#34. - Tik Tok eitraðra en filterslaus Camel og ráðaleysi í Valhöll
Description
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, og Tryggvi Hjaltason, formaður hugverkaráðs og höfundur nýlegrar skýrslu um stöðu drengja í íslensku menntakerfi, sitja fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála.
Í kjölfar hnífaárásarinnar í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt þar sem ung stúlka týndi lífi sínu og fleiri ungmenni særðust hafa margar spurningar vaknað um hvers konar samfélagsbreytingar eru að eiga sér stað hér á landi.
Í þætti dagsins ræða þeir Grímur og Tryggvi tæpitungulaust um afleiðingar stóraukins vopnaburðar, óöryggi og vanlíðan barna og með hvaða hætti hægt sé að sporna við þessari válegu þróun. Enda um risavaxið mál að ræða sem snertir allt samfélagið í heild.
Píratinn Björn Leví Gunnarsson fer yfir helstu tíðindi í líðandi viku ásamt Teiti Birni Einarssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og á nógu er að taka.
Stormasamur kosningavetur virðist vera í vændum. Sjálfstæðisflokkurinn á nú undir högg að sækja eftir að í ljós kom að fylgi flokksins mælist í sögulegu lágmarki.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála. Lagabreytingatillögur Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra hafa að undanförnu hlotið mikla gagnrýni af hálfu forsvarsmanna SFS og verður Heiðrún Lind meðal...
Published 09/13/24
Enn er margt á huldu um það hvernig fjármagna skuli borgarlínuna. Til að varpa ljósi á málið mæta Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna í Spursmál.
Líkt og fram hefur komið stefna stjórnvöld á að verja 311 milljörðum króna í...
Published 08/30/24