands fyrir nokkrum árum. Sara gefur innsýn í reynsluheim einstaklings sem reynir að aðlagast íslensku samfélagi en mætir ýmsum kerfisbundnum hversdagslegum og formlegum hindrunum.  Við Sara hittumst fyrst á fræðslufundi á Landspítalanum þar sem umræðuefnið var forréttindi og jaðarsetning. Innlegg Söru var svo áhrifamikið að ég varð að leyfa ykkur að heyra. Við spjöllum um forréttindi, jaðarsetningu, inngildingu, útilokun,...
Published 10/28/23
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er prófessor við deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands og hefur stundað rannsóknir á kennslukonum og kennslukörlum, rýnt í stöðu drengja í skólum og ásamt mörgu öðru skrifað bókina Karlmennska og jafnréttisuppeldi sem er brautryðjendaverk um karlmennsku og karlafræði.  Við stöldrum að mestu við nýlegar rannsóknir Ingólfs og félaga á nýbrautskráðum kennslukörlum og hvernig þeim tekst að komast inn í kennarastarfið, ræðum um umhyggju sem Ingólfur...
Published 09/21/23
Halldór Laxness Halldórsson, Dóri DNA, uppistandari og höfundur hefur komið víða við. Við höldum okkur þó á léttu nótunum eins og hægt er með áherslu á karlmennskuna, karllægni, gerendur og hliðverði dægurmenningar ungs fólks. Enda hafa mörg verka Halldórs skýra tengingu við karlmennsku eins og skáldverkið Kokkáll og sjónvarpsþættirnir Afturelding. Kryfjum aðeins baksvið sköpunarverkanna, persónulega sjálfsefann og veiku sjálfsmyndina sem dylst undir sjálfsörugga grínaranum.   Umsjón:...
Published 08/31/23
„Hægt og rólega verður mylsna á borði til misskiptingar, sem [hann] tekur jafnvel ekki eftir“, er lýsandi setning úr ritgerð Ragnheiðar Davíðsdóttur sem rannsakaði hugræna vinnu meðal íslenskra para í meistararaverkefni sínu í kynjafræði við Háskóla Íslands. Líklega er þetta fyrsta íslenska rannsóknin sem mælir hugræna vinnu og niðurstöður eru í samræmi við reynslu sem ansi margar konur hafa lýst og erlendar rannsóknir hafa dregið ítrekað fram. Verkaskipting hugrænnar vinnu er bæði misskipt...
Published 06/19/23
Þriðja vaktin brennur ennþá á konum, einkum þegar þær eru í samböndum með körlum. Enda sýna rannsóknir að það sé meiri vinna fyrir konu að eiga börn og heimili með karlkyns maka en vera einstæð móðir.    Hulda Tölgyes sálfræðingur og Þorsteinn tóku þennan þátt upp í beinni útsendingu á Instagram hjá Huldu @hulda.tolgyes. Förum við yfir spurningar sem okkur bárust, í aðdraganda þáttarins og útskýrum ýmsa þætti sem snúa að þriðju vaktina, ábyrgðinni, lausnir og fleira.   Umsjón: Þorsteinn V....
Published 06/10/23
Dilja Pétursdóttir, fulltrúi okkar í Eurovision í ár, hefur ætlað sér að verða söngkona frá því hún tók þátt í Ísland got talent 12 ára gömul. Við spjöllum um Eurovision, strögglið við skuggana kvíða og þráhyggju, nýtilkomna frægð og fjölmiðlaumfjöllun um persónulegt líf hennar, tónlistarbransann og stóru plönin.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla - Naruto (án söngs) Hljóðbútar af youtube frá Ísland got talent og undanúrslitakvöldi Eurovision. karlmennskan.is/styrkja
Published 06/09/23
121. „Hlustaðu, horfðu og neyttu“ — Guðmundur Jóhannsson Guðmundur Jóhannsson hefur verið tíður gestur í Morgunútvarpi Rásar 2 með innslög um tækni og stafræna heima og starfar sem samskiptafulltrúi hjá Símanum. Orðfæri og orðanotkun Guðmundar vakti athygli mína en iðulega notast hann við kynhlutlaust mál sem mér þykir áhugavert komandi úr jafn karllægum geira. Mig langaði að forvitnast nánar um þetta. Við kryfjum stafræna heima með kynjagleraugunum í þessum þætti og snertum á heimskum...
