#35. - Misheppnuð mótmæli og sjávarútvegurinn pakkar í vörn
Description
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, situr fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála. Lagabreytingatillögur Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra hafa að undanförnu hlotið mikla gagnrýni af hálfu forsvarsmanna SFS og verður Heiðrún Lind meðal annars krafin svara um rétt og sanngjörn afgjöld fyrir sjávarauðlindina við strendur Íslands.
Þau Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, mæta einnig í settið og rýna í það sem helst bar á góma í fréttum líðandi viku; setningu þingsins, stefnuræðu forsætisráðherra, mótmæli launafólks á Austurvelli og margt fleira.
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, og Tryggvi Hjaltason, formaður hugverkaráðs og höfundur nýlegrar skýrslu um stöðu drengja í íslensku menntakerfi, sitja fyrir svörum í nýjasta þætti Spursmála.
Í kjölfar hnífaárásarinnar í miðborg Reykjavíkur á Menningarnótt...
Published 09/06/24
Enn er margt á huldu um það hvernig fjármagna skuli borgarlínuna. Til að varpa ljósi á málið mæta Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna í Spursmál.
Líkt og fram hefur komið stefna stjórnvöld á að verja 311 milljörðum króna í...
Published 08/30/24