Episodes
Loksins kom Sigríður Hrönn í spjall til Söru Maríu. Hún er guðfræðingur og skrifaði bókina : Hver er ég ? Níu persónuleikalýsingar enneagrams. til þess að fara yfir eitt aðal áhugamál þerra sem er enneagramið og hvernig það getur haft djúp áhrif á líf manns. Ennegramm er aldagömul hefð sem dregin hefur verið fram í dagsljósið á liðnum árum. Lýsing á níu persónuleikamynstrum hjálpar lesandanum að upppgötva hver hann er, hvernig æska og uppvöxtur hefur mótað hann og aðra – og hvernig það...
Published 10/17/23
Þórarinn Ævarsson, landsþekktur athafnamaður, segir erfiðasta tímabili ævi sinnar nú að baki. Þórarinn fór í dýpstu dali, svartnættið eitt blasti við og hann sá aðeins eina leið út. Þórarinn var orðinn háður ópíóðalyfjum, þjáðist af heiftarlegum höfuðverkjaköstum og þunglyndi en með hjálp hugvíkkandi efna öðlðist Þórarinn nýtt líf. Hann segir það samfélagslega ábyrgð sína að deila reynslu sinni.
Published 01/09/23
Published 01/09/23
Getnaður-meðganga-fæðing. Þessi þrenning var honum svo hugleikinn að stappaði nærri þráhyggju. Hann taldi sig hafa innsýn í það að getnaðurinn hafi verið þrunginn örvæntingu, meðgangan full af ótta og fæðingin sjálf þvílík yfirþyrmandi átök að hún var stríð upp á líf og dauða, þar sem hann bar ósigur og fæddist lifandi dauður. Þessvegna var hann alla tíð að leita að lífinu eða réttara sagt hann var að leitað að leið til að fæðast aftur og fæðast þá almennilega. En hvernig getur fæddur maður...
Published 12/19/22
Denna og Huldu var ráðlagt að hafa samband við Pétur og sjá hvort að hann gæti hjálpað þeim að vinna úr djúpri sorg sem hafði yfirtekið líf þeirra síðustu 7 árin, eftir að hafa verið viðstödd hræðilegt slys þar sem sonur þeirra dó fyrir framan þau. Denni fer aðeins yfir lífssöguna og deilir svo ítarlega sinni upplifun af hans innra ferðalagi. Þetta er fyrsta reynslusagan af mörgum sem við erum byrjuð að safna og munum deila hér. Góða ferð !
Published 05/29/21
Yndislega fallegt samtal Péturs og Söru. Þau velta fyrir sér vaxandi áhuga á innri ferðalögum, hugvíkkandi plöntulyfjum og óravíddum alheimsins. Pétur deilir reynslu sinni af Ketamine meðferðum í baráttunni við krónískan sársauka. Það eru 10ár síðan Pétur lenti í alvarlegu slysi þar sem hann lamaðist fyrir neðan mitti. Ketamine er talið “essential medicine” af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni WHO (World Health Organization).
Published 02/10/21
Markþjálfararnir Sara María og Ólafur Aron deila reynslu og hugmyndum sínum á markþjálfun, þarfakerfinu og hvernig öðlast má rými til vaxtar. @olafuraroninsight @forynja @fannar_mar www.evolvia.is
Published 02/07/21
Sara, Ágústa og Helgi fara enn og aftur á kostum. Þau fara meðal annars yfir gráa svæðið, tiltekt í tilfinningalegu geymslunum okkar, skiptidíla í samböndum og breyskleika mennskunnar.
Published 02/02/21
Saga og Bjarki komu aftur til okkar í sjálfstætt framhald af síðustu heimsókn, við köfum dýpra og kynnumst þessu yndislega pari enn betur og þeirra háttum. Þau kynnast áður en Bjarki kemur út sem trans og stígur inn í sannleikann sinn, við tölum um það, óöryggi þeirra beggja í þessu flókna ferli og hvernig það er að upplifa sig í röngum líkama.
Published 09/08/20
Nonni blessaði okkur með nærveru sinni og kíkti í cacao. Hann ræðir dagbók brjálæðingsins, æskuna, áföll og hvernig það er að lifa með geðsjúkdóm.