Published 05/10/23
„Mamma, hann er í kjól“ - Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson Hann er næstum því sextugur, gagnkynhneigður, giftur í tæpa þrjá áratugi, með tvær háskólagráður, starfar í leikskóla og byrjaði að notast við varalit, naglalakk og kjóla fyrir nokkrum árum. Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson segist beita sínum karllægu forréttindum á þennan hátt til að hafa jákvæð áhrif á börnin sem hann starfar með en fyrst og fremst vegna þess að honum líður vel þannig. Honum er nákvæmlega sama hvað fólki finnst um hann og...
Published 04/27/23
Nanna Hlín Halldórsdóttir er doktor í femínískri heimspeki og kennari við Háskóla Íslands. Hún hefur kennt um eðlishyggju gegn mótunarhyggju, rannsakað á doktorsstigi hvort berskjöldun geti verið andsvar femínískrar heimspeki við nýfrjálshyggju og skrifað um iðrun, ábyrgð, tilfinningar, slaufun og fleira.   Við förum í örlítinn nördaskap um eðli (karl)mannsins og skilin á milli líkama og félagslegrar mótunar en snertum á ýmsu sem hefur verið í deiglunni eins og áherslum femínismans, áhrifum...
Published 04/11/23
Birgir Þórarinsson eða Biggi Veira tónlistarmaður, sem mörg tengja líklega við GusGus, hefur ekki látið þröngan stakk karlmennskuhugmynda skilgreina sig, sérstaklega ekki fataval sitt og kyntjáningu. Enda er hann reglulega í sokkabuxum, blússum eða kjólum sem teljast almennt til kvenfatnaðar og vel farðaður, þótt hann sé stundum beðinn um að vera ekki of mikið málaður t.d.fyrir foreldraviðtöl.  Biggi lýsir því hvernig hann áttaði sig mjög snemma að hann hneygðist að hefðbundnum kvenfatnaði,...
Published 03/23/23
THEM er verk um karla að díla við eitraða karlmennsku og konur að díla við karla - og öll að reyna bara að fá að vera… bara vera! Fjórar konur frá Íslandi og Finnlandi kafa ofan í heim karla og segja sögur af ást, stolti, föðurhlutverkinu og óttanum við að vera öðrum byrði. Með því að heimsækja líf annarra leitast leikkonurnar við það að skilja sína eigin stöðu í heimi sem ekki er hannaður fyrir þær.    Leikverkið THEM er sýnt aðeins einu sinni í viðbót þann 14. mars í Tjarnarbíói (miðar á...
Published 03/09/23
Þórarinn Hjartarson stjórnmálafræðingur og nemi í MPA í opinberri stjornsýslu, hnefaleikaþjálfari og starfsmaður á sambýli heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling og sendir reglulega frá sér skoðanapistla sem hafa verið birtir á Vísi. Það má líklega segja að skoðanir, fullyrðingar og afstaða Þórarins í þessum pistlum séu í andstöðu við femíníska hugmyndafræði enda er hann oft að hæðast að málefnum jaðarsettra eða því sem hann kallar „woke-isma”. Ég tel að sjónarmið Þórarins endurspegli viðhorf ansi...
Published 02/23/23
Bylting framhaldsskólanema gegn kynferðisofbeldi og gagnrýni á viðbragðsleysi skólastjórnenda ýtti undir kröfu um aukna kyn- og kynjafræðikennslu í skólum auk almennilegra viðbragða þegar kynferðisbrot koma upp. Skólameistarar ruku sumir hverjir upp og bundu vonir við að fram kæmu leiðbeiningar til að tækla slík mál. Sérfræðingar í jafnréttis- og ofbeldisforvarnarmálum sögðu þó hægan hægan. Engin skyndilausn væri við jafn flóknum og útbreiddum vanda sem kynferðisofbeldi er, auk þess sem...
Published 02/15/23
  ÖRLÖ er samstarfsaðili Karlmennskunar sem býður upp á hlaðvarpið og fræðslumiðlun á samfélagsmiðlum. Í þessum aukaþætti Karlmennskunnar ætlum við að fræðast um hvað ÖRLÖ er, hvað er svona merkilegt við þeirra vörur og framleiðslu og hvers vegna VAXA technologies (sem framleiða ÖRLÖ) vilja tengjast Karlmennskunni.   Hörður Águstsson sölu- og markaðsstjóri og Kristinn Hafliðason framkvæmdastjóri VAXA Thecnologies útskýra þetta nánar.   Umsjón: Þorsteinn V. Einarsson Tónlist: Mr. Silla -...
