Episodes
Óðinn Svan og Aron Elvar fengu nýjan þjálfara meistaraflokks, Þorlák Árnason í ítarlegt spjall. Skylduhlustun fyrir alla Þórsara!
Published 03/29/22
Published 03/29/22
Nýr þjálfari Þórs, Orri Freyr Hjaltalín mætti í spjall til Arons og Jasons og ræddi allt milli himins og jarðar. Áhugavert viðtal við þennan skemmtilega karakter.
Published 05/05/21
Baldvin og Jason fengu nýjasta atvinnumann okkar Þórsara, Jakob Franz Pálsson, til sín í viðtal og ræddu við hann um félagsskiptin og ýmislegt fleira.
Published 02/06/21
Nýr þáttur af Þórs-podcastinu. Aron, Baldvin og Jason ræddu allt frá sumrinu 2020 yfir í sumarið 2021. Farið yfir öll helstu mál sem tengjast knattspyrnuliði Þórs. Mættir í nýja aðstöðu hjá Podcast stúdíói Akureyrar og þökkum við þeim kærlega fyrir það. Endilega kíkið inn á psa.is.
Published 01/13/21
Geir Guðmundsson „Ákvað að ég ætlaði að ná langt“ Handboltamaðurinn og Þórsarinn segir frá sínum ferli sínum til þessa í handboltanum í viðtali við Sæbjörn Þór. Hann var einnig frambærilegur í fótbolta. Geir ræðir valið á íþrótt, æfingaálag og áfallið að fá blóðtappa. Geir hefur leikið með Akureyri, Val og sem atvinnumaður í Frakklandi. Skyttan […]
Published 08/24/20
Sandra hefur nú leikið í eitt og hálft tímabil hjá Leverkusen og samdi undir lok síðustu leiktíðar um að vera áfram hjá félaginu. Sæbjörn Þór spjallar við Söndru um Leverkusen, atvinnumennskuna, landsliðið, breyttan lífstíl, framtíðarsýn, Þýskaland, Íslandsmeistaratitlana, Tékkland, sálfræðinámið og hvernig það hefur hjálpað. Sandra segir þá örlítið frá spennandi verkefni sem hún og bróðir […]
Published 07/28/20
Hægri skyttan Hafþór fer yfir íþróttauppeldið í Þór, árið með ÍR, framtíðina með Stjörnunni og atvinnumannadrauma. Hafþór ræðir um áhrif Bjarna Fritzsonar, aukaæfingar, langa hvíld vegna meiðsla og jólafríið síðasta.
Published 07/19/20
Júlíus Orri Ágústsson er einn allra efnilegasti körfuboltamaður sem við Íslendingar eigum. Júlíus lék upp alla yngri flokka Þórs og hefur einnig leikið með öllum yngri landsliðunum. Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke ræddi við hann um ferilinn, Þór Akureyri og margt fleira. Birt með góðfúslegu leyfi körfunnar.
Published 07/07/20
Stefán Karel Torfason var gríðarlega efnilegur körfuboltamaður, alinn upp í Þorpinu. Hann lék með yngri landsliðum og var farinn að spila reglulega í efstu deild þegar hann þurfti að leggja skónna á hilluna vegna höfuðhögga. Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke ræddi við Stefán um ferilinn og ýmislegt fleira. Birt með góðfúslegu leyfi Körfunnar.
Published 07/07/20
Aron, Baldvin og Jason litu yfir nýliðinn vetur og spáðu einnig í komandi knattspyrnusumri. Farið yfir þjálfarabreytingar, breytingar á hópnum og ýmislegt annað.
Published 05/21/20
Aron Elvar og Jason Orri renndu yfir sumarið sem var að klárast og ræddu ýmislegt um Þórsliðið.
Published 10/01/19
Gregg Ryder þjálfari meistaraflokks Þórs kom í viðtal við okkur um gengið í undanförnum leikjum og hvernig honum líst á áframhaldandi toppbaráttu í næstu leikjum. Við biðjumst afsökunar á smávægilegum hljóðtruflunum stöku sinnum í viðtalinu.
Published 08/29/19
Aron Elvar, Baldvin Kári og Jason Orri fóru yfir síðustu leiki hjá Þór, renndu stuttlega yfir næstu leiki og kynntu til leiks „Lið Þórsvallar“.
Published 07/25/19
Jason Orri og Baldvin Kári fara yfir fyrstu 7 umferðirnar í Inkasso deild karla.
Published 06/21/19
Hermann Helgi Rúnarsson mætti til okkar í smá viðtal um leik Þórs og Aftureldingar sem fór fram s.l. laugardag. Hermann var að byrja sinn fyrsta KSÍ leik í meistaraflokki og stóð sig með stakri prýði.
Published 05/07/19
Aron Elvar og Jason Orri ræddu ýmislegt sem hefur verið um að vera innan klúbbsins undanfarið. Lengjubikarinn, handboltinn og karfan tekin fyrir.
Published 03/26/19
Hinn mikli Þórsari Baldvin Rúnarsson mætti í spjall í Þórs-podcastið og ræddi þar um komandi tímabil í Inkasso-deildinni. Einnig stillti Baldvin upp sínu uppáhalds Þórsliði frá því að hann byrjaði að fylgjast með.
Published 02/09/19
Gregg Ryder og Dino Gavric, nýjasti leikmaður Þórs, litu við í stutt spjall um meistaraflokk karla og ýmislegt fleira.
Published 01/30/19
Baldvin Kári Magnússon kom til okkar í þessum nýjasta þætti af Þórs Podcastinu. Við ræddum um ýmis málefni tengd Íþróttafélaginu Þór, litum á mótherjana í Inkasso-deildinni í sumar, renndum örlítið yfir handboltann og margt fleira.
Published 01/05/19
Óðinn Svan Óðinsson formaður knattspyrnudeildar mætti í spjall til okkar í nýjasta þættinum. Við vekjum athygli á því að þátturinn var í boði kaffid.is – besti vefmiðill norðurlands!
Published 12/14/18
Ítarlegt viðtal við Ármann Pétur Ævarsson sem framlengdi á dögunum samning sinn við Þór. Hann er því á leið inn í sitt 18. tímabil með meistaraflokki Þórs.
Published 11/14/18
Fyrirliði meistaraflokks karla í knattspyrnu, Sveinn Elías Jónsson, skrifaði undir nýjan samning nú á dögunum. Við tókum hann í ítarlegt viðtal um ferilinn og margt annað.
Published 11/01/18
Ítarlegt viðtal við nýráðinn þjálfara Þórs þar sem rennt var yfir, bakgrunn hans, feril, nýtt starf hjá Þór og margt fleira.
Published 10/17/18