Published 08/30/20
Saga kom til okkar og við ræddum sjálfsfróun, taboo, hjálpartæki ástarlífsins og margt fleirra. Ættum við að gera erótískar sögur að föstum lið? Látið okkur vita @Sóttkví_podject
Published 08/29/20
Nánast ólýsanleg og yndisleg heimsókn frá Jónasi Sig til okkar í Eden, alveg einstakur maður. Við komum inn á barnsæskuna, meðvirkni, skólakerfið, andlega vakningu, tilfinningar og samskipti svo eitthvað sé nefnt. Verði ykkur innilega að góðu!
Published 07/09/20
Helgi og Ágústa mæta aftur til leiks í miklu stuði og kakókastala-tvíeykið fær besta cacao lífsins. Farið er um víðan völl tilfinninga sem koma að trausti, afbrýðisemi og tortryggni. Er fullt traust áunnið eða afskapað?
Published 06/23/20
Sara María tekur gefandi og gott þjóðhátíðarspjall við Evu og Ágústu Kolbrúnu. Hvað er að fatta fattið og gera "kröfur" á lífið? Hvað eru margir að gera það sem þeir sannarlega elska að gera?
Published 06/18/20
Í þessum þætti blessa öðlingarnir Pétur og Arnór okkur með nærveru sinni í Eden. Við ræðum m.a. hugvíkkandi áhrif Psilocybin, kosti annarra sveppategunda og þjálfun vitundar. "Langtímahollusta í hugsun. Að komast útúr hugsun er gott fyrir hugsun."
Published 06/17/20
Ívar Zophanias og Agnar Diego komu saman til okkar í Eden og ræddu bræðralag, 21day non-ejeculation challenge, klámvæðingu og kosti tantraiðkunnar svo eitthvað sé nefnt. Fyrir áhugasama um Man-Circles er hægt að nálgast Ívar @ivarzophanias á IG.
Published 06/12/20
Í þessum þætti komu til okkar innilega ástfangin og yndisleg Saga og Bjarki, þau deila með okkur reynslu sinni úr sínum lífum og sambandi. Transferlinu hans Bjarka, fortíðaráföllum, hvernig sönn ást sigrar, sjálfsást, samskiptum og fleirra. ...í öðrum þætti sem er væntanlegur förum við dýpra í samband þeirra og tilhugalíf.
Published 06/11/20
Helgi Jean sem er fyrst og fremst grínisti fær hér tækifæri á að láta sinn sanna andlega ljós skína og sýna öllum hversu djúpur hann er. Hann og Ágústa Kolbrún koma saman þar sem hún gerði hann markvisst að vini sínum en segir að hann hafi ellt sig alla tíð. Spiritual bypassing og allskonar andlegar pælingar með helga og Ágústa klikkar ekki.
Published 06/09/20
Thelma Berglind kom í Eden til okkar í opinskáa umræðu um geðhvarfasýki, maníur og verðugar kynferðispælingar um P-blettinn og tantra. Er endaþarmsnautn karlmanna það sama og samkynhneigð?
Published 06/08/20
Sara María spyr strákana sína, Fannar, Agnar og Pétur spjörunum úr. Rædd er karlmannleg nánd, faðmlög og fleirra.
Published 06/07/20
Ólafur Aron og Hans Kragh koma saman aftur í innihaldsríkt vinaspjall, ræða mannbætandi málefni, lausnir og leiðir.
Published 05/26/20
Sara María býður Agnari Diego og Ágústu Kolbrúnu velkomin aftur, í cacao og áframhaldandi spjall eftir góðar viðtökur eftir síðustu þætti. Þau tala um nýja tíma og hvað skiptir þau máli.
Published 05/23/20
Fannar Már fær Pétur og Söru Maríu til þess að segja frá reynslu sinni af ayahuasca og psilocybin í þeim tilgangi að heila sig og skilja tilvistina betur.
Published 05/23/20
Fannar Már fær Pétur og Söru Maríu til þess að segja frá reynslu sinni af ayahuasca og psilocybin í þeim tilgangi að heila sig og skilja tilvistina betur.
Published 05/22/20
Sara Forynja og Fannar Már tala saman og hafa gaman. ...hver er morgunrútínan hennar Söru? Janteloven og danska nytjastefnan. *Tilkynningar um LIVE SESSIONS birtast á facebook síðunni ((POD|KAST))
Published 05/19/20