Published 02/11/23
Recognising Sexual Violence: Developing Pathways to Survivor-Centred Justice hét ráðstefna sem haldin var í lok október sl. af RIKK (rannsóknarstofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands) í samstarfi við háskólana í Lundi og Osló. Rannsóknir á reynslu og hugmyndum þolenda kynferðisbrota sýna að réttlæti er mun flóknara en svo að eingöngu sé hægt að styðjast við réttarkerfið; hegningarlög og refsirétt. Auk þess má réttilega segja að réttarkerfið nái afar illa utan um kynferðisbrot eins og...
Published 02/01/23
„Ég vonast til þess að karlar, ungir sem aldnir, byrji að tala saman meira um tilfinningar sínar og hvernig þeim líður.“ segir Ari Ísfeld Óskarsson leikari sem samdi og lék í How to make love to a man í tilraunaverkefninu Umbúðalaust í Borgarleikhúsinu sl. vor. Leikritið fjallaði á kómískan en raunsæan hátt um karlmennsku og karla, hvernig þeir eiga samskipti sín á milli og takast á við lífið. Ari var einmitt að gefa út lag sem samið var fyrir sýninguna sem er spilað í þættinum. Við spjöllum...
Published 01/20/23
Áramótaskaupið hefur sennilega aldrei fengið jafn almennt sterk jákvæð viðbrögð frá flestum, nema kannski „nokkrum fótboltagrúbbum” eins og Saga Garðars orðaði í viðtali á dögunum og svo er spurning hvernig sumum meintum og vinum þeirra fannst skaupið. Dóra Jóhannsdóttir leikkona og leikstjóri Áramótaskaupsins kryfur nokkra sketsana og gefur okkur innsýn í ferlið við skaupið. Hvernig kemur hún auga á fyndnina í gráum hversdagsleikanum og sárum kynferðisofbeldis og útlendingaandúðar? Förum...
Published 01/13/23
Við lítum yfir árið, bæði persónulega og pólitískt. Leitum að hápunktum og lágpunktum og setjumst í Völvusætið fyrir árið 2023. Veltum fyrir okkur áhrifum baráttu á árinu og mögulegum afleiðingum ýmissa atvika sem áttu sér stað á árinu. Hefur baráttan fyrir jafnrétti og mannréttindum skilað einhverju eða erum við bara á leiðinni aftur á bak með þungu bakslagi? Miriam Petra sérfræðingur hjá Rannís og inngildingarfulltrúi landsskrifstofu Erasmus plus og fyrirlesari um rasisma og...
Published 12/28/22
Við lítum yfir árið, bæði persónulega og pólitískt. Leitum að hápunktum og lágpunktum og setjumst í Völvusætið fyrir árið 2023. Veltum fyrir okkur áhrifum baráttu á árinu og mögulegum afleiðingum ýmissa atvika sem áttu sér stað á árinu. Hefur baráttan fyrir jafnrétti og mannréttindum skilað einhverju eða erum við bara á leiðinni aftur á bak með þungu bakslagi? Miriam Petra sérfræðingur hjá Rannís og inngildingarfulltrúi landsskrifstofu Erasmus plus og fyrirlesari um rasisma og...
Published 12/28/22
Gísli Marteinn Baldursson fyrrverandi borgarfulltrúi og þáttastjórnandi vinsælasta skemmtiþáttar landsins, Vikan með Gísla Marteini, var kallaður til viðtals til að létta aðeins á efnistökum hlaðvarpsins í aðdraganda jólanna. Reyndar slysaðist ég aðeins til að kveikja á borgar- og skipulagsmála Marteini en þaðan leiðumst við í umræðu um veganisma, femínisma, byltingar, meint hlutleysi í þögninni, vináttu og hvernig forréttindafullur kallavinahópur á sextugsaldri vinnur úr kröfum samtímans....
Published 12/14/22
Helga Braga Jónsdóttir er leikona og grínisti, leiðsögumaður, flugfreyja, magadansfrumkvöðull og kvenuppistandsfrumkvöðull. Helga Braga hefur skapað ódauðlega karaktera og skrifað og leikið í ódauðlegum senum t.d. með Fóstbræðrum. Auk þess hefur Helga auðvitað leikið í fjölmorgum þáttum, bíómyndum, áramótaskaupum og fleiru. Við spjöllum um grínið, hvernig og hvort það hefur breyst, kryfjum nokkrar senur úr Fóstbræðrum og förum inn á persónulegri svið þegar talið berst að byltingum...
Published 12/08